Fréttamál

Salan á Íslandsbanka

Greinar

Bjarni segist ekki „vera mikið inni í“ fjárfestingum föður síns: Stýrði þeim fyrir hrun
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni seg­ist ekki „vera mikið inni í“ fjár­fest­ingum föður síns: Stýrði þeim fyrir hrun

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, stýrði fjár­fest­ingum föður síns Bene­dikts Sveins­sonar á árunum fyrir hrunið 2008. Þá var Benedikt umsvifa­mik­ill fjár­festir í olíu­fé­lag­inu Esso, síðar N1, Kynn­is­ferðum, Glitni, Icelandair og fleiri félögum. Glitn­is­skjölin árið 2017 sýndu hvernig það var Bjarni sem stýrði þessum fjár­fest­ingum sam­hliða þing­mennsku sinni. Nú hefur komið í ljós að fjár­fest­ing­ar­fé­lag föður Bjarna keypti hluta­bréf í lok­uðu útboði á vegum íslenska rík­is­ins og seg­ist ráð­herr­ann ekki hafa vitað af því.
Faðir fjármálaráðherra á meðal þeirra sem fengu að kaupa í Íslandsbanka
FréttirSalan á Íslandsbanka

Faðir fjár­mála­ráð­herra á meðal þeirra sem fengu að kaupa í Íslands­banka

Listinn yfir kaup­endur í Íslands­banka var birtur rétt í þessu þrátt fyrir and­stöðu Banka­sýslu rík­is­ins. Þekkt nöfn eru tengd félögum á list­anum, sem komu að bank­anum fyrir hrun. Meðal ann­ars Þor­steinn Már Bald­vins­son, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Guðbjörg Matth­í­as­dóttir og Benedikt Sveins­son, faðir fjár­mála­ráð­herra. Listinn er birtur hér í heild.
Íslandsbanki: Setja þarf lög til að eigendur megi afrita hlutalistann
FréttirSalan á Íslandsbanka

Íslands­banki: Setja þarf lög til að eig­endur megi afrita hluta­list­ann

Íslands­banki segir að setja þurfi lög til að bank­inn geti heim­ilað hlut­höfum að afrita hlut­hafa­skrá félags­ins. Í svari bank­ans segir að jafn­vel þó lögum verði breytt í þessa veru þá komi per­sónu­vernd­ar­lög mögu­lega í veg fyrir slíka afritun. Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son hafa kallað eftir því að hlut­haf­alist­inn verði birtur og er nú beðið eftir svari frá Banka­sýslu rík­is­ins um það.
Maðurinn sem vildi fá að vita hverjir keyptu í Íslandsbanka
FréttirSalan á Íslandsbanka

Maðurinn sem vildi fá að vita hverjir keyptu í Íslands­banka

Lítill hlut­hafi í Íslands­banka heim­sótti bank­ann af því hann vildi kom­ast að því hverjir keyptu hluta­bréf af íslenska rík­inu í nýliðnu útboði. Maðurinn fékk ekki að skoða hlut­haf­alist­ann sjálfur heldur var starfs­maður bank­ans með honum allan tím­ann. Hann fékk heldur ekki að afrita list­ann eða taka af honum myndir. For­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, hefur kallað eftir laga­breyt­ingum til að hægt verði að greina frá því hverjir keyptu í útboð­inu.
Þetta þurfa hluthafar að gera til að fá upplýsingar um leynda eigendur Íslandsbanka
ViðskiptiSalan á Íslandsbanka

Þetta þurfa hlut­hafar að gera til að fá upp­lýs­ingar um leynda eig­endur Íslands­banka

Flest bendir til að hlut­haf­alisti Íslands­banka verði ekki birtur eftir opin­berum leiðum. Íslands­banki segir að birt­ing list­ans brjóti gegn lögum. Þar af leið­andi mun hið opin­bera ekki vera milli­liður í því að greint verði frá því hvaða aðilar keyptu hluta­bréf í Íslands­banka í síð­ustu viku. Útboðið hefur verið harð­lega gagn­rýnt, meðal ann­ars af Kristrúnu Frosta­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar. Banka­sýsla Íslands birti skýrslu um útboðið í morgun þar sem fram kemur að 140 óþekktir einka­fjár­festar hafi keypt 30 pró­sent bréf­anna í útboð­inu.
Bjarni segist vilja birta allan hluthafalista Íslandsbanka ef lög leyfa
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni seg­ist vilja birta allan hlut­haf­alista Íslands­banka ef lög leyfa

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra vill að Íslands­banki birti allan hlut­haf­alista bank­ans ef lög heim­ila það. Þetta sagði Bjarni í þing­ræðu um útboð rík­is­ins á hluta­bréfum í Íslands­banka í gær. Útboð rík­is­ins á 22,5 pró­senta hlut í bank­anum á afslátt­ar­verði hefur verið gagn­rýnt úr ýmsum áttum, meðal ann­ars af með­limum úr stjórn­ar­and­stöð­unni. Íslands­banki seg­ist ekki mega afhenda hlut­haf­alist­ann til opin­berrar birt­ingar.
Kristrún segir brýnt að upplýsa hverjir fengu að kaupa í Íslandsbanka
ViðskiptiSalan á Íslandsbanka

Kristrún segir brýnt að upp­lýsa hverjir fengu að kaupa í Íslands­banka

Kristrún Frosta­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, spyr að því hvaða litlu aðilar það voru sem fengu að kaupa hluta­bréf í Íslands­banka í nýaf­stöðnu hluta­fjár­út­boði bank­ans. Öfugt við útboðið sem fór fram á bréfum Íslands­banka síð­ast­liðið sumar, þar sem allir gátu keypt fyrir ákveðna upp­hæð, voru 430 fjár­festar valdir til að taka þátt í þessu útboði.

Mest lesið undanfarið ár