Flokkur

Innlent

Greinar

ViðtalAð gefa barnið sitt

Ætlaði aldrei að afsala sér föð­ur­hlut­verk­inu

Hugi Ingi­bjarts­son stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu hvort hann ætti að fá for­ræði yfir dóttur sinni og ala hana upp sem ein­stæður faðir eða gefa hana alfarið frá sér. Hann ákvað að gefa hana í trausti þess að hjá fóst­ur­for­eldrum myndi hún eign­ast betra líf en hann gæti gefið henni. Hann var hins vegar ekki til­bú­inn til þess að afsala sér föð­ur­hlut­verk­inu og stóð í þeirri trú að hann gæti haldið umgengni við dóttur sína. Hann seg­ist hafa verið svik­inn um það, þegar hann fær aðeins að taka hana tvisvar í mán­uði, fimm tíma í senn. Nú vill hann fá hana aftur.

14 mín. lestur

ViðtalAð gefa barnið sitt

„Ég þekki aðeins að vera móðir í 300 daga“

Hugrún Sig­ur­jóns­dóttir hafði verið full­vissuð af lækni að hún væri komin á aldur þegar hún varð óvart ólétt 45 ára gömul. Hún ákvað að eign­ast barnið, en eftir erf­iða með­göngu, erf­iða fæð­ingu og stöðugan grátur í marga mán­uði, gafst hún upp og gaf barnið frá sér til fólks sem hafði lengi þráð að eign­ast barn. Hún hefur aldrei séð eftir því.

20 mín. lestur

ViðtalBörn í leit að alþjóðlegri vernd

Flúðu grimmi­legar árásir tali­bana: Fá ekki vernd á Íslandi

Sjö manna fjöl­skyldu frá Afganistan verður vísað úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar á næstu dögum. Þeirra á meðal er stúlka sem var barin til óbóta af tali­bönum þriggja ára gömul. Fjöl­skyldan flúði ofsóknir og árásir tali­bana á síð­asta ári, en þeir réð­ust á fjöl­skyld­una þegar fjöl­skyldu­fað­ir­inn, Mir Ahmad Ahmadi, neit­aði að ganga til liðs við þá. Mir missti tennur í árásinni og fimm ára sonur hans hand­leggs­brotn­aði illa. Stúlkan er í dag lömuð öðrum megin í and­lit­inu og á erfitt með að tjá sig, en hefur tekið ótrú­legum fram­förum eftir að hún kom til Íslands. Fjöl­skyld­unni hefur verið gert að yfir­gefa eina landið þar sem þau hafa fundið til öryggis.

24 mín. lestur

Fréttir

Van­ræksla að kæra ekki Brúnegg til lög­reglu - vill stofna sér­staka dýra­lög­reglu

Meðferð Brú­neggja á hænum er alvar­legt brot á lögum um vel­ferð dýra sem Mat­væla­stofnun hefði átt að kæra til lög­reglu fyrir mörgum árum. Þetta segir Alex­andra Jóhann­es­dóttir lög­fræð­ingur sem segir stofn­un­ina mátt­lausa og van­hæfa til að sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu. Hún hefur talað fyrir því að sett verði á fót dýra­lög­regla á Íslandi.
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Svona leit meng­unin út í gær­morgun hjá United Silicon

United Silicon segir ástandið í Reykja­nesbæ ekk­ert verra en að mæta á ára­móta­brennu og segir engin „sér­stak­lega hættu­leg efni“ í miklum reyk sem leggur frá verk­smiðj­unni. Rúmlega 2000 manns hafa skrifað undir áskorun til Umhverf­is­stofn­unar og Reykja­nes­bæjar þar sem kraf­ist er þess að íbúar fái að njóta vafans en ekki verk­smiðjan.
Viðtal

Spán­verjar hafa kol­rangar hug­myndir um Ísland

Kata­lónski blaða­mað­ur­inn Èric Lluent stefnir að því að verða leið­andi í umfjöllun um Ísland í hinum spænsku­mæl­andi heimi. Næg séu tæki­færin, þar sem umfjöllun um Ísland í erlendum miðlum sé almennt skökk og ein­hliða. Á fyrsta mán­uði frétta­mið­ils­ins El Faro de Reykja­vík litu 13 þús­und manns inn og lásu fréttir af póli­tík, efna­hags- og menn­ing­ar­málum á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár