Heimsbyggðin á „áður óþekktum slóðum“ vegna nýju kórónuveirunnar

Nýja kór­ónu­veiran er ein­stök og hefur ein­staka eig­in­leika, segir fram­kvæmda­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar. „Við höfum ekk­ert annað val en að bregð­ast við núna.“

Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin WHO segir að nýja kór­ónu­veiran hafi ýtt heims­byggð­inni inn á „áður óþekktar slóðir“. Læknar hafi aldrei fyrr séð önd­un­ar­færa­sýkil breið­ast út í sam­fé­lögum með sama hætti.

Lækn­ir­inn Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO segir að þrátt fyrir að um 90 þús­und hafi nú smit­ast víða um heim og yfir 3.000 lát­ist sé enn hægt að ná tökum á vand­anum.

Veiran sem veldur sýk­ingu sem kölluð er Covid-19 upp­götv­að­ist í Kína í des­em­ber. Fljót­lega var ljóst að hún barst manna á milli. Fyrsta dauðs­fallið er talið hafa verið í byrjun jan­úar. Hún breidd­ist fyrst út í borg­inni Wuhan og svo um hér­aðið Hubei. Síðan þá hefur hún borist og verið í greind í 62 löndum, m.a. á Íslandi þar sem sex til­felli hafa nú verið stað­fest. Marg­fallt fleiri smit­ast nú dag hvern utan meg­in­lands Kína en innan þess.

Ghebr­eyesus segir að útbreiðsla sjúk­dóms­ins á heims­vísu væri ekki „ein­stefna“ og hægt væri að berj­ast gegn honum ef ríki heims brygð­ust hratt og örugg­lega við. Þar skiptu aðgerðir er varða sótt­kví og ein­angrun mestu. „Við höfum ekk­ert annað val en að bregð­ast við núna.“ Hann ráð­lagði stjórn­völdum í hverju landi fyrir sig að skoða sín við­brögð vand­lega, ekki væri til ein upp­skrift af aðgerðum sem hent­aði öllum. Hann sagði veiruna „ein­staka og hafa ein­staka eig­in­leika“.

Það land utan Kína sem einna verst hefur orðið úti er Ítalía. Í dag, mánu­dag, hafði tala lát­inna vegna sjúk­dóms­ins hækkað í 52 úr 34 á einum sól­ar­hring. Þar hafa tæp­lega 2.000 manns greinst með veiruna.

[links]Ghebr­eyesus bendir á að átta lönd hafi ekki til­kynnt um ný smit í tvær vikur og virð­ast því hafa náð tökum á útbreiðsl­unni.

Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin hefur ekki lýst yfir heims­far­aldri vegna veirunnar. Það er þó til sífelldrar end­ur­skoð­unar.

Um 90% allra til­fella hafa greinst í Kína. Af þeim 8.800 til­fellum sem greinst hafa utan þess eru 81% í fjórum löndum: Íran, Suður-Kóreu, Ítalíu og Japan.

Óttast er að efna­hags­leg áhrif útbreiðslu veirunnar verði mikil, jafn­vel sam­bæri­leg við það sem gerð­ist árið 2009 er mjög hægði á hag­vexti í heim­inum. Lækkanir hafa verið á hluta­bréfa­mörk­uðum sem virð­ast í nokk­urs konar rús­sí­bana þessa dag­ana.

Margt er enn á huldu um hvernig veiran hagar sér. Dæmi eru talin um að fólk myndi ekki mótefni og geti sýkst aftur eftir að hafa fengið bata. Slíkt á þó eftir að rann­saka betur.

Annað sem vekur furðu – og áhyggjur – er hversu fá til­felli hafa greinst í Afríku, heims­álfu sem telur um einn og hálfan millj­arð íbúa. Í flestum lönd­unum er heil­brigð­is­þjón­usta mun verri en þekk­ist til dæmis á Vest­ur­löndum. Vís­inda­menn klóra sér í hausnum yfir þessu og velta fyrir sér hvort það sé ein­fald­lega heppni að fleiri hafi ekki sýkst þar. Í gær höfðu aðeins þrjú til­vik verið stað­fest í Afríku; í Egypta­landi, Alsír og Nígeríu. Í dag voru til­felli greind í Senegal og Túnis. Enginn dauðs­föll hafa verið stað­fest.

Er veiran hóf að breið­ast út í byrjun árs var varað við því að hún gæti auð­veld­lega orðið að far­aldri í Afríku því mörg lönd álf­unnar eru í miklu við­skipta­sam­bandi við Kína og þar starfa millj­ónir Kín­verjar á hverjum tíma.

Ghebr­eyesus hefur sagt að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi haft einna mestar áhyggjur af far­aldri þar, ekki síst vegna veikra inn­viða og lélegrar heil­brigð­is­þjón­ustu.

„Enginn veit“ af hverju veiran hefur lítið greinst í Afríku til þessa, segir lækn­ir­inn Thumbi Ndungu sem starfar við heil­brigð­is­vís­inda­stofnun í Suður-Afríku. „Kannski er það ein­fald­lega af því að ferða­lög milli Afríku og Kína eru ekki það mikil.“

Vön því að fást við faraldra

Ethi­opian Airlines, stærsta flug­fé­lag Afríku, hélt þó áfram að fljúga til Kína eftir að veiran var þar orðin útbreidd. Þá er aug­ljós hætta á því að fólk sem heim­sæki lönd álf­unnar, m.a. á ferða­lagi, beri veiruna þangað með sér.

Ein­hverjir vís­inda­menn hafa velt fyrir sér hvort að vist­kerfi Afríku, jafn­vel lofts­lagið, hafi eitt­hvað með þetta að gera. „Kannski breið­ist veiran ekki út í vist­kerfum Afríku, við vitum það ekki,“ segir lækn­ir­inn Yazdan Yazdanpanah, sem fer fyrir smit­sjúk­dóma­deild­inni á Bichat-sjúkra­hús­inu í París.

Aðrir vís­inda­menn hafa hafnað þess­ari kenn­ingu og segja ekk­ert benda til þess að veiran kjósi hýsla sína eftir lofts­lagi, vist­kerfum eða erfða­fræði­legum þáttum.

Sá sem greind­ist fyrstur með veiruna í Nígeríu var Ítali sem þar starf­aði. Hann hafði komið til lands­ins frá Mílanó 24. febr­úar og þá ein­kenna­laus. Hann var settur í ein­angrun fljót­lega eftir kom­una til Nígeríu og haft upp á öllum þeim sem hann hafði átt í sam­skiptum við.

Sér­fræð­ingar í smit­vörnum segja það að eitt fyrsta til­fellið í Afríku hafi greinst í Nígeríu séu þegar öllu er á botn­inn hvolft góðar fréttir. Nígería virð­ist vera vel í stakk búin til að bregð­ast við og hefta útbreiðsl­una.

Þá hafa þeir bent á að mörg Afr­íku­lönd hafi góða og mikla þekk­ingu á því hvernig bregð­ast skuli við smit­far­ar­aldri. Nígería sé í þeim hópi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár