„Eins og farþegaflugvél hrapi daglega“

Yngri ald­urs­hópar eru í auknum mæli að verða alvar­lega veikir vegna breska afbrigðis veirunnar. Þótt fjöldi lát­inna í mörgum löndum jafn­ist á við hrap far­þega­flug­vélar dag­lega eru dán­ar­töl­urnar hættar að hreyfa við fólki.

Höfuðborgin París hefur orðið illa úti í þriðju bylgju faraldursins í Frakklandi.
Höf­uð­borgin París hefur orðið illa úti í þriðju bylgju far­ald­urs­ins í Frakk­landi. Mynd: EPA

Áhyggjur fara vax­andi í Frakk­landi vegna enn einnar bylgju far­ald­urs­ins sem þar er skoll­inn á af miklum þunga. Efa­semdir eru uppi um að stjórn­völd séu að gera nóg en þau hafa farið þá leið að beita stað­bundnum aðgerðum þar sem smit eru hvað útbreidd­ust. Þar, líkt og ann­ars staðar í Evrópu, er það hið stökk­breytta afbrigði veirunnar, kennt við Bretland, sem kynt hefur undir pestar­bál­inu.

[links]COVID-sjúkum sem leggj­ast hafa þurft inn á gjör­gæslu­deildir eru helsta áhyggju­efnið. Á einni viku fjölg­aði þeim um tíu pró­sent og sam­kvæmt opin­berum gögnum heil­brigð­is­yf­ir­valda er staðan nú þannig að um 90 pró­sent allra gjör­gæslu­rúma eru nýtt.

Benjamin Clouzeau, gjör­gæslu­læknir á Bordeaux-háskóla­sjúkra­hús­inu í suð­vest­ur­hluta Frakk­lands, segir að 90 pró­sent allra þeirra sem leggj­ast þar inn með COVID-19 séu sýktir af hinu breska afbrigði. Hann segir sjúk­linga­hóp­inn umtals­vert yngri en í fyrri bylgjum far­ald­urs­ins, flestir á aldr­inum 30-65 ára. Að hans sögn eru flestir þeirra ekki í sér­stökum skil­greindum áhættu­hópi. Ein­hverjir þeirra eru með syk­ur­sýki og aðrir í ofþyngd en það eigi aðeins við um mik­inn minni­hluta sjúk­ling­anna.

Svo ungir eru þessir sjúk­lingar að áður en þeir leggj­ast inn hafa þeir ekki hitt lækni vegna veik­inda sinna, að sögn Clouzeau, þar sem þetta sé upp til hópa ungt og hraust fólk sem hafi ætlað að hrista veik­indin af sér heima, „en svo örmagn­ast algjör­lega“.

[adspot]

Eftir að hafa glímt við far­ald­ur­inn í heilt ár eru margir orðnir ónæmir fyrir tölum um fjölda smita og dauðs­falla vegna COVID-19. Clouzeau bendir á að engu að síður séu þessar tölur ógn­vekj­andi í augna­blik­inu.

„Síð­ast­liðið ár hafa tölur um fjölda smita og dauðs­falla dunið á frönskum almenn­ingi,“ segir hann. „En við skiljum ekki alltaf hvað þessar tölur raun­veru­lega þýða: 300, 400 dauðs­föll á dag – það er eins og far­þega­flug­vél hrapi dag­lega. Þetta er hætt að snerta fólk.“

Það er ekki lengra síðan en fyrir nokkrum vikum að það var fyrst og fremst aldrað fólk sem var að deyja vegna COVID-19. „Núna eru dauðs­föllin [í Frakk­landi] 200-300 á dag en það er ekki lengur aðeins gamla fólkið sem er að deyja. Þetta er fólk sem átti enn eftir 30-40 ár af ævi sinni.“

Hann hvetur fólk því til að „venj­ast“ ekki þessum tölum, „því ef við gerum það er bar­áttan töpuð. Svo við skulum ekki gleyma: Flugslys á hverjum degi er stór­mál.“

Hinar hertu aðgerðir sem nýverið tóku gildi í Frakk­landi fela m.a. í sér að fólk má dvelja utan heim­ilis síns eins lengi og það vill, þó ekki að næt­ur­lagi og ekki fara í meira en tíu kíló­metra fjar­lægð frá því. Sex mega koma saman en ferða­lög milli svæða eru bönnuð nema að nauð­syn krefji. Flestar versl­anir eru lok­aðar en á því eru und­an­tekn­ingar. Skólar eru enn opnir en kvik­mynda­hús, söfn og fleira lokað.

Þessar aðgerðir eru tölu­vert væg­ari en í fyrri bylgjum far­ald­urs­ins í Frakk­landi og hafa stjórn­völd verið gagn­rýnd fyrir það því á sama tíma eru sjúkra­hús að fyll­ast af fár­veiku fólki.

