22 greinst með breska afbrigðið – þrír innanlands

Breska afbrigði veirunnar er að breið­ast hratt út og vinna þarf hörðum höndum af því að útbreiðslan verði ekki mikil hér á landi líkt og í nágranna­lönd­unum, segir sótt­varna­læknir. Hann leggur til að fólk sem grein­ist með afbrigðið fari í far­sótt­ar­hús.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Í gær greindust 11 ein­stak­lingar inn­an­lands með COVID-19. Þar af voru sex í sótt­kví. Þetta eru heldur fleiri smit en greinst hafa síð­ustu daga, sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Þá greindust tíu á landa­mær­unum.

Til þessa hafa 22 greinst með breskt afbrigði veirunnar og þrír inn­an­lands. Allir tengj­ast þeir þeim sem greindust á land­mær­unum. „Ef við skoðum aðeins inn­an­lands­smitin þá hafa þau verið til­tölu­lega fá und­an­farna daga en heldur fleiri í gær og ég vona að það sé ekki vís­bend­ing um að far­ald­ur­inn sé á upp­leið,“ sagði Þórólfur. „En ég held að við getum sagt að nokkur aukn­ing hefur orðið í grein­ingu á land­mær­unum og nýgengi þar hærra en inn­an­lands. Það end­ur­speglar far­ald­ur­inn erlendis þar sem hann hefur verið í miklum vexti.“

[adspot]

Breska afbrigðið er nú að grein­ast í æ fleiri Evr­ópu­löndum og fleiri vís­bend­ingar að koma fram um að það sé meira smit­andi en önnur afbrigði, sagði Þórólfur. Hann sagði að hins vegar væru engin merki um að það sé að valda alvar­legri sjúk­dómi. Enn hefur ekki verið rann­sakað til hlítar hvort að bólu­efni sem þegar eru komin á markað verja fólk gegn hinu breska afbrigði veirunnar. Það mun að sögn Þórólfs von­andi skýr­ast sem fyrst.

[links]Þórólfur fór yfir dreif­ing­ar­á­ætl­anir bólu­efn­anna hingað til lands. Tvö bólu­efni hafa nú fengið mark­aðs­leyfi hér á landi. Fyrir mars­lok er von á bólu­efni fyrir þrjá­tíu þús­und ein­stak­linga til við­bótar við þá fimm þús­und sem bólu­settir voru í lok des­em­ber. Þriðja bólu­efnið er nú til umfjöll­unar hjá Lyfja­stofnun Evrópu. Mögulega koma næstu skammtar af bólu­efni og þá frá Moderna, hingað til lands í næstu viku.

„Þar sem til­tölu­lega lítið magn af bólu­efni er til skipt­anna hef ég neyðst til að end­ur­skoða for­gangs­röðun,“ sagði Þórólfur. Áætlað er að klára að bólu­setja fram­línu­starfs­men með næstu skömmtum og halda áfram að bólu­setja eldri en 70 ára en alls telja þeir 35 þús­und. Í fram­haldi verður fólk með ákveðna und­ir­liggj­andi sjúk­dóma bólu­sett en ólík­legt er að sá þáttur bólu­setn­ing­ar­innar hefj­ist fyrr en eftir mars­mánuð.

„Þannig munum við vinna okkur í gegnum allan hóp­inn sem boðið er í bólu­setn­ingu, alla lands­menn eldri en sextán ára, en hversu langan tíma það tekur er ekki hægt að segja á þess­ari stundu,“ sagði Þórólfur.

Nýjar tillögur í undirbúningi

Sótt­varna­læknir und­ir­býr nú nýjar til­lögur um aðgerðir til ráð­herra. Þær munu skýr­ast sam­hliða þróun far­ald­urs­ins næstu daga.

„Breska afbrigði veirunnar er í mik­illi upp­sveiflu víða,“ ítrek­aði Þórólfur. „Við þurfum að forð­ast eins og við getum að það ger­ist hér.“

Hann segir koma til greina að þeir sem grein­ist með breska afbrigðið verði sendir í far­sótta­hús. „Við verðum að gera allt sem við getum til að hafa eft­ir­litið eins virkt og gott og mögu­legt er.“

[adspot]

Þórólfur hefur áður lagt til að allir sem koma til lands­ins verði skyld­aðir í sýna­töku en fái ekki val um að fara í tveggja sótt­kví. Hann mun aftur ræða þetta við stjórn­völd enda telur hann allt verða að gera til að tryggja að far­ald­ur­inn fari ekki í sam­bæri­lega upp­sveiflu og er í lönd­unum í kringum okkur.

„Við þurfum að und­ir­búa okkur fyrir að halda aðgerðum áfram og þær verða að vera í sam­ræmi við far­ald­ur­inn hér inn­an­lands, þar til við höfum náð hjarð­ó­næmi. Það er óvissa áfram í þessu. En við getum hins vegar glaðst yfir því að far­ald­ur­inn er í lág­marki hér miðað við önnur lönd. Heil­brigð­is­kerfið er ekki á helj­ar­þröm hér eins og víða. Við verðum að kapp­kosta að halda þetta út þar til við fáum bólu­efni sem verður til þess að við getum slakað á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár