Flokkur

Atvinna

Greinar

Skuggahlið ferðamennskunnar: Draumurinn á Íslandi breytist í martröð
RannsóknRéttindabrot á vinnumarkaði

Skugga­hlið ferða­mennsk­unnar: Draum­ur­inn á Íslandi breyt­ist í martröð

„Mér fannst eins og það væri komið fram við mig sem þræl úr þriðja heims landi,“ segir kona frá Póllandi um reynslu sína af því að starfa í ferða­þjón­ustu á Íslandi. Með örum vexti ferða­manna­iðn­aðar á Íslandi hafa skap­ast kjörnar aðstæður fyrir brot þar sem vinnu­veit­endur nýta sér van­þekk­ingu erlendra starfs­manna.
Flugfreyjur Icelandair skikkaðar í háa hæla
Úttekt

Flug­freyjur Icelandair skikk­aðar í háa hæla

Strangar reglur ríkja um útlit og klæða­burð starfs­manna hjá Icelandair en mis­mun­andi kröfur eru gerðar eftir því hvaða stöðu fólk gegnir. Flug­freyjur eiga að mæta til vinnu í háum hælum og vera með vara­lit alla vakt­ina. Læknir segir of mikla notkun á hæla­skóm geta verið heilsu­spill­andi og flug­freyja seg­ist oft hafa óskað þess að hafa val um að klæð­ast lág­botna skóm eftir erf­iða vakt.
Vinnur á kvöldin og um helgar samhliða leikskólastarfinu
Fréttir

Vinnur á kvöldin og um helgar sam­hliða leik­skóla­starf­inu

Sólveig Anna Jóns­dóttir, ófag­lærður leik­skóla­starfs­maður til átta ára, fær ein­ungis 240 þús­und krónur í útborguð laun. Hún vinnur í verslun á kvöldin og um helgar til að drýgja tekj­urnar. Leik­skólar borg­ar­innar standa frammi fyrir mik­illi mann­eklu og leggur Sólveig til að borg­ar­full­trúar stígi inn í fag­lega starfið sem unnið er á leik­skólum.
Skuggahliðar ferðamennskunnar
ÚttektFerðaþjónusta

Skugga­hliðar ferða­mennsk­unnar

Töluvert færri Íslend­ingar kusu að ferð­ast inn­an­lands í sumar miðað við und­an­farin ár. Fjölgun erlendra ferða­manna þrýstir upp verði og þá hefur átroðn­ingur á vin­sælum ferða­manna­stöðum valdið því að sífellt fleiri krefj­ast gjalds af ferða­mönnum sem vilja skoða íslenska nátt­úru. Þrátt fyrir að ferða­þjón­ustan hafi skapað fjöl­mörg störf er þess­ari nýju atvinnu­grein meðal ann­ars haldið uppi af illa laun­uðu starfs­fólki og jafn­vel erlendum sjálf­boða­liðum. Eru Íslend­ingar að verða lág­launað þjón­ustu­fólk fyrir lúxus-ferða­menn á meðan örfáir, útvaldir, græða?

Mest lesið undanfarið ár