Á hraðvaxtarskeiði

Solen Kernéis, smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ingur á Bichat-sjúkra­hús­inu í París sagði í sam­tali við AFP-frétta­stof­una að hann skyldi vel löng­un­ina til að hafa aðgerð­irnar svæð­is­bundnar „en í því ástandi sem við erum í núna þá er ég ekki sann­færður um að þær muni hægja á útbreiðsl­unni“. Hann segir síð­ustu vikur hafa verið sér­stak­lega slæmar og hefur áhyggjur af þróun næstu daga og vikna.

„Við erum á hrað­vaxt­ar­skeiði í far­aldr­inum.“

Heil­brigð­is­ráð­herra Frakka, Olivier Véran, varði þessa ákvörðun og sagði Frakka komna með nóg af mjög hörðum aðgerðum enda hafi þeir barist við far­ald­ur­inn sleitu­laust í heilt ár. Hann segir þó ekki úti­lokað að enn verði hert á aðgerðum.

Búið er að fresta um 80 pró­sent svo­kall­aðra val­að­gerða, þ.e. aðgerða ann­arra en bráða­að­gerða, á sjúkra­húsum í land­inu. Þá segir ráð­herr­ann að með­al­aldur sjúk­linga sem eru að leggj­ast inn með COVID-19 fari lækk­andi.

Jean Castex, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands, sagði í gær að nú „meira en nokkru sinni áður“ yrðu Frakkar að standa saman vegna hinnar „gríð­ar­lega öfl­ugu“ þriðju bylgju far­ald­urs­ins.

Tilfellum fjölgað hratt

Í fyrra­dag greindust um 45 þús­und ný til­felli í land­inu, 50 pró­sent fleiri en að með­al­tali dag­ana á undan.

Philippe Juvin, sem fer fyrir bráða­þjón­ustu á einu stærsta sjúkra­húsi Parísar, sagði fyrr í vik­unni að heil­brigð­is­kerfið í höf­uð­borg­inni og nágrenni væri komið að þol­mörkum og eina leiðin væri að herða aðgerðir enn frekar. „Ástandið er grafal­var­legt.“

Hann og fleiri læknar hafa sagt að það sem veki einna mestan ugg sé fjöldi yngra fólks, á aldr­inum 20-50 ára sem þarfn­ist sjúkra­húsinn­lagnar. Fjöldi fólks undir 60 ára sem lagt hefur verið inn hefur auk­ist um tæp 16 pró­sent frá byrjun árs og til dags­ins í dag. Hins vegar hefur fjöldi eldra fólks síður þurft inn­lögn en áður sem rakið er m.a. til árang­urs af bólu­setn­ingum í þeim ald­urs­hópi. Á ein­stökum sjúkra­húsum er fólk undir sex­tugu um helm­ingur allra COVID-veikra sem liggur inni sem er mun hærra hlut­fall en í fyrstu bylgj­unum.

[adspot]

Sér­fræð­ingar telja að þetta teng­ist hinu breska afbrigði veirunnar. „Ald­urs­sveiflan er sam­hliða útbreiðslu afbrigð­is­ins,“ hefur dag­blaðið Le Monde eftir Yves Cohen, for­stöðu­manni gjör­gæslu­deilda sjúkra­hús­anna í París.

Þá eru kenn­arar ósáttir við að skólum sé enn haldi opnum. Smit­stuð­ull veirunnar sé hár í augna­blik­inu og útbreiðslan því hröð.

Hið breska afbrigði er að knýja bylgjur far­ald­urs­ins víðar í Evrópu þessa dag­ana. Mið- og Austur-Evrópa hefur orðið hvað verst úti og í Ung­verja­landi er dán­ar­tíðni vegna COVID nú hæst allra landa ver­aldar. Tékkland fylgir þar á eftir.

Í Póllandi er ástandið einnig ískyggi­legt. Þar eru dag­leg smit nú í hæstu hæðum og yfir­völd hafa gripið til harðra aðgerða. Þau hafa m.a. lokað grunn- og leik­skólum, íþrótta­húsum og fjölda versl­ana sem veita ekki nauð­syn­lega þjón­ustu. Aðgerð­irnar munu standa í að minnsta kosti þrjár vikur og því yfir pásk­ana.

Í gær greindust yfir 34 þús­und ný til­felli en yfir tvær millj­ónir manna hafa sýkst í land­inu frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Tæplega 49 þús­und manns hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins. „Heil­brigð­is­kerfið okkar er að nálg­ast þol­mörk,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann Mateusz Morawiecki. „Við erum einu skrefi frá því að geta ekki sinnt sjúk­lingum almenni­lega. Við verðum að gera allt sem við getum til að forð­ast þá stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár