Hryllingurinn í Las Vegas

Enn ein skotárásin í Banda­ríkj­unum. Ein sú alvar­leg­asta í sögu Banda­ríkj­anna. Meira en 50 lét­ust og 500 særð­ust í byssu­kúluregni af 32. hæð hót­el­bygg­ingar í nágrenni við tón­leika. Ólýs­an­leg skelf­ing, sagði lög­reglu­stjór­inn í Vegas.

Meira en 58 manns lét­ust og yfir 500 særð­ust í skotárás á tón­leika­gesti á úti­tón­leikum í Las Vegas í nótt. Um leið og skot­hríðin hófst, og tón­leika­gestir átt­uðu sig á hryll­ingnum sem var að eiga sér stað, hlupu þús­undir manna um skelf­ingu lostnir og reyndu að forða sér undan byssu­kúlum.

Blóð og neyðaróp

Þær komu frá byssu­manni á hót­eli í nágrenni, Mandalay Bay Resort.

Árásin hófst þegar kán­trý tón­list­ar­mað­ur­inn Jason Aldean var að flytja lög sín á Route 91 Harvest Festival tón­list­ar­há­tíð­inni, um klukkan 22:10. Allt í einu hófst hávær skot­hríð og skelf­ing greip tón­leika­gesti.

Aldean hljóp af svið­inu og öll hljóm­sveit hans sömu­leiðis. Gæslu­menn á tón­leika­staðnum reyndu að aðstoða fólk við að kom­ast í burtu í fyrstu, en síðan varð ljóst að þeir þurftu að taka til fót­anna til að lifa af. Byssu­kúl­unum rigndi, blóð og neyð­aróp fólks voru það sem helst ein­kenndi stað­inn þar sem fólk kom saman til að skemmta sér.

Samkvæmt frá­sögn New York Times liðu ein­ungis nokkrar mín­útur þar til fyrstu lög­reglu­menn komu á stað­inn, og síðan tóku sér­sveit­arteymi lög­regl­unnar að birt­ast, og þræða nágrenni tón­leika­stað­ar­ins með byssu­hlaupin fyrir framan sig í leit að árás­armann­inum.

Einn þeirra sem varð vitni að því að þegar skot­hríðin hófst, var Eiríkur Hrafns­son, starfs­maður NetApp og stofn­andi Greenqloud, en hann var í hópi íslenskra starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins staddur á Mandalay Bay hót­el­inu. Hann lýsti upp­hafi atburð­ana á Twitter og þar sést meðal ann­ars þegar mann­fjöld­inn á tón­leik­unum - sem alls taldi um 22 þús­und manns - tvístrað­ist á örskots­stundu þegar skot­hríðin var hafin.

Heimamaður með fjölda riffla

Maðurinn sem stóð fyrir árásinni hafði komið sér fyrir á 32. hæð Mandalay Bay hót­els­ins þar sem hann gat óáreittur skotið með sjálf­virkum riffli - sem eru lög­legir í Nevada - í átt að mann­fjöld­anum.

Samkvæmt frá­sögn Washington Post voru í það minnsta tíu rifflar inn á her­bergi manns­ins þegar sér­sveit­ar­menn brutu sér leið inn, en fregnir af teg­und vopna og nákvæmum fjölda hafa ekki verið stað­festar af lög­reglu. Maðurinn, 64 ára gam­all heima­maður að nafni Stephen Craig Paddock, skaut sig að lokum. Þannig lauk þess­ari skelf­ingu; með dauða árás­armann­ins.

Af þeim ríf­lega 500 sem særð­ust eru margir alvar­legra særðir og allt eins lík­legt að tala lát­inna eigi eftir að hækka mikið.

Þetta er ein alvar­leg­asta skotárás sem átt hefur sér stað í sögu Banda­ríkj­anna, og hafa aldrei jafn margir særst í fjölda­skotárás, sem þó hafa verið tíðar í gegnum tíð­ina í Banda­ríkj­unum.

Inn á herbergi síðan á fimmtudag

Paddock er sagður hafa verið einn að verki en hann hafði aldrei komið við sögu lög­reglu áður, nema vegna smá­vægi­legra hluta í tengslum við eft­ir­lit lög­reglu. Hann var búinn að dvelja á her­bergi sínu á hót­el­inu fyrr­nefnda síðan á fimmtu­dag í síð­ustu viku.

Enginn starfs­manna hót­els­ins er sagður hafa áttað sig á því að hann væri með öll þessi skot­vopn inn á her­bergi hans, og ekk­ert grun­sam­legt hafði komið fram.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði í yfir­lýs­ingu vegna atburð­ar­ins að hugur banda­rísku þjóð­ar­innar væri hjá fórn­ar­lömbunum og fjöl­skyldum þeirra.

Joseph Lombardo, lög­reglu­stjóri í Vegas, sagði að allt benti til þess að Paddock hefði verið einn að verki.

Bróðir fjöldamorð­ingj­ans, Eric Paddock, sagði í við­tali við CBS að bróðir hans hefði verið „heill­aður“ af byssum og að hann hefði í það minnsta átt margar skamm­byssur. Þá sagð­ist hann síð­ast hafa heyrt af ferðum hans þegar hann kom til ætt­ingja í Florída þegar felli­byl­ur­inn Irma gekk þar yfir, en 6,3 millj­ónir manna þurftu þá að flýja heim­ili sín vegna veð­urofsa.

Hann hafði gaman af fjár­hættu­spilum.

Smánarblettur

Skotárásir og dauðs­föll vegna þeirra eru smán­ar­blettur á banda­rísku sam­fé­lagi. Á hverju ári deyja að með­al­tali 13 til 16 þús­und manns vegna byssu­árása og á bil­inu 25 til 30 þús­und slasast, sé horft til síð­ustu tíu ára. Séu sjálfs­víg vegna skot­vopna tekin með í reikn­ing­inn deyja um 35 þús­und manns á ári.

Margoft hafa verið gerðar til­raunir til að herða byssu­lög­gjöf­ina í land­inu, og í sumum ríkjum hefur náðst árangur með séstökum reglu­gerðum.

Einkum og sér í lagi er það könnun á bak­grunni þeirra sem kaupa skot­vopn sem hefur til athug­unar í þeim efnum.

En óhætt er að segja að árang­ur­inn í bar­átt­unni við byssu­glæpi í Banda­ríkj­unum hafi lít­ill sem eng­inn verið, og síend­ur­tekin fjöldamorð með skot­vopnum - jafn­vel inn í skólum og á öðrum stöðum þar sem fjöl­menni kemur saman - sýna glögg­lega að um inn­an­mein er að ræða í banda­rísku sam­fé­lagi.

Hryðju­verkaógn, sem kemur utan Banda­ríkj­anna, blikknar í sam­an­burði við ógn­ina sem almenn­ingur í Banda­ríkj­unum býr við vegna byssu­glæpa heima­manna, enda deyja mun fleiri á hverju ári í Banda­ríkj­unum í skotárásum heldur en deyja á hverju ári í hryðju­verka­árásum um allan heim.

Gera má ráð fyrir að þessi skelfi­legi atburður í Las Vegas muni enn og aftur verða til þess að póli­tísk umræða um skot­vopna­eign, skotárásir og umgengni um skot­vopn verður að eld­heitu deilu­efni hjá stjórn­mála­stétt­inni.

Uppfært 20:43: Í yfir­lýs­ingu frá yfir­völdum, sem vitnað er til í frétt New York Times, segir að 19 rifflar hafi fund­ist á her­bergi manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár