Almannahagsmunir að flugumferðarstjórar vinni yfirvinnu

Elín Björg Jóns­dóttir, for­maður BSRB, segir kom­inn tími á nýja starfs­hætti stjórn­valda í kjara­deilum. Eðlilegt sé að launa­fólk fái að semja um sín kaup og kjör án þess að stjórn­völd setji óþarfa þrýst­ing á við­ræð­urnar.

Lögbann var sett á yfirvinnubann flugumferðarstjóra í síðustu viku.
Lögbann var sett á yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra í síð­ustu viku. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það er óþol­andi að Alþingi gangi gegn rétti launa­fólks til að semja beint við við­semj­endur sínar um kaup og kjör, skrifar Elín Björg Jóns­dóttir, for­maður BSRB, í aðsendri grein undir fyr­ir­sögn­inni „Hags­munum ógnað?“ í Frétta­blað­inu í dag. Þar fjallar hún um lög­bann á yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra sem sam­þykkt var á Alþingi 8. júní síð­ast­lið­inn.

Hún segir það ein­kenni­legt ef ástandið sé orðið þannig að ef flug­um­ferð­ar­stjórar vinni ekki yfir­vinnu þá sé almanna­hags­munum stefnt í voða. BSRB hafi talið mun heppi­legra að gefa deilu­að­ilum svig­rúm til að ná samn­ingum án hót­ana eða tíma­marka. „Verk­falls­rétt­ur­inn er var­inn af stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna en stjórn­völd telja að yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra hafi ógnað almanna­hags­munum,“ skrifar Elín Björg.

Í útskýr­ingum Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra á því hvers vegna stjórn­völd ákváðu að leggja fram frum­varp til laga til að stöðva yfir­vinnu­bannið eru nei­kvæð áhrif á ferða­þjón­ust­una á Íslandi í for­grunni.

„Í fyrsta lagi er rík­inu ómögu­legt að sinna lög­bundnum skyldum sínum og þjón­ustu, þ.m.t. alþjóð­legum skuld­bind­ing­um um trygga, hag­kvæma og örugga flug­um­ferð­ar­þjón­ustu. Í öðru lagi eru heild­ar­hags­mun­ir heillar atvinnu­greinar und­ir, þ.e. ferða­þjón­ust­unn­ar, og í þriðja lagi er mik­il­vægt að efna­hags­legum stöð­ug­leika verði ekki stefnt í voða með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum á vinnu­mark­að­i,“ segir í athuga­semdum við laga­frum­varp­ið eins og Kjarninn fjall­aði um.

„Það ætti kannski ekki að koma á óvart að stjórn­völd grípi til þess óynd­is­ráðs að setja lög á þessa kjara­deilu,“ skrifar Elín Björg og bendir á að á kjör­tíma­bil­inu hafi stjórn­völd sett lög til að binda endi á verk­fall skip­verja um borð í Herjólfi, flug­manna, félags­manna BHM og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga. Nú sé röðin komin að flug­um­ferð­ar­stjórum. Þessar harðn­andi deilur og fjöldi laga­setn­inga sýni að kom­inn sé tími til að end­ur­skoða kerfið frá grunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár