Dauðsföllum vegna COVID-19 fækkaði um 20 prósent milli vikna

Bæði dauðs­föllum vegna COVID-19 og nýjum til­fellum af sjúk­dómnum fer fækk­andi á heims­vísu. Í síð­ustu viku greindust 2,4 millj­ónir nýrra smita, 11 pró­sentum minna en í vik­unni á undan.

Harðar takmarkanir víða um lönd sem og bólusetningarherferðir hafa skilað því að smitum og dauðföllum vegna COVID-19 fer hratt fækkandi.
Harðar tak­mark­anir víða um lönd sem og bólu­setn­ing­ar­her­ferðir hafa skilað því að smitum og dauð­föllum vegna COVID-19 fer hratt fækk­andi. Mynd: EPA

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) segir í til­kynn­ingu á vef sínum að dauðs­föllum vegna COVID-19 á alþjóða­vísu hafi fækkað um 20 pró­sent í síð­ustu viku miðað við vik­una á undan. Þá hefur nýjum til­fellum af sjúk­dómnum fækkað sex vikur í röð og um 11 pró­sent milli tveggja síð­ustu vikna.

Í síð­ustu viku greindust 2,4 millj­ónir nýrra til­fella af COVID-19 í heim­inum sam­kvæmt opin­berum gögnum sem WHO vísar til. Dauðs­föll vegna sjúk­dóms­ins voru 66 þús­und á alþjóða­vísu.

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 110,7 milljón til­felli greinst og 2,4 millj­ónir manna lát­ist vegna COVID-19.

Tvennt skýrir þetta fyrst og fremst. Hin mikla bylgja far­ald­urs­ins sem kom í kjöl­far jóla og ára­móta er í rénun vegna hertra tak­mark­ana víðs­vegar um heim­inn. Þá eru bólu­setn­ingar hafnar, sér­stak­lega í Evrópu og Banda­ríkj­unum, sem talið er að hafi þegar haft áhrif á útbreiðslu far­ald­urs­ins.

Enn eru flest smitin að grein­ast í Banda­ríkj­unum en þó fækk­aði þeim um heil 29 pró­sent á milli vikna. Á Indlandi hélt nýjum til­fellum hins vegar áfram að fjölga á sama tíma­bili eða um 10 pró­sent.

Smitum í Evrópu fækk­aði um sjö pró­sent milli vikna og dauðs­föllum um 19 pró­sent.

WHO varar í viku­legu frétta­bréfi sínu sér­stak­lega við nýjum afbrigðum veirunnar, afbrigðum sem smit­ast meira en önnur og hafa jafn­vel þá eig­in­leika að kom­ast fram­hjá ónæm­is­vörnum lík­am­ans og vís­bend­ingar eru um að fólk sem sýkst hefur af öðrum og eldri afbrigðum veirunnar geti sýkst aftur.

Yfir 500 þús­und afbrigði hafa greinst af veirunni í heim­inum. Þau afbrigði sem vekja áhyggjur hafa stökk­breyt­ingar í gadda­pró­tín­inu sem veldur því að veiran kemst auð­veldar inn í frumur lík­am­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár