Björgunarmiðstöð ríkisins við Holtagarða – Borgin fái stóra ríkislóð í Fossvogi á móti

Áformað er að stór­hýsi fyrir við­bragðs­að­ila muni verða á 30.000 fer­metra lóð Faxa­flóa­hafna við Holta­garða, sem Reykja­vík­ur­borg fram­selur til rík­is­ins. Í stað­inn muni ríkið láta Reykja­vík­ur­borg í té stærð­ar­innar lóð sunnan Borg­ar­spít­ala undir íbúðir.

Til vinstri sést lóðin á milli Kleppsspítala og Holtagarða, þar sem björgunarmiðstöð á að rísa. Til hægri er svo afmörkuð með gulum línum sú ríkislóð sunnan við Borgarspítalann sem borgin fær til eignar. Þar á að þróa íbúabyggð.
Til vinstri sést lóðin á milli Klepps­spít­ala og Holta­garða, þar sem björg­un­ar­mið­stöð á að rísa. Til hægri er svo afmörkuð með gulum línum sú rík­is­lóð sunnan við Borg­ar­spít­al­ann sem borgin fær til eignar. Þar á að þróa íbúa­byggð. Mynd: Samsett

Stórhýsi rík­is­ins undir fjöl­marga lög­gæslu- og við­bragðs­að­ila, svokölluð björg­un­ar­mið­stöð, sem gert er ráð fyrir að þurfi að vera um 26 þús­und fer­metrar að stærð, mun fá um 30 þús­und fer­metra lóð undir starf­semi sína á milli Klepps og Holta­garða.

Borg­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti á fimmtu­dag til­lögu borg­ar­stjóra um að borgin myndi kalla eftir úthlutun lóð­ar­innar frá Faxa­flóa­höfnum og á sama fundi var sömu­leiðis sam­þykkt að gera maka­skipta­samn­ing við rík­is­sjóð.

Sá samn­ingur felst í því að borgin fram­selji lóð­ar­leigu­rétt­indi að lóð­inni á milli Klepps og Holta­garða til rík­is­ins en fái stað­inn til eignar svipað stóra rík­is­lóð sunnan við Borg­ar­spít­al­ann í Fossvogi. Á lóð­inni í Fossvogi stendur til að þróa íbúa­byggð, sam­kvæmt áætl­unum Reykja­vík­ur­borgar.

Á fundi borg­ar­ráðs á fimmtu­dag­inn fögn­uðu full­trúar meiri­hlut­ans „tíma­móta­samn­ingi“ sem myndi tryggja að björg­un­ar­mið­stöðin risi í Reykja­vík, en full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks sátu hjá og létu bóka að lóðin væri „skugga­lega nálægt vegstæði Sunda­brautar“.

Stórhýsi undir ýmsa löggæslu- og viðbragðsaðila

Sumarið 2020 aug­lýsti Fram­kvæmda­sýsla rík­is­ins eftir lóð undir mið­stöð fyrir marga helstu lög­gæslu- og við­bragðs­að­ila lands­ins, en vænt­an­leg björg­un­ar­mið­stöð á að nýt­ast emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Land­helg­is­gæsl­unni, Toll­gæsl­unni, Neyð­ar­lín­unni, Slysa­varna­fé­lag­inu Lands­björgu og yfir­stjórn Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Flestar þessar stofn­anir eru nú að ein­hverjum hluta með starf­semi sína í björg­un­ar­mið­stöð­inni í Skóg­ar­hlíð, en hús­næðið þar hefur um ára­bil þótt óhent­ugt undir starf­sem­ina.

Þegar aug­lýst var eftir lóð undir björg­un­ar­mið­stöð­ina, sem kölluð hefur verið HVH (hús­næði við­bragðs­að­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu) í opin­berum skýrslum um verk­efnið, var gerð krafa um að lög­regla gæti kom­ist að lóð­inni frá stjórn­ar­ráðs­reit, Alþingi og miðbæ Reykja­víkur.

Allt frá því síðla árs 2020 hafa svo verið þreif­ingar um nákvæm­lega þessa lóð sem Reykja­vík­ur­borg mun nú, í sam­starfi við Faxa­flóa­hafnir, láta rík­inu í té í skiptum fyrir lóð­ina við Borg­ar­spít­al­ann.

Lóðargjald gæti numið 654 milljónum

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg segir að lóð­ar­gjald fyrir lóð­ina við Holta­garða, miðað við að nýt­ing­ar­hlut­fall á lóð­inni verði 0,5, sé 390 millj­ónir króna, sem Reykja­vík­ur­borg greiði Faxa­flóa­höfnum við úthlutun.

„Fyrir umfram bygg­ing­ar­magn greið­ist við­bót­ar­lóð­ar­gjald sem nemur gatna­gerð­ar­gjaldi. Miðað við fjár­hæð gatna­gerð­ar­gjalds nú og að hús­næðið undir almanna­þjón­ust­una verði 26 þús­und fer­metrar, myndi við­bót­ar­lóð­ar­gjald nema um 264 millj­ónum króna. Sam­an­lagt yrði fjár­hæð lóða­gjalds þá um 654 millj­ónir. Umfram fjár­hæðin kemur til greiðslu við útgáfu bygg­ing­ar­leyfis,“ segir í til­kynn­ingu borg­ar­innar.

[adspot]

Þar kemur einnig fram að Reykja­vík­ur­borg muni ann­ast end­ur­skoðun á gild­andi deiliskipu­lagi lóðar björg­un­ar­mið­stöðv­ar­innar og eftir atvikum aðal­skipu­lagi borg­ar­innar, í sam­vinnu við ríkið. Við gerð deiliskipu­lags á meðal ann­ars að skil­greina bygg­ing­ar­heim­ildir og umferð­ar­teng­ingar með hlið­sjón af þeirri starf­semi sem fyr­ir­huguð er á lóð­inni.

„Verði þörf á við­bót­ar­landi eða athafna­svæði til að tryggja for­gangsakstur eða umferð­ar­flæði mun Reykja­vík­ur­borg taka jákvætt í slíkar umleit­anir verði sýnt fram á mik­il­vægi þess,“ segir í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Íbúðabyggð verði þróuð sunnan við Borgarspítala

Í maka­skipt­unum fram­selur Reykja­vík­ur­borg sem áður segir lóð­ar­leigu­rétt­indi að lóð­inni á milli Klepps og Holta­garða, en fær í stað­inn til eignar frá rík­inu lóð­ina sunnan við Borg­ar­spít­al­ann.

„Á lóð­inni í Fossvogi mun Reykja­vík­ur­borg þróa aukna íbúða­byggð og þegar þeirri vinnu lýkur verður hægt að bjóða til sölu bygg­ing­ar­rétt á lóðum á svæð­inu,“ segir í til­kynn­ingu borg­ar­innar um þetta mál.

Í drögum að maka­skipta­samn­ingi borg­ar­innar og rík­is­ins, sem birt voru með til­lögu borg­ar­stjóra, segir að við þróun íbúð­ar­byggðar á svæð­inu verði gætt að því að fyr­ir­huguð upp­bygg­ing hafi ekki áhrif á nýt­ingu spít­ala­bygg­ing­ar­innar undir heil­brigð­is­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár