Flokkur

Innlent

Greinar

Verjandi í samskiptum við aðra sakborninga fyrir og eftir morðið
FréttirMorð í Rauðagerði

Verjandi í sam­skiptum við aðra sak­born­inga fyrir og eftir morðið

Stein­bergur Finn­boga­son, fyrr­ver­andi verj­andi Antons Kristins Þór­ar­ins­sonar sem var færður í gæslu­varð­hald vegna rann­sóknar á morði í Rauða­gerði, var sam­kvæmt fjar­skipta­gögnum lög­reglu í sam­skiptum við aðra sak­born­inga í mál­inu fyrir og eftir að morðið var framið. Vegna þessa hefur hann verið kvaddur til skýrslu­töku í mál­inu og getur því ekki sinnt stöðu verj­anda. Stein­bergur hefur áður verið tal­inn af lög­reglu rjúfa mörk verj­anda og aðila.
Svona yfirsást Barnaverndarstofu ofbeldið gegn stúlkunum á Laugalandi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Svona yfir­s­ást Barna­vernd­ar­stofu ofbeldið gegn stúlk­unum á Lauga­landi

Minn­is­blöð vegna eft­ir­lits­heim­sókna á með­ferð­ar­heim­ilið á Lauga­landi draga upp mjög jákvæða mynd af líðan stúlkn­anna sem þar voru vistaðar. Þær lýs­ingar eru í full­komnu ósam­ræmi við vitn­is­burð stúlkn­anna sjálfra. Þær lýsa því að þær hafi ekki þorað að segja frá ótta við að Ingj­aldur Arn­þórs­son for­stöðu­maður myndi refsa þeim fyrir það.
Leyndarmál Róberts Wessman og lyfjaverksmiðjan í Vatnsmýrinni
Úttekt

Leynd­ar­mál Róberts Wessman og lyfja­verk­smiðjan í Vatns­mýr­inni

Fjár­festir­inn Róbert Wessman, stofn­andi Alvogen og Alvotech, boðar að fyr­ir­tæki hans geti skapað um 20 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu Íslands innan nokk­urra ára. Alvotech rekur lyfja­verk­smiðju á háskóla­svæð­inu sem er und­ir­fjár­mögnð og hefur Róbert reynt að fá líf­eyr­is­sjóð­ina að rekstri hennar í mörg ár en án árang­urs hingað til. Rekstr­ar­kostn­aður Alvotech er um 1,3 millj­arðar á mán­uði. Samtímis hefur Róbert stundað það að kaupa umfjall­anir um sig í erlendum fjöl­miðlum og Harvard-háskóla til að styrkja ímynd sína og Alvogen og Alvotech til að auka lík­urnar á því að fyr­ir­ætl­anir hans erlendis og í Vatns­mýr­inni gangi upp.
Atvinnuleysið lenti á þeim verr settu
Kolbeinn Hólmar Stefánsson
Pistill

Kolbeinn Hólmar Stefánsson

Atvinnu­leysið lenti á þeim verr settu

Rannsókn sýnir hvernig atvinnu­leysi fylgist að með fjöl­breyttum skorti í lífi fólks. Atvinnu­lausir eru ólík­legri til að hafa tekið sér gott sum­ar­frí árin á undan, þeir eru lík­legri til dep­urðar og helm­ingur atvinnu­lausra eiga erfitt með að ná endum saman. Vís­bend­ingar eru um að þeir sem voru í veik­ustu stöð­unni verði frekar atvinnu­lausir í Covid-krepp­unni.

Mest lesið undanfarið ár