Þrettán manns með virk smit á Íslandi – allir í ein­angr­un

Tvö sýni greindust jákvæð við landamæra­skimun í gær og þrjú inn­an­lands og eru við­kom­andi í ein­angrun. Alls eru nú 13 manns með virk smit á Íslandi og eru þau öll í ein­angrun.

Tekin voru 1.778 sýni við landamæra­skimun í gær og greindust tvö þeirra jákvæð. Beðið er eftir nið­ur­stöðum úr mótefna­mæl­ingu og eru við­kom­andi í ein­angrun á meðan. Jafn­framt greindust þrjú smit inn­an­lands í gær og eru við­kom­andi einnig í ein­angrun. Alls eru nú 13 manns með virk smit á Íslandi og eru þau öll í ein­angrun.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sótt­varna­lækni og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra í dag.

Í henni segir að ánægju­legt sé „að segja frá því að þau sem hafa greinst und­an­farna daga með COVID-19, eftir komu til lands­ins, hafa öll farið eftir ráð­legg­ingum sótt­varna­yf­ir­valda eftir sýna­töku við landa­mærin og tak­markað sam­neyti við annað fólk. Það eykur öryggi almenn­ings og auð­veldar mjög alla vinnu við rakn­ingu.“

[adspot]

Þá er brýnt fyrir fólki sem kemur að utan að hafa hægt um sig fyrstu daga eftir heim­komu og hafa sam­band við heilsu­gæslu ef það finnur fyrir ein­kennum.

„Við minnum á mik­il­vægi þess að sýna hvert öðru til­lit­semi. Munum að þvo hendur reglu­lega og nota hand­spritt þar sem ekki er aðstaða til hand­þvotta. Virðum tveggja metra regl­una eins og hægt er.

Að setja öryggið í önd­vegi er okkur öllum í hag,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Næstu upp­lýs­inga­fundir almanna­varna verða haldnir þriðju­dag­inn 7. júlí og fimmtu­dag­inn 9. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár