Ferðaþjónustan í forgrunni ákvörðunar um lög á flugumferðarstjóra

Neikvæð áhrif á ferða­þjón­ust­una á Íslandi eru í for­grunni í útskýr­ingum Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra á því hvers vegna stjórn­völd hafa ákveðið að leggja fram frum­varp til laga til að stöðva yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra. Þing­fundur hófst rétt í þessu á Alþingi þar sem frum­varpið verður tekið fyrir.

„Í fyrsta lagi er rík­inu ómögu­legt að sinna lög­bundnum skyldum sínum og þjón­ustu, þ.m.t. alþjóð­legum skuld­bind­ingum um trygga, hag­kvæma og örugga flug­um­ferð­ar­þjón­ustu. Í öðru lagi eru heild­ar­hags­munir heillar atvinnu­greinar undir, þ.e. ferða­þjón­ust­unnar, og í þriðja lagi er mik­il­vægt að efna­hags­legum stöð­ug­leika verði ekki stefnt í voða með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum á vinnu­mark­aði,“ segir í athuga­semdum við laga­frum­varpið. 

Áhrifin á rekstur og orðspor ferðaþjónustunnar mikil

Þá hafi tæp­lega 60 til­kynn­ingar um röskun á flug­um­ferð­ar­þjón­ustu á Kefla­vík­ur­flug­velli verið gefnar út vegna yfir­vinnu­banns­ins, og það komi sér­stak­lega niður á far­þegum og flug­fé­lögum, sem ekki eru aðilar að kjara­deil­unni.

„Fram hefur komið að aðgerðir flug­um­ferð­ar­stjóra hafa raskað 1.200 flug­ferðum Icelandair og haft áhrif á um 200.000 far­þega félags­ins. Seink­anir flug­véla WOW-air hafa haft áhrif á um 20.000 far­þega. Þá halda yfir 20 önnur flug­fé­lög uppi áætl­un­ar­flugi til Kefla­vík­ur­flug­vallar á þessum árs­tíma og hafa aðgerð­irnar jafn­vel haft meiri áhrif á þjón­ustu þeirra þar sem mörg þeirra fljúga hingað til lands í næt­ur­flugi. Mik­il­vægt er að sam­göngur til og frá land­inu séu í góðu horfi og eru flug­sam­göngur burða­rás í far­þega­flutn­ingum og flutn­ingum með fersk mat­væli, svo sem sjáv­ar­fang.“ Ljóst sé að með auknum straumi ferða­manna hafi hlut­deild flug­starf­semi af vergri lands­fram­leiðslu auk­ist mikið, enda sé búist við 1,7 millj­ónum ferða­manna hingað til lands á þessu ári.

Áhrifin af vinnu­deil­unni á rekstur íslenskrar ferða­þjón­ustu og orð­spor eru því mikil, segir í frum­varp­inu. Um þriðj­ungur starfa sem skap­ast hafi í hag­kerf­inu frá 2010 til 2015 séu tengd ferða­þjón­ustu.

Ísland er einnig aðili að samn­ingi þar sem ríkið hefur tekið að sér að tryggja sam­fellda flug­leið­sögu­þjón­ustu á Norður-Atl­ants­hafi á hag­kvæman og öruggan hátt, en ljóst sé að aðgerðir Félags íslenska flug­um­ferð­ar­stjóra komi í veg fyrir að íslensk stjórn­völd geti staðið að fullu við þá skuld­bind­ingu. „Alþjóðaasam­tök flug­fé­laga, IATA, hafa fylgst með mál­inu, lýst áhyggjum og leitað upp­lýs­inga um trufl­anir og stöðu mála frá Isavia. Standi ríkið ekki við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt samn­ingnum er hætt við að starf­semin fari úr landi. Með því glat­ast 5 millj­arða kr. gjald­eyr­is­tekjur.“

Hækkanir myndu stofna stöðugleika í hættu

„Kjara­deilan hefur nú þegar valdið miklu tjóni á mörgum sviðum. Viðræður aðila hafa reynst árang­urs­lausar. Augljós hætta er á að launa­hækk­anir umfram það sem þegar hefur verið samið um á almennum vinnu­mark­aði hafi nei­kvæð áhrif á gild­andi kjara­samn­inga og stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði,“ segir jafn­framt í frum­varp­inu.

„Brýnt er að kjara­deilan komi ekki af stað víxl­hækk­unum verð­lags og launa sem aftur hefðu í för með sér aukna verð­bólgu og rýrnun kaup­máttar sem SALEK-sam­komu­lag­inu er ætlað að koma í veg fyrir. Þessu frum­varpi er því ætlað að treysta for­sendur stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár