Kólumbía 59. landið til að skila markmiðum í loftslagsmálum

Kólumbía hefur skilað lofts­lags­mark­miðum sínum til lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem fer fram í París í des­em­ber. Kólumbía varð um leið 59. landið til að skila slíkum mark­miðum af þeim 165 löndum sem koma til með að und­ir­rita hugs­an­legt lofts­lags­sam­komu­lag.

Á ráð­stefn­unni í París er mark­miðið að kom­ast að bind­andi sam­komu­lagi um að minnka losun koltví­oxíðs út í and­rúms­loftið og hægja á hlýnun jarðar. Ætlast er til þess að öll löndin skili eigin mark­miðum í lofts­lags­málum og á þeim grunni verði kom­ist að sam­komu­lagi. Það er önnun nálgun en gerð var á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Kaup­manna­höfn árið 2009, þegar reynt var að semja um útblást­urs­heim­ildir hvers ríkis.

Frestur til að skila mark­miðum rennur út um næstu mán­að­ar­mót. Samkvæmt könnun New Climate Institute frá 1. sept­em­ber er búist við að 45 lönd skili mark­miðum sínum í sept­em­ber, 16 í októ­ber, sex í nóv­em­ber og eitt í des­em­ber eða eftir að ráð­stefnan hefst. Flest iðn­vædd og þróuð ríki hafa þegar skilað sínum mark­miðum en svo­kall­aður mjúkur skila­frestur þess­ara landa rann út í lok mars.

Þegar hafa þau lönd sem bera ábyrgð á helm­ingi alls útblást­urs koltví­oxíðs í heim­inum skilað lofts­lags­mark­miðum. Samkvæmt könnun New Climate Institute er búist við að 76 pró­sent alls útblást­urs verði búið að setja mark­mið um í lok sept­em­ber.

[caption id="attachment_38449" align="alignnone" width="1024"] Bogóta, höf­uð­borg Kólumbíu, er stað­sett langt frá strönd­inni, handan fjalla, í 2.640 metra hæð yfir sjáv­ar­máli.[/caption]

Sam­komu­lagið sem stefnt er að á ráð­stefn­unni í París tekur gildi árið 2020. Meg­in­mark­mið sam­komu­lags­ins er að öll lönd heims­ins taki höndum saman við að koma í veg fyrir að með­al­hiti jarðar hækki um tvær gráður, miðað við það sem var fyrir iðn­bylt­ingu (um alda­mótin 1800).

Helstu afleið­ingar hlýn­unar jarðar fyrir Kólumbíu eru hverf­andi jöklar og óhjá­kvæm­li­lega rýr­ari vatns­bú­skapur. Í Kólumbíu hefur minna vatn áhrif á raf­orku­fram­leiðslu lands­ins. Talið er að ef sama þróun heldur áfram og hefur verið síðan 1990 verði allir jöklar land­ins horfnir á næstu 100 árum.

Þá hefur hækk­andi yfir­borð sjávar gríð­ar­leg áhrif í Kólumbíu. Hækki sjáv­ar­borð að jafn­aði um einn metra mun það sökkva nærri 5.000 fer­kíló­metrum lands og neyða 1,4 milljón manns til að flytja á brott. Auk þess munu meira en 7 millj­ónir hekt­ara rækt­ar­lands hverfa í hafið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár