Reyn­is­fjara Mynd: Heiða Helgadóttir

Skuggahliðar ferðamennskunnar

Töluvert færri Íslend­ingar kusu að ferð­ast inn­an­lands í sumar miðað við und­an­farin ár. Fjölgun erlendra ferða­manna þrýstir upp verði og þá hefur átroðn­ingur á vin­sælum ferða­manna­stöðum valdið því að sífellt fleiri krefj­ast gjalds af ferða­mönnum sem vilja skoða íslenska nátt­úru. Þrátt fyrir að ferða­þjón­ustan hafi skapað fjöl­mörg störf er þess­ari nýju atvinnu­grein meðal ann­ars haldið uppi af illa laun­uðu starfs­fólki og jafn­vel erlendum sjálf­boða­liðum. Eru Íslend­ingar að verða lág­launað þjón­ustu­fólk fyrir lúxus-ferða­menn á meðan örfáir, útvaldir, græða?

Ferða­þjón­usta er orðin stærsta atvinnu­grein Íslands. Erlendum ferða­mönnum fjölgar gríð­ar­lega ört en í byrjun þessa mán­aðar höfðu nærri milljón ferða­menn sótt Ísland heim, sem er 34 pró­senta aukn­ing frá því á sama tíma­bili í fyrra. Ferða­þjón­ustan er nú stærsta gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­grein þjóð­ar­innar og líkt og kom fram í ítar­legri úttekt Stund­ar­innar á síð­asta ári er auk­inn straumur ferða­manna til lands­ins tal­inn helsta ástæðan fyrir hinu nýja góð­æri sem nú ríkir á Íslandi. 

Með vax­andi fjölda ferða­manna skap­ast ný störf, ný sókn­ar­færi og nýjar leiðir til tekju­öfl­unar, en þessi nýja atvinnu­grein á sér einnig nokkrar skugga­hliðar. Innviðir lands­ins hafa til að mynda ekki verið nægi­lega styrktir til þess að mæta þessum aukna fjölda fólks sem ferð­ast um landið og má þar meðal ann­ars nefna aukið álag á heil­brigð­is­kerfið, vega­kerfið og vin­sæla ferða­manna­staði. Átroðn­ingur ferða­manna á við­kvæmum nátt­úruperlum hefur til að mynda orðið til þess að sífellt fleiri land­eig­endur hafa brugðið á það ráð að loka svæðum eða inn­heimta gjald fyrir aðgang að nátt­úr­unni. Um er að ræða eina stærstu breyt­ingu á ásýnd lands­ins í manna minnum sem hefur rýrt mjög mögu­leika almenn­ings á að ferð­ast um landið, enda sýna kann­anir að þeim fækkar ört sem kjósa að ferð­ast inn­an­lands á sumrin.

Starfs­fólki í ferða­þjón­ustu hefur fjölgað um 58 pró­sent á síð­ast­liðnum fjórum árum. Í flestum til­fellum er um lág­launa­störf að ræða, þjón­ustu­fólk sem hefur sjálft ekki efni á að ferð­ast um landið þar sem aukin eft­ir­spurn hefur þrýst upp verði á hús­næði og þjón­ustu hér á landi. Fáir græða, á meðan flestir þjóna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár