Konan með eldmóðinn í röddinni – PJ Harvey stígur loks á svið á Íslandi

Söng­konan PJ Harvey var rétt rúm­lega tví­tug þegar hún skaust upp á stjörnu­him­in­inn fyrir afger­andi rödd og hráa túlkun með plöt­unni sinni Dry. Kjarninn fór yfir feril hennar og sögu.

PJ Harvey á tónlistarhátíð í Sviss í júlí 2016.
PJ Harvey á tón­list­ar­há­tíð í Sviss í júlí 2016. Mynd: EPA

PJ Harvey mun koma fram á Iceland Airwaves tón­list­ar­há­tíð­inni og stíga á svið í Vals­höllin næst­kom­andi sunnu­dag. Margir fagna því eflaust en þetta er í fyrsta skiptið sem söng­konan heldur tón­leika á Íslandi og ekki verður annað sagt en að þeir séu lang­þráðir. Hún er þekkt fyrir ein­stakan hljóm og frum­legar laga­smíðar. Hún er einnig mynd­list­ar­kona og hefur hún auk þess leikið í bíó­myndum og ritað ljóða­bók. Hún situr því ekki auðum höndum og kemur list sinni frá sér á marg­vís­lega vegu. Hún hefur þó sagt í við­tölum að söng­ur­inn sé hennar aðal­form til tján­ingar og að hún leiti alltaf þangað aftur.

Áhuginn kviknaði fljótt

PJ Harvey fædd­ist í Bridport á Englandi árið 1969. PJ er skamm­stöfun á Polly Jean en alla jafna er hún kölluð Polly. Hún lærði ung að spila á gítar og sem ung­lingur lærði hún á sax­ó­fón. For­eldrar hennar héldu að henni tón­list í upp­eld­inu og hlust­aði hún á Captain Beefheart and Bob Dylan. Hún gekk til liðs við hljóm­sveit­ina Automatic Dlamini en með henni í band­inu var John Perish sem hún átti eftir að vinna frekar með síðar. Bandið átti eftir að ferð­ast um alla Evrópu á tón­leika­ferða­lagi og taka upp tvær plötur en aðeins önnur þeirra var gefin út.

Polly ætl­aði sér að verða mynd­list­ar­kona og lærði til þeirrar iðju en tón­listin tog­aði hana alltaf inn á aðrar brautir. Árið 1991 stofn­aði hún bandið PJ Harvey ásamt bassa­leik­ar­anum Ian Oliver og trommar­anum Rob Ellis. Stephen Vaughan tók fljót­lega við af Oliver og eftir það fóru hjólin að snú­ast.

Fyrsta platan lofaði góðu

Fyrsta plata PJ Harvey kall­ast Dry, en hún kom út árið 1992. Polly hefur greint frá því í við­tölum að hún hafi lagt allt sem hún átti í plöt­una, enda hafi hún ekki vitað hvort hún fengi annað tæki­færi. Platan fékk feiki­lega góða dóma og fór aðdá­enda­hópur að mynd­ast í kringum hana.

Í umfjöllun DV frá árinu 1993 má finna lista þar sem platan var í 6. sæti yfir bestu erlendu plötur árið áður og lagið Sheela-Na-Gig í 2. sæti. Polly var valin besti laga­smiður árs­ins af tíma­rit­inu Rolling Stones þetta ár. Kurt Cobain er meira að segja sagður hafa haldið mikið upp á PJ Harvey og talið Dry vera upp­á­halds plötu sína.

Margar plötur fylgdu í fjöl­farið en PJ Harvey hefur gefið út níu breið­skífur þar sem síð­asta platan, The Hope Six Demolition Project, kom út fyrr á þessu ári. 

Blómlegt samstarf með öðrum

Árin eftir Dry voru anna­söm en manna­breyt­ingar urðu í hljóm­sveit­inni og ákvað Polly að æski­legt væri að starfa einnig með öðrum tón­list­ar­mönnum. Hún kom meðal ann­ars fram með Björk á BRIT tón­list­ar­verð­launa­há­tíð­inni árið 1994 og flutti ábreiðu af Satisfaction með Rolling Stones. Polly hefur einnig unnið með tón­list­ar­mönnum á borð við Thom Yorke og Nick Cave. Ástæðan fyrir því að hún hefur sótt í sam­starf með öðrum er meðal ann­ars til þess að verða fyrir áhrifum frá öðrum og til þess að end­ur­taka sig ekki.

Hér fyrir neðan fá sjá flutn­ing þeirra Bjarkar og Polly á BRIT verð­launa­há­tíð­inni.

Pólitísk ádeila

Ekki verður hjá því kom­ist að fjalla aðeins um nýj­ustu plötu PJ Harvey, The Hope Six Demolition Project, en hún hafði ekki gefið út frá sér efni síðan árið 2011 þegar Let England Shake kom eins og storm­sveipur inn á plötu­mark­að­inn. 

The Hope Six Demolition Project kom út á vor­mán­uðum og er unnin á sama tíma og ljóða­bók söng­kon­unnar The Hollow of the Hand þegar hún ferð­að­ist um Kósóvó og Afganistan og síð­ast en ekki síst til Washington í Banda­ríkj­unum. Tit­ill­inn vísar til verk­efnis í Banda­ríkj­unum sem nefn­ist HOPE VI. Það snýst um að koma í veg fyrir eða rétt­ara sagt benda á þær sam­fé­lags­hreins­anir sem eiga sér stað í fátækra­hverfum. Þannig er gömlum húsum rutt í burtu og ný og dýr­ari byggð með þeim afleið­ingum að fyrrum íbúar hafi ekki efni á að búa þar lengur og neyð­ist til að flytja annað. Þannig er mark­mið verk­efn­is­ins að stuðla að bland­aðri byggð með fjöl­breytt­ari íbúaflóru. Plötunni hefur verið vel tekið og alla jafna fengið góða dóma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár