150 nú taldir af: Spánverjar, Þjóðverjar og Tyrkir um borð

Airbus A320 þota frá þýska flug­fé­lag­inu Germanwings, dótt­ur­fé­lagi Luft­hansa, hrap­aði í frönsku ölp­unum í morgun. Nýjustu fréttir frá Luft­hansa herma að 150 hafi verið um borð, en áður hafði verið talið að 148 hefðu verið um borð.

Luft­hansa og Germanwings hafa stað­fest hrapið. „Allir hjá Germanwings og Luft­hansa eru í miklu áfalli og leiðir vegna þess­ara atburða. Hugsanir okkar og bænir eru hjá fjöl­skyldum og vinum far­þega og áhafn­ar­með­lima,“ segir í til­kynn­ingu frá flug­fé­lög­unum.

#BREAKING German, Spanish, 'probably' Turkish victims in plane crash: Hollande

— Agence France-Presse (@AFP) March 24, 2015

Spænsku kon­ungs­hjónin voru í opin­berri heim­sókn í París í morgun en hættu við hana þegar fréttir af slys­inu bár­ust. Vara­for­sæt­is­ráð­herra Spánar hefur greint frá því að um 45 far­þegar séu taldir hafa verið spænskir. Talið er að fjöldi far­þega hafi verið frá Þýska­landi og ein­hverjir frá Tyrk­landi.

Eins og Kjarninn hefur greint frá fylgj­ast sendi­ráð Íslands í Berlín og París með því þegar greint verður frá því hvaðan far­þeg­arnir voru.

Angela Merkel Þýska­landskansl­ari hefur einnig aflýst allri sinni dag­skrá vegna slyss­ins. Þá hefur utan­rík­is­ráðu­neytið í Þýska­landi sent sam­úð­ar­kveðjur vegna slyss­ins og sett upp neyð­ar­mið­stöð. Þá hafa þrír flug­sér­fræð­ingar frá Þýska­landi verið sendir til að aðstoða við rann­sókn máls­ins í Frakk­landi. Vélin var á leið frá Barcelona á Spáni til Dus­seldorf í Þýska­landi þegar hún missti hæð mjög hratt. Hún hafði rétt náð 38 þús­und feta hæð þegar hún tók að lækka á ný, eins og sjá má í þessu mynd­bandi Flight Radar 24. Flight Radar greindi frá því að vélin hefði horfið af rat­sjám, eins og sjá má hér að neðan.

Flug­sér­fræð­ing­ur­inn Anthony Davis sagði við Sky News að vélin hafi lækkað flug á for­dæm­is­lausum hraða, um fimm þús­und fet á mín­útu, og að eitt­hvað mjög alvar­legt hafi átt sér stað. Flugmenn sendu út neyð­ar­kall klukkan 9.47 að íslenskum tíma, sögðu "emergency, emergency" en svo heyrð­ist ekki frá þeim meir.

We get reports about an Germanwings A320 crash. Flight 4U9525 was lost from Flightradar24 at 6800 feet near Digne in southern France. — Flightradar24 (@flightradar24) March 24, 2015

Tals­maður franska inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, Pierre-Henry Brandet, hefur sagt að brak úr vél­inni hafi sést í 2.000 metra hæð. Hann sagði að búist væri við ein­stak­lega langri og erf­iðri leit og björg­un­ar­að­gerð vegna stað­setn­ing­ar­innar. Engir vegir liggja nálægt svæð­inu og ekki er gert ráð fyrir því að kom­ist verði á stað­inn fyrr en síðar í dag.

The Flight information dis­play in the Dus­seldorf Airport #4U9525 #A320 #Germanwings #Airbus320 pic.twitter.com/UswdfrzKtA — Dona (@Donaxavier) March 24, 2015

Hér má fylgj­ast með beinni útsend­ingu Sky News.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár