Misheppnuð einkarekin öldrunarþjónusta

Fyrir tveimur árum tóku gildi í Danmörku lög sem heim­ila einka­fyr­ir­tækjum að ann­ast heima­að­stoð við aldr­aða, og rekstur hjúkr­unar- og dval­ar­heim­ila, með ódýr­ari hætti en áður. Fram til þess tíma var í gildi sér­stök gjald­skrá sem gilti fyrir sveit­ar­fé­lögin og fyr­ir­tæki sem önn­uð­ust starf­sem­ina með þjón­ustu­samn­ingi. Einka­fyr­ir­tæki sem buðu í og fengu verkin fara nú hvert af öðru í þrot og sveit­ar­fé­lögin sitja uppi með vand­ann og auk­inn kostnað.

Töldu sig geta boðið það sama fyrir minna fé


Í Danmörku, eins og mörgum öðrum löndum, fjölgar öldruðum ört. Það þýðir jafn­framt aukin útgjöld ríkis og sveit­ar­fé­laga. Mörg dönsk sveit­ar­fé­lög berj­ast í bökkum og þurfa að horfa í hverja krónu. Þau gripu því feg­ins hendi tæki­færið þegar skyndi­lega varð heim­ilt að bjóða aðstoð við aldr­aða og öryrkja út, lögin tóku til heima­að­stoðar og rekstur heim­ila fyrir aldr­aða ásamt svo­nefndri dagdvöl.

Sveit­ar­fé­lögin efndu til útboða og allt benti til að þeir sem höfðu haldið því fram að einka­fyr­ir­tæki gætu sinnt þess­ari þjón­ustu með ódýr­ari hætti hefðu rétt fyrir sér. Tilboðin sem bár­ust virt­ust hag­stæð, fjöl­miðlar töl­uðu um umtals­verðan sparnað. Sumir stjórn­mála­menn hrósuðu þessu nýja fyr­ir­komu­lagi og sögðu það gott dæmi um rekstur sem sveit­ar­fé­lögin ættu ekki að vera að vasast í, aðrir höfðu efa­semdir.

Margir vildu grípa gæsina


Margir sótt­ust eftir verk­efn­unum, þar var bæði um að ræða fyr­ir­tæki sem þegar sinntu slíku og ný fyr­ir­tæki sem hugð­ust hasla sér völl á þessum vett­vangi. Sum þeirra fyr­ir­tækja sem buðu í þjón­ust­una ætl­uðu sér stóra hluti, buðu í mörg verk og réðu tugi fólks til starfa. Mörg minni fyr­ir­tæki voru líka meðal til­boðs­gjaf­anna, jafn­vel með örfáa starfs­menn.

Allir gerðu sér vonir um að hagn­ast á þessu nýja fyr­ir­komu­lagi, bæði sveit­ar­fé­lögin og þjón­ustu­fyr­ir­tækin. Fyr­ir­tækin réðu til sín margt af því fólki sem áður hafði unnið hjá sveit­ar­fé­lög­unum og kunni því vel til verka. Laun fylgdu kjara­samn­ingum.

Ætlað að hlaupa hraðar


Efa­semd­ar­menn sögðu að ef fyr­ir­tækin gætu ann­ast þessa þjón­ustu við aldr­aða og sjúka á ódýr­ari hátt en sveit­ar­fé­lögin hlyti það að þýða að starfs­fólk­inu væri ætlað að hlaupa hraðar en áður, ekki væri hægt að lækka kostn­að­inn með öðrum hætti. Færra fólki en áður yrði ætlað að inna af hendi störfin, það hlyti að vera eina leiðin til að láta dæmið ganga upp. Talsmenn nokk­urra stórra fyr­ir­tækja í þessum rekstri sögðu að það væri hægt að beita margs konar hag­ræð­ingu og menn skyldu anda rólega: þetta gengi allt saman upp.

Fljót­lega kom í ljós, eins og ýmsa hafði grunað, að starfs­fólk­inu var ætlað að sinna mun fleiri verk­efnum en áður. Hlaupa hraðar eins og það er gjarna kallað. En það að reima betur á sig hlaupa­skóna hrökk ekki til.

Gjaldþrotaskýin hrannast upp


Árið 2013 var ekki á enda runnið þegar fyrstu fyr­ir­tækin í heima­þjón­ust­unni lögðu upp laupana. Þá var komið í ljós að tekj­urnar af rekstr­inum dugðu ekki fyrir útgjöld­unum. Til­boðs­sér­fræð­ingar fyr­ir­tækj­anna höfðu ein­fald­lega ekki reiknað rétt og hug­myndir um hag­ræð­ingu og hag­kvæmara vinnu­lag stóð­ust ekki.

Tæplega tutt­ugu fyr­ir­tæki hafa orðið gjald­þrota síðan þetta nýja fyr­ir­komu­lag var tekið upp og mörg til við­bótar standa mjög tæpt. Gjald­þrotin snerta tug­þús­undir fólks.

Þetta er ekki eins og að reka bílaverkstæði


Þannig komst stjórn­ar­maður í Samtökum eldri borg­ara að orði í blaða­við­tali. „Ef þú ætlar að láta smyrja bíl­inn og verk­stæðið er lokað ferðu bara á næsta verk­stæði, þar er örugg­lega opið og nóg til af smur­olíu. Heima­að­stoð er ann­ars eðlis,“ bætti hann við. Hann sagði jafn­framt að öryggi og festa sé það sem aldr­aðir og sjúkir óski framar öllu og fréttir af gjald­þrotum og rekstr­ar­erf­ið­leikum valdi þeim ugg.

Sveit­ar­fé­lögin eiga engra kosta völ þegar umönn­un­ar­fyr­ir­tækin kom­ast í þrot, þau verða að bjarga málum. Skyndi­lausnin er oft sú að fá fyr­ir­tæki og ein­stak­linga til að hlaupa í skarðið, slík lausn kostar pen­inga og dugir ekki til fram­búðar. Sum sveit­ar­fé­lög hafa aftur tekið upp gamla fyr­ir­komu­lagið „óþörf og dýr kennslu­stund að baki,“ sagði einn bæj­ar­stjóri í við­tali við dag­blaðið Politi­ken.

Vilja skýrar reglur um útboð


Margir hafa lýst áhyggjum vegna ástands­ins, þar á meðal Samtök Iðn­að­ar­ins, Dansk Industri. Þar á bæ vilja menn að settar verði skýrar reglur um allt sem varðar útboð á þess­ari starf­semi. Sveit­ar­fé­lögin skuli ein­blína að lægsta til­boðið heldur taka til­lit til og skoða fjár­hags­stöðu þeirra sem vilja taka umönn­un­ina að sér. Stjórn Danska Alþýðu­sam­bands­ins hefur tekið i sama streng og fleiri stór sam­tök hafa lýst sömu skoðun.

Getur einkavæðing alltaf borgað sig?


Ofan­greind setn­ing var yfir­skrift fyr­ir­lestrar sem Bent Greve pró­fessor við Háskól­ann í Hró­arskeldu hélt fyrir nokkrum dögum. Tilefni fyr­ir­lestr­ar­ins var sú staða sem sveit­ar­fé­lög víða í Danmörku standa frammi fyrir varð­andi heima­að­stoð og rekstur dval­ar­heim­ila. Nið­ur­staða pró­fess­ors­ins var sú að margt væri betur komið í höndum einka­að­ila en hins opin­bera, hvort sem það væri ríki eða sveit­ar­fé­lög. Annað, eins og til dæmis rekstur sjúkra­húsa, hjúkr­un­ar­heim­ila og líkra stofn­ana væri best komið í höndum hins opin­bera.

Pró­fess­or­inn sagði líka að það væri athygl­is­vert að ekki hefði farið fram nein athugun á hag­kvæmni þess að að sú starf­semi sem hér hefur verið rætt um sé í höndum einka­að­ila. „Það er eins og þeir sem ráða hafi gengið út frá því sem vísu að ákvarð­anir um útboð og einka­rekstur væru hinar einu réttu. Við vitum mörg dæmi þess að einka­rekstur gangi vel og það er gott. Hin dæmin eru líka mörg, of mörg, og þetta með heima­þjón­ust­una og dval­ar­heim­ilin er sorg­legt dæmi um mál sem ekki var hugsað til enda,“ sagði pró­fess­or­inn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár