Mynd: Bára Huld Beck

Óvissan liggur í loftinu

Rit­höf­und­ur­inn Auður Jóns­dóttir og blaða­mað­ur­inn Bára Huld Beck fóru í göngutúr um auðar götur mið­bæjar Reykja­víkur. Þrátt fyrir gjör­breytta götu­mynd þá mátti sjá ljós í myrkr­inu við hvert fót­mál.

Á örfáum dögum hefur Reykja­vík, líkt og margar borgir, breyst úr því að vera iðandi mann­lífspottur yfir í eyði­leg torg og stræti. Þessa dag­ana er sér­kenni­leg upp­lifun að fá sér göngutúr um mið­bæ­inn, nán­ast eins og að rölta um inni í dystópískri kvik­mynd – eða! Kannski minnir nú borgin öllu frekar á ver­öld sem var, sjálfa sig fyrir ein­hverjum ára­tugum síðan. Göturnar tómar, reglu­verkið stíft. Flestir útlend­ingar farnir úr landi og borg­ar­búar halda sig heima.

Óvissan liggur í loft­inu, nán­ast áþreif­an­leg í tóm­legri götu­mynd­inni. Hvað bíður okkar, hvað bíður fyr­ir­tækj­anna, hvað er að ger­ast? Um leið og hætta steðjar að heilsu okkar, jafn­vel lífi, blasir við hættan á djúpri kreppu. Það verður kreppa, en hversu djúp hún verður, vitum við ekki ennþá. Rétt eins og við vitum ekki hversu margir munu veikj­ast alvar­lega.

Samt! Það er byrjað að birta, vorið er á næsta leiti. Úti má heyra fugla­söng. Við erum ennþá lif­andi.

Ekki er allt svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Nú gefst færi á að dansa einn á torg­inu fyrir framan Hall­gríms­kirkju, torgi sem vana­lega er iðandi af lífi. Krökkt af fólki. Ein­hverju sem er ekki lengur þarna. Kirkjan gnæfir yfir tómum strætum.

Við göngum frá Hall­gríms­kirkju niður tóman Skóla­vörðu­stíg­inn, tvö ein­tök af Palli var einn í heim­inum. Upp­lifunin er ögn óraun­veru­leg, um leið og umhverfið minnir okkur á æsk­una. Þá vorum við báðar vanar að dóla okkur svo mikið einar, nema án síma, tölvu og meira að segja stundum án sjón­varps. Maður spyr sig þó: Hversu lengi á þetta eftir að vara svona?

Verður ver­öldin aftur söm? Við trúum því að hún verði aftur söm við sig. Samt, þegar svona margt breyt­ist á örstuttum tíma verður maður með­vit­aður um hversu litla stjórn mann­eskjan hefur á líf­inu almennt. Nú þegar ósýni­leg veira er búin að koll­varpa háþró­uðum tækni­sam­fé­lögum heims­ins.

Mæðgurnar Sigríður Halldórsdóttir og Auður Jónsdóttir.
Mæðgurnar Sigríður Hall­dórs­dóttir og Auður Jóns­dóttir.

Næst liggur leiðin á Berg­staða­stræti svo rit­höf­und­ur­inn geti kíkt á mömmu sína, Sigríði Hall­dórs­dóttur. Mamman er, eins og mæður svo margra, að nálg­ast sjö­tugt og því sjálf­krafa í ákveðnum áhættu­hópi. Þar sem mamman býr mið­svæðis fylgir því líka sú áhætta að fólk droppi við. Það er vant því að detta inn í kaffi og spjall við nota­legt eld­hús­borðið. En nú getur það verið lífs­hættu­legt, eins og ýmis­legt annað sem við höfum tekið sem gefnu í hvers­deg­inum! Samt sem áður er hægt að heilsa upp á fólk, bara svo lengi sem maður stígur ekki inn fyrir dyra­þrösk­uld­inn.

Rit­höf­und­ur­inn reynir að heim­sækja móður sína reglu­lega en gætir þess að hvika ekki frá graffití-veggnum and­spænis úti­dyr­unum, jafn­vel þó að móð­irin and­varpi, allt að því þjáð: Ætlarðu í alvör­unni ekki að koma inn!

Við röltum aftur út Berg­staða­strætið, út á Skóla­vörðu­stíg, og göngum fram­hjá Kaffi­fé­lag­inu. Vanalega kemur þar saman fjöl­mennur hópur á morgn­ana, ýmsir kjaftaglaðir með ein­dæmum og ósparir á skoð­anir sínar á öllu því sem gengur á í sam­fé­lag­inu. Þarna fáum við okkur stundum morg­un­kaffi því það getur verið svo góð inn­spýt­ing fyrir greina­skrif að heyra ólíkar raddir. En núna vita ekki einu sinni mælsk­ustu mann­eskjur hvað er eig­in­lega hægt að segja.

Að vísu mæta ein­hverjir ennþá í morg­un­sopann og gæta að því að standa með fjar­lægð á milli sín. En þeir eru miklu færri en vana­lega og nú, þegar liðið er á dag­inn, er hvergi neinn að sjá. Eina nær­veran sem við skynjum er ilm­ur­inn af góða, ítalska kaff­inu hans Einars í Kaffi­fé­lag­inu. Hættu­lega lokk­andi!

Oft hefur verið líf­legra um að lit­ast í Banka­stræt­inu. Við horfum á eftir einni mann­eskju hraða sér eitt­hvert út í blá­inn. Tóbaks­búðin Björk er þó opin á þessum síð­ustu og verstu. Sýnilega er til­vilj­un­ar­kennt hvaða búðir eru opnar og þrátt fyrir allt og allt, við­var­anir lækna og heil­brigð­is­yf­ir­valda þess efnis að tóbak auki lík­urnar á hættu­legum veik­indum, þá er vina­legt að sjá opna búð.

Og reyndar er Ríkið líka opið. Þar fyrir utan húkir ein­mana hundur og bíður eig­anda síns. Vonandi var þó minna um heimapartí þessa helg­ina heldur en þá síð­ustu þegar lög­reglan þurfti að sinna óvenju mörgum útköllum í heima­hús. Það getur vissu­lega verið hjarta­styrkj­andi að fá sér sopa en um leið lúrir hættan á að höml­urnar farist fyrir. En það þarf svo sem ekk­ert áfengi þessa dag­ana til að stíga villtan dans á Lækj­ar­torgi, alveg blygð­un­ar­laus. Eini veg­far­and­inn á ferli hefur þó gaman af.

Það er ein­hver heimsendastemn­ing við að sjá Kaffi París svo inni­lega lokað að búið er að stafla öllum stólum upp á borð. Það er af sem áður var, hugsum við.

Svo virðist sem það verði nokkur bið á að þessir lundar verði keyptir.
Svo virð­ist sem það verði nokkur bið á að þessir lundar verði keyptir.

Óneit­an­lega er eitt­hvað ögn list­rænt við að sjá bréf­bera einan á hjóli fyrir framan Lista­safn Reykja­víkur. Það leiðir hug­ann að því að víðs vegar í sam­fé­lag­inu er fólk að vinna störf sín og á sinn hátt að halda gang­verki þess lif­andi. Á sinn hátt er allt þetta fólk björg­un­ar­sveit. Það stendur vakt­ina í fremstu víg­línu.

Og hér er svo allt fólkið – eftir allt saman! Allir bara á Bæjarins bestu! Sama hvað ger­ist í heim­inum, fólk heldur áfram að fá sér pylsu með öllu. Eða bara með sinn­epi eins og Clinton forðum.

Í apó­tek­inu er vel tekið á móti okkur. Þar má finna hitt og þetta sem er gott og jafn­vel ráð­legt að eiga. Lyfja­fræð­ing­arnir halda sér í öruggri fjar­lægð, við­ræðu­góðir og hlý­legir. Sérstakt sprittteymi sér um að spritta og þrífa fyrir við­skipta­vini. Tveir menn sem mæta nú í apó­tekið tvisvar í viku til að spritta.

Það er ekki úr miklu að moða fyrir ein­hleypa þessa dag­ana. Strang­lega bannað að kyssa og knúsa aðra en heim­il­is­með­limi. Þá má halla sér upp að svona dúkku­vini, nema maður búi svo vel að eiga kyn­lífs­dúkku.

Nokkuð þungbúinn himinn yfir stjórnarráðinu. Og þó! Sólin brýst í gegnum skýin.
Nokkuð þung­bú­inn him­inn yfir stjórn­ar­ráð­inu. Og þó! Sólin brýst í gegnum skýin.

Í dyr­unum af einni af þessum opnu búðum stendur mynd­list­ar­mað­ur­inn og versl­un­ar­eig­and­inn Jóhann Torfason. Hann glottir góð­lát­lega framan í dag­inn og segir okkur að hjá sér sé hægt að panta vöru, þó nokkuð sé um að fólk panti Reykja­vík­ur­púsl. Það getur þá stytt sér stundir við að rústa Reykja­vík og púsla henni aftur saman.

Sem betur fer er Vínberið opið! Þar má kaupa allskonar girnilegt sælgæti til að grynnka á örvæntingunni.
Sem betur fer er Vínberið opið! Þar má kaupa alls­konar girni­legt sæl­gæti til að grynnka á örvænt­ing­unni.
Heyrst hefur að vandræðaveiran þrífist vel í kulda. Svo allur er varinn góður fyrir þennan ísbjörn.
Heyrst hefur að vand­ræða­veiran þrí­fist vel í kulda. Svo allur er var­inn góður fyrir þennan ísbjörn.

Okkur líður bara nokkuð vel eftir göngut­úr­inn, enda þjóð­ráð að fara í göngutúr, þó að borgin sé tóm­leg að sjá. Bara að hafa í huga að passa upp á fjar­lægð­ina og detta ekki á neinn! Göngut­úrar gera okkur gott og eru krafta­verka­meðal í ástandi sem þessu.

Myndir: Bára Huld Beck

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár