Loftslagsmarkmiðin munu ekki nægja til að ná markmiðum SÞ

Þær áætl­anir sem rík­is­stjórnir heims­ins hafa þegar skilað til Lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, fyrir fund­inn í París í des­em­ber (COP 21) duga ekki til að ná mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna í lofts­lags­málum, ef marka má gögn Climate Action Tracker. Framlag Íslands, í slag­togi við Evr­ópu­sam­bandið og Noreg, er metið hóf­legt.

Mark­miðið er að hægja á hlýnun lofts­lags á jörð­inni þannig að það fari ekki 2°C yfir með­al­hita­stig jarðar fyrir iðn­bylt­ingu. Miðað við þau gögn og þær áætl­anir sem ríki heims hafa þegar sett sér verður þessu mark­miði ekki náð og með­al­hiti jarðar fara yfir þrjár gráður árið 2100.

Climate Action Tracker er sjálf­stætt vís­inda­legt grein­ing­ar­tól á vegum fjög­urra stofn­ana sem halda utan um aðgerðir og vænt­ingar heims­ins í lofts­lags­málum. Með því að magn­greina heild­ar­á­hrif núgild­andi stefnu stjórn­valda og mark­miða þeirra í lofts­lags­málum má bera afleið­ing­arnar saman við mark­miðin, 2°C eða 1,5°C hlýnun árið 2100. 32 ríki eru tekin með í vísi­töl­una en saman bera þau ábyrgð á 80 pró­sent alls útblást­urs í heim­inum og þar búa 70 pró­sent mann­kyns.

[caption id="attachment_39594" align="alignnone" width="100%"] Hér má sjá nið­ur­stöður Climate Action Tracker graf­ískt. Rauða línan sýnir vænt­an­lega þróun miðað við mark­mið ríkja heims­ins, græna línan sýnir æski­lega þróun og bláa lína sýnir afleið­ingar óbreyttrar stefnu­mót­unar.[/caption]

Núgild­andi stefna stjórn­valda í heim­inum munu gera lofts­lag á jörð­inni 3,9°C hlýrra en fyrir iðn­bylt­ingu árið 2100. Vik­mörkin í þessum spám eru nokkuð stór: Efri mörkin eru 5,2°C en neðri mörkin 2,9°C. Standi ríki heims hins vegar við fram­lögð mark­mið sín má vænta þess að með­al­hit­inn verði 3,1°C hærri. Vik­mörkin eru minni: Efri mörkin eru 3,8°C en þau neðri 2,5°C.

Áætlanir og mark­mið ríkja heims­ins sem þegar hafa skilað mark­miðum sínum fyrir COP21 munu að öllum lík­indum hafa nokkur áhrif á hlýnun jarðar. Þær duga hins vegar ekki til að ná mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Climate Action Tracker sér þó ástæðu til að benda á hvatana sem liggja að baki því að halda hlýnun undir tveimur gráðum. „Sem betur fer sýnir IPCC 5AR (fimmta úttekt­ar­skýrsla þver­þjóð­legrar nefnd um lofts­lags­mál) að enn frek­ari aðgerðir sem nægi til að halda hlýnun undir 2°C er tækni­lega og efna­hags­lega fýsi­leg,“ segir á vef Climate Action Tracker. Samkvæmt skýrslu nefnd­ar­innar er kostn­að­ur­inn við að halda hlýnun í skefjum hóf­legur, jafn­vel áður en hlið­ar­verk­anir eru teknar með í reikn­ing­inn; aukið orku­ör­yggi og heilsu­fars­legar umbætur vegna minni loft­meng­unar.

Þann 1. sept­em­ber, þegar þessar nið­ur­stöður voru teknar saman, höfðu þau lönd sem bera ábyrgð á 65 pró­sent alls útblást­urs í heim­inum skilað mark­miðum sínum eða 29 ríki. Kjarninn sagði svo frá könnun New Climate Institute hinn 7. sept­em­ber þar sem kom fram að búist er við að 76 pró­sent alls útblást­urs verði búið að setja mark­mið um í lok sept­em­ber.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Inn­leið­ing end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa á borð við Hell­is­heið­ar­virkjun er ein meg­in­stoða áætl­ana um minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið. (Mynd: Birgir Þór).[/caption]

Markmið Íslands og Evrópu metin hófleg

Markmið Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) um 40 pró­sent minni útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda árið 2030 miðað við árið 1990 er metið hóf­legt af Climate Action Tracker. Markmið Evr­ópu­sam­bands­ins falla þar í hóp með Brasilíu, Kína, Banda­ríkj­unum, Indlandi og Indónesíu. Öll eru meðal stærstu eða mest vax­andi iðn­velda heims.

Ísland og Noregur fylgja ESB í þessum efnum og fylgja sömu mark­miðum. Um mark­mið ein­stakra ríkja verður svo samið í fram­hald­inu. Ísland er ekki meðal þeirra 32 landa sem tekin eru til greina í spánni og þess vegna eru nýj­ustu upp­lýs­ingar um Ísland síðan í nóv­em­ber 2013. Þar er mark­mið Íslands metið hóg­vært og ekki nægi­legt fram­lag til að stemma stigu við hlýnun jarðar.

Í úttekt­inni um Ísland eru lang­tíma­mark­mið okkar listuð sem sam­kvæmt vef Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins eru enn 50-75 pró­sent minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda árið 2050 miðað við losun árs­ins 1990. Það er mark­mið sem sett var árið 2007 og má lesa um for­sendur þess mark­miðs í nið­ur­stöðum sér­fræð­inga­nefndar á vegum Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins frá 2009 . Annars eru mark­mið Íslands byggð á los­un­ar­kvótum Kýóto-bók­un­ar­innar sem rennur út árið 2020. Í Umhverf­is­ráðu­neyt­inu er nú unnið að und­ir­bún­ingi fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í París og mark­mið og áætl­anir upp­færðar í sam­ræmi við það.

Lang­tíma­mark­mið ESB í loftlsags­málum er að minnka losun um 80-95 pró­sent árið 2050 miðað við losun árs­ins 1990. Aðeins eitt ríki af þessum 32 löndum sem reiknuð eru með í spá Climate Action Tracker fær ein­kun­ina „fyr­ir­mynd“. Það er Bútan en þar er lang­tíma­mark­miðið að losa engar gróð­ur­húsa­loft­teg­undir.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að hér er fjallað um eitt af mörgum verk­efnum ráð­stefn­unnar í París í des­em­ber. Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna styðst við tvö lyk­il­hug­tök þegar stefna mann­kyns­ins er mörkuð í þessum mála­flokki. Það er mildun (e. mitigation) og aðlögun (e. adaptation). Það er mik­il­vægt fyrir heim­inn að milda áhrif mann­kyns á lofts­lag jarðar en það er einnig ljóst að mann­kynið verður að aðlag­ast breyttum aðstæðum vegna hlýn­unar jarðar.

Löndin og einkunir landanna 32

Ein­kunna­þrepin eru þrjú í spá Climate Action Tracker. Á kort­inu merkir dökk­grænn ein­kun­ina „Full­nægj­andi“, ljós grænn merkir „Nægilegt“, gulur merkir „hóf­legt“ og þau lönd sem merkt eru með rauðum lit fá ein­kun­ina „Ófull­nægj­andi“. Fjólu­bláu löndin höfðu enn ekki skilað mark­miðum sínum og eru því ekki reiknuð með í spánni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár