Svæði

Grænland

Greinar

Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.
FréttirHvarf Birnu Brjánsdóttur

Mynd­skeið sýnir Birnu með sím­ann sinn á Skóla­vörðu­stíg

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur rann­sakað upp­töku úr örygg­is­mynda­vél við Skóla­vörðu­stíg, en eng­inn þeirra sem sést á gangi á sama tíma og Birna Brjáns­dóttir hafa gefið sig fram við lög­reglu. Útgerð græn­lenska tog­ar­ans Polar Nanoq segir engar sann­anir liggja fyrir sem tengir áhafn­ar­með­limi við hvarf Birnu. Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn, segir lög­regl­una hafa yfir­heyrt fjölda fólks með stöðu vitnis. Enginn hafi þó verið yfir­heyrður með stöðu grun­aðs.

Myndband

FréttirHvarf Birnu Brjánsdóttur

Ný ljós­mynd sýnir Birnu fyrir hvarfið - lög­reglan vill ræða við fólk af mynd­bandi

Skip­stjóri Polar Nanoq, Julian Nolsø, seg­ist stefna til Íslands. Talið er að um 22 séu í áhöfn tog­ar­ans sem hefur oft komið til Íslands. Grímur Grímsson rann­sókn­ar­lög­reglu­maður segir lög­reglu vilja ná tali af fólki sem sést á mynd­bandi. Síðasta ljós­myndin sem sýnir Birnu fyrir hvarfið sýnir hana kaupa mat á veit­inga­stað við Ing­ólfs­torg um klukkan fimm um nótt­ina.

Myndband

Mest lesið undanfarið ár