Flokkur

Hælisleitendur

Greinar

ÚttektFlóttamenn

Þegar hungur er eina vopnið

Ramazan Fayari seg­ist heldur vilja deyja á Íslandi, en að vera sendur aftur til Afganistan þar sem þjóð­ar­brot hans sætir ofsóknum og árásum. Hann hefur nú verið í hung­ur­verk­falli í mánuð. Ísland heldur áfram að beita Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni þrátt fyrir að fyrir liggi að evr­ópsk stjórn­völd hygg­ist áfram­senda við­kom­andi til Afganistan þar sem stríðs­á­tök hafa færst í auk­ana und­an­farin ár.
ViðtalFlóttamenn

Útlend­inga­stofnun rekur fórn­ar­lamb mansals úr landi

Ungum níger­ískum hjónum hefur verið gert að yfir­gefa landið ásamt sjö ára dóttur þeirra. Konan flúði man­sal og segir að hún hafi þurft að þola hót­anir alla tíð síðan, en móðir hennar var myrt og systir hennar blinduð. Eig­in­maður hennar hrakt­ist frá heima­land­inu vegna póli­tískra ofsókna. Útlend­inga­stofnun hefur ákveðið að senda sjö ára dóttur þeirra til Nígeríu, en hún er fædd á Ítalíu, talar íslensku og hefur aldrei búið í Nígeríu.

14 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár