Fréttamál

Covid-19

Greinar

FréttirCovid-19

Til­kynntu 425 millj­óna hagnað og settu yfir 50 starfs­menn á hluta­bætur

Yfir 10 pró­sent starfs­manna Origo lækka í starfs­hlut­falli vegna sam­dráttar í verk­efnum sem tengj­ast ferða­þjón­ust­unni. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist um tæpan hálfan millj­arð fyrstu þrjá mán­uði árs­ins og greiddi millj­arð í arð vegna 2018. For­stjór­inn var einn sá launa­hæsti í Kaup­höll­inni, en stjórn­endur munu taka á sig launa­skerð­ingu.
FréttirCovid-19

Ráð­herrar á „gráu svæði“ vegna tengsla við fyr­ir­tæki sem fá Covid-stuðn­ing stjórn­valda

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, segir ljóst að hags­muna­tengsl ráð­herra við fyr­ir­tæki hafi ekki verið rædd innan rík­is­stjórn­ar­innar við gerð aðgerða­pakka. Vísar Þór­hildur lík­lega til Bláa lóns­ins og Kynn­is­ferða, sem ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks tengj­ast. Enginn ráð­herra hefur sagt sig frá þessum málum vegna tengsla.
FréttirCovid-19

Lyfju­starfs­fólk ber smit­varn­ar­hjálma í vinn­unni

„Þeir eru not­aðir til að draga úr smiti, sér­stak­lega dropa­smiti sem getur komið frá fólki þegar það hóstar. Þannig að þetta er vörn fyrir okkur,“ segir Alfreð Ómar Ísaksson, lyf­sali í Lyfju í Hafn­ar­stræti. Und­an­farnar vikur hefur starfs­fólk versl­un­ar­innar, eins og starfs­fólk ann­arra Lyfju­versl­ana, borið hjálma við störf sín til að hindra smit kór­óna­veirunnar.
ErlentCovid-19

Þeir fáu sem græða í far­aldr­inum

Covid-19 far­ald­ur­inn hefur lamað efna­hags­líf um allan heim og útlit er fyrir verri kreppu en elstu menn muna. Á sama tíma eru von­ar­glætur inni á milli og ein­staka fyr­ir­tæki mala gull vegna skyndi­legrar eft­ir­spurnar sem engan óraði fyrir. Í sumum til­vikum gæti það þó verið skamm­góður vermir, líkt og í skemmt­ana­iðn­að­inum þar sem gam­alt efni er hamstrað en ekk­ert nýtt er í fram­leiðslu.

Mest lesið undanfarið ár