Þrír millljarðar í arð til eigenda Borgunar á tveimur árum

Ekki hafði verið greiddur arður út úr Borgun frá árinu 2007 þegar nýir eig­endur keypt hlut af Lands­bank­anum í lok árs 2014. Um 800 millj­ónir voru greiddar til hlut­hafa vegna þess árs og síðan 2,2 millj­arðar vegna 2015, sam­kvæmt ákvörðun hlut­hafa­fundar.

Borgun hefur greitt eig­endum sínum þrjá millj­arða í arð fyrir rekstr­ar­árin 2014 og 2015. Á aðal­fundi Borgun í gær var ákveðið að greiða 2,2 millj­arða í arð til hlut­hafa, vegna árs­ins 2015. Frá þessu var greint á vef Vísis í dag. Áður en kom til arð­greiðsl­unnar í fyrra, hafði ekki verið greiddur arður úr félag­inu frá árinu 2007.

Hagnaður af reglu­legri starf­semi Borgunar var 1,5 millj­arðar árið 2015. Þá var bók­færður hagn­aður vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa Visa Inter­national á Visa Europe upp á 5,4 millj­arða en stefnt er að ganga frá við­skipt­unum á fyrri hluta árs­ins.

Seldi fyrir 2,2 milljarða

Eins og kunn­ugt er seldi Lands­bank­inn, sem ríkið á ríf­lega 98 pró­sent hlut í, 31,2, pró­sent hlut í Borgun fyrir 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber 2014. Þetta var gert bak við luktar dyr í lok­uðu sölu­ferli, og voru þeir einu sem fengu að bjóða í hlut­inn.

Arð­greiðslur til hóps­ins sem keypti hlut Lands­bank­ans í Borgun nema 932 millj­ónum króna á tveimur árum.

Stærsti hlut­hafi í Borgun er Íslands­banki, sem ríkið á 100 pró­sent, en hann á 63,4 pró­senta hlut. Þá á Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun slf. á 29,38 pró­senta hlut og félagið BPS ehf., sem er í eigu starfs­manna Borgunar, á 5 pró­senta hlut.

Málsókn og athugasemdir FME

Lands­bank­inn ætlar að fara í mál vegna söl­unnar á eign­ar­hlut bank­ans í Borgun en bank­inn hefur falið lög­mönnum að und­ir­búa mál­sókn „til þess að end­ur­heimta þá fjár­muni sem bank­inn fór á mis við í við­skipt­un­um.“

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að verk­lag Lands­bank­ans við söl­una á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun í nóv­em­ber 2014 hafi ver­ið „áfátt og það heilt á litið ekki hafa verið til þess fallið að skila bestri nið­ur­stöðu fyrir bank­ann. Með vísan til þess er það mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að verk­lag bank­ans við sölu á eign­ar­hlut hans í Borgun hafi ekki að öllu leyt­i ­sam­ræmst eðli­legum og heil­brigðum við­skipta­háttum á fjár­mála­mark­að­i". Stofn­unin telur þó ekki til­efni til að grípa til frek­ari aðgerða að svö stöddu þar sem Lands­bank­inn hafi þegar til­kynnt, að eigin frum­kvæði, að hann ætli að grípa til aðgerða vegna máls­ins. Þetta kemur fram ínið­ur­stöðu athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á við­skipta­háttum Lands­bank­ans vegna söl­unnar á Borgun sem birt var 31. mars.

Skiptist í þrjá flokka

Stofnfé Eign­ar­halds­fé­lags Borg­unar, sem nú á 29,43 pró­sent hlut, nam 500 þús­und krónum sem skipt­ist í þrjá flokka, 100 þús­und í A flokki, 395 þús­und í B flokki og fimm þús­und í C flokki. Í A og B flokki eru eig­endur stofn­fjár með tak­mark­aða ábyrgð en í C flokki er ótak­mörkuð ábyrgð.

Einu eig­endur A flokks stofn­fjár er félagið Orbis Borg­unar slf. Eig­endur B flokks hluta­bréfa Eign­ar­halds­fé­lags Borg­unar eru þrettán tals­ins, sam­kvæmt samn­ingi um sam­lags­fé­lagið sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stál­skip ehf., þar sem Guð­rún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­andi þess er Einar Sveins­son í gegnum móð­ur­fé­lagið Chara­m­ino Hold­ings Limited sem skráð er á Lúx­em­borg.

Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sig­valdi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sig­ur­þór Stef­áns­son er í for­svari, Egg­son ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jak­obína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sig­ríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spect­a­bilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Stofn­fundur í októ­ber 2014

Sam­kvæmt stofn­fund­ar­gerð félags­ins, frá 23. októ­ber 2014, voru fjórir ein­stak­lingar mættir fyrir hönd félag­anna Orbis Borg­unar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eig­endur stofn­fjár í C flokki með ótak­mark­aða ábyrgð. Þau sem mættu á fund­inn fyrir hönd félag­anna voru Magnús Magn­ús­son, Óskar V. Sig­urðs­son, Jóhann Bald­urs­son og Mar­grét Gunn­ars­dótt­ir.

Bankaráðið hætt

Mikill titr­ingur hefur verið vegna sölu Lands­bank­ans á fyrr­nefndum hlut í Borgun, og gagn­rýndi Banka­sýsla rík­is­ins banka­ráðið og banka­stjór­ann, Steinþór Pálsson, harka­lega. Lárus Blöndal, for­maður Banka­sýsl­unnar, kom þeim til skila­boðum til Tryggva Páls­sonar, for­manns banka­ráðs­ins, að það ætti allt að víkja og Steinþór sömu­leiðis. Tryggvi hefur sjálfur sagt, að það hafi verið mis­tök að aug­lýsa hlut­inn ekki til sölu, hins vegar hafi aðeins góður hugur verið að baki, og hags­munir bank­ans látnir ráða för. Ferlum við sölu á eignum hefur nú verið breytt, þannig að aukið gagn­sæli er í allri eigna­um­sýslu bank­ans.

Kosið verður form­lega nýtt banka­ráð á morgun, eftir að kosn­ingu um það var frestað. Aðalmenn í banka­ráði eru sam­kvæmt til­lögu Helga Björk Eiríks­dóttir, for­maður, Berglind Svav­ars­dóttir, Danielle Pamela Neben, Hersir Sig­ur­geirs­son, Jón Guðmann Pét­urs­son, Magnús Pét­urs­son og Einar Þór Bjarna­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár