Traust til Seðlabanka Íslands hríðfellur milli ára en traust til Alþingis eykst lítillega

Traust almenn­ings til níu stofn­ana dregst saman milli ára. Mest dregst það saman gagn­vart Seðla­banka Íslands, alls um tíu pró­sentu­stig. Embætti for­seta Íslands og heil­brigð­is­kerfið tapa líka tölu­verðu trausti en lög­reglan bætir vel við sig.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Alls bera 36 pró­­sent lands­­manna traust til Alþingis sam­­kvæmt nýjum þjóð­­ar­púlsi Gallup sem mælir árlega traust til stofn­anna sam­­fé­lags­ins. Það eykst um tvö pró­­sent­u­­stig milli ára og hefur auk­ist um 18 pró­sentu­stig á þremur árum. en Alþingi er samt sem áður í fjórða neðsta sæti yfir þær stofn­­anir sem almenn­ingur treystir minnst. Traustið hefur enn ekki náð þeim hæðum sem það var í fyrir banka­hrun, en í síð­ust mæl­ingu Gallup fyrir það, sem fram­kvæmd var snemma árs 2008, mæld­ist traust þjóð­ar­innar til Alþingis 42 pró­sent.

Fyrir neðan Alþingi eru ein­ungis annað stjórn­­­vald, borg­­ar­­stjórn Reykja­víkur (21 pró­­sent traust), banka­­kerfið (23 pró­­sent) og þjóð­kirkjan (29 pró­sent). Allar þrjár stofn­an­irnar tapa trausti á milli ára. Traust til borg­ar­stjórnar, sem lækkar um eitt pró­sentu­stig milli ára, er þó enn nokkuð meira en það var 2020 (17 pró­sent) og miklu meira en það mæld­ist snemma árs 2008, þegar það mæld­ist níu pró­sent. Það er í eina skiptið sem stjórn­vald hefur mælst með undir tíu pró­sent traust í mæl­ingum Gallup. Þá hafði gengið mikið á í borg­­ar­­stjórn en alls fjórir meiri­hlutar sátu við völd það kjör­­tíma­bil.

Traustið lag­að­ist hægt og rólega og árin 2014 og 2015, við lok borg­­ar­­stjórn­­­ar­­fer­ils Jóns Gnarr og við upp­­haf borg­­ar­­stjórn­­­ar­­fer­ils Dags B. Egg­erts­­son­­ar, mæld­ist það 31 pró­­sent.

Það hefur oft­ast nær dalað á und­an­­förnum árum og er þá þróun ugg­­laust hægt að rekja til harð­vít­ugra átaka meiri­hluta og minn­i­hluta á vett­vangi borg­­ar­­stjórnar um flest mál sem þangað rata.

[adspot]Almennt hefur traust til stofn­anna íslensks sam­fé­lags dreg­ist saman milli ára. Alls dregst það saman gagn­vart níu stofn­unum, eykst gagn­vart fjórum og stendur í stað gagn­vart einni.

Mest dregst traustið saman gagn­vart Seðla­banka Íslands, um tíu pró­sentu­stig milli ára og nú treysta 52 pró­sent honum vel. Það er breyt­ing frá þeirri þróun sem orðið hafði árin áður. Milli áranna 2019 og 2021 tvö­fald­að­ist það og mæld­ist í lok þess síð­ar­nefnda 61 pró­sent. Þetta gerð­ist sam­hliða seðla­banka­stjóra­skiptum sem urðu árið 2019 þegar Ásgeir Jóns­­son tók við starf­inu af Má Guð­­munds­­syni, sem hafði gegnt því í ára­tug. Auk þess var Fjár­­­mála­eft­ir­litið sam­einað Seðla­­bank­­anum í byrjun árs 2020. Stýri­vextir lækk­uðu mikið framan af stjórn­ar­tíð Ásgeirs og voru 0,75 pró­sent, sem er það lægsta sem þeir höfðu nokkru sinni ver­ið, í upp­hafi síð­asta árs. Sú lækk­un­ar­hrina leiddi til þess að fjár­magns­kostn­aður heim­ila og fyr­ir­tækja hefur lækkað mik­ið. Stór­aukin verð­bólga, sem nú stendur í 6,2 pró­sent, hefur hins vegar leitt af sér skarpa hækkun á stýri­vöxtum með til­heyr­andi við­bót­ar­kostn­aði fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki. Þeir eru nú 2,75 pró­sent.

Heilbrigðiskerfið og forsetinn tapa trausti

Traust til heil­brigð­is­kerf­is­ins dregst líka umtals­vert saman milli ára, um átta pró­sentu­stig, en er samt sem áður 71 pró­sent. Sömu sögu er að segja um traust til emb­ættis for­seta Íslands, sem Guðni Th. Jóhann­es­son gegnir. Nú segj­ast 73 pró­sent lands­manna treysta því emb­ætti sem er sjö pró­sentu­stigum minna en í fyrra. Þá var for­seta­emb­ættið í öðru sæti yfir þær stofn­anir sem fólk treysti best en það fellur nú niður í fjórða sætið.

Dóms­kerfið tapar líka umtals­verðu trausti milli ára, alls sex pró­sentu­stigum, og nú segj­ast 40 pró­sent lands­manna bera mikið traust til þess.

Sú stofnun sem bætir við sig mestu trausti milli ára er lög­reglan, en alls segj­ast 78 pró­sent lands­manna treysta henni vel. Það er sjö pró­sentu­stigum meira en í fyrra. Land­helg­is­gæslan hefur árum saman verið sú stofnun sem nýtur mest trausts í sam­fé­lag­inu og á því er engin breyt­ing nú. Alls segj­ast 87 pró­sent aðspurðra í könnun Gallup að þeir beri mikið traust til hennar, sem er einu pró­sentu­stigi meira en í fyrra.

Eina stofn­unin sem stendur í stað á milli ára í traust­mæl­ing­unni er Háskóli Íslands. Hann er í þriðja sæti yfir þær stofn­anir sem þjóðin treystir best og nýtur trausts alls 77 pró­sent lands­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár