Stefna á endurræsingu kísilversins í vor

Refsi­tollar í Banda­ríkj­unum og samn­ingar við birgja eru meðal óvissu­þátta sem for­svars­menn kís­il­vers­ins á Bakka standa frammi fyrir. Slökkt var á ofnum verk­smiðj­unnar í sumar en stefnt er að því að kynda upp í þeim á ný með vor­inu.

Kísilverið á Bakka hætti framleiðslu í ágúst.
Kís­il­verið á Bakka hætti fram­leiðslu í ágúst. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Stefnt er að því að end­ur­ræsa kís­il­ver PCC á Bakka í vor. Starf­semi þess var stöðvuð í sumar og um 85 starfs­mönnum sagt upp. Rekstr­ar­stöðv­unin var sögð vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem hefði raskað heims­mark­aði með kís­il­málm. Verð hefði lækkað mjög og eft­ir­spurn minnkað.

Rúnar Sig­ur­páls­son, for­stjóri PCC BakkiSilicon hf., segir að í dag séu rúm­lega fimm­tíu starfs­menn á Bakka. Hluti þeirra er að vinna að end­ur­bótum í kís­il­ver­inu, m.a. bún­aði, og er ætl­unin að ljúka þeim áður en til end­ur­ræs­ingar verk­smiðj­unnar kemur.

[adspot]

Í nóv­em­ber kom fram á Facebook-síðu fyr­ir­tæk­is­ins að við­ræður við birgja verk­smiðj­unnar varð­andi end­ur­ræs­ing­una væru hafnar. Gott sam­starf við birgja væri lyk­il­at­riði til að verk­smiðjan gæti talist sam­keppn­is­hæf á heims­mark­aði. Þar kom einnig fram að hefja ætti end­ur­ráðn­ingar „upp úr ára­mótum“. Það ferli er að sögn Rúnars ekki hafið en hann segir ljóst að flest allir þeir starfs­menn sem sagt var upp í sumar vilji koma til starfa á ný.

Rúnar segir við Kjarnann að „í þessu skrítna ástandi“ sem nú ríki vegna heims­far­ald­urs­ins hafi hann áhyggjur af mörk­uðum fyrir kís­il­málm en segir þá þó hafa verið að þró­ast í rétta átt að und­an­förnu sem gefi til­efni til bjart­sýni.

Málin skýrast í apríl

Einn óvissu­þáttur í því eru inn­flutn­ings­tollar sem banda­ríska við­skipta­ráðu­neytið lagði á íslenskan kís­il­málm á síð­asta ári en Banda­ríkin eru helsta við­skipta­land kís­il­vers­ins á Bakka. Toll­arnir voru lagðir á að kröfu banda­rískra kís­il­málms­fram­leið­enda sem héldu því fram að inn­flutn­ings­verð á málmi frá Íslandi og fleiri löndum væri lægri en eðli­legt gæti talist. Það mætti rekja til nið­ur­greiðslna í fram­leiðslu (dump­ing). Rúnar segir málið í raun tví­þætt; ann­ars vegar snerti það ákvörðun um refsi­tolla (anti dump­ing) og hins vegar skað­leysi (inj­ury).

Forúr­skurður ráðu­neyt­is­ins um refsi­tolla lá fyrir í des­em­ber. „Sá úrskurður var okkur ekki hag­stæður en loka­úr­skurður mun birt­ast í febr­úar,“ segir Rúnar. Úrskurður í skað­leys­is­mál­inu mun birt­ast í apríl. „Okkar áhersla hefur verið á að verja okkur í því máli. Úrskurður þar er end­an­legur og verði hann okkur jákvæður snýr hann við nið­ur­stöðu í refsi­tolla­mál­inu.“

[links]Kís­il­verið á Bakka hafði aðeins verið starf­rækt í tvö ár er slökkt var í ofnum verk­smiðj­unnar í sumar. Rekstur verk­smiðj­unnar hafði verið erf­iður allt frá upp­hafi og settu bil­anir og þungar aðstæður á hrá­vöru­mörk­uðum mark sitt á hann.

Verk­smiðjan er í meiri­hluta­eigu þýska stór­fyr­ir­tæk­is­ins PCC SE, sem á 86,5 pró­sent hlut, en inn­lendir líf­eyr­is­sjóðir og Íslands­banki eiga líka 13,5 pró­sent hlut í félag­inu í gegnum fjár­fest­inga­fé­lagið Bakka­stakk. Í apríl fjöll­uðu bæði Við­skipta­blaðið og Frétta­blaðið um að líf­eyr­is­sjóðir hefðu fært niður hlutafé sitt í Bakka­stakki að öllu eða mestu leyti, vegna rekstr­ar­ó­vissunnar. Þá hafði þýska móð­ur­fé­lagið skömmu áður lagt PCC á Bakka til um 40 millj­ónir Banda­ríkja­dala, meira en fimm millj­arða íslenskra króna, í formi hlut­haf­a­láns, til þess að bæta lausa­fjár­stöðu kís­il­vers­ins og tryggja rekstr­ar­grund­völl þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár