Margrétarskálin

Hvað er svona merki­legt við skál úr melamíni sem þótti ekki rétt að setja sjóð­andi vökva í þær og eiga ekki erindi í örbylgju­ofn­inn, og eru kjöt­boll­urnar í alvöru besta ef þær eru hrærðar í „Margréti“?

Kjarn­inn end­­­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­­­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­­­ir. Frétta­­­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­­­sælda og sú sem er end­­­ur­birt hér að neðan var upp­­­haf­­­lega birt þann 14. apríl 2015.

Árið 1953 var dönskum lögum breytt þannig að konur og karlar ættu sama rétt til krún­unn­ar, aldur í beinan legg skyldi ráða. Þetta var gert í ljósi þess að elsta barn dönsku kon­ungs­hjón­anna, Frið­riks IX og Ingiríðar drottn­ingar var stúlka, Mar­grét Þór­hild­ur. ­Kon­ungs­hjónin eign­uð­ust þrjár dætur en ekki son og þar að auki var þessi laga­breyt­ing í takt við breytta tíma.

Árið 1952 hóf ungur hönn­uð­ur, Jacob Jen­sen, störf hjá teikni­stof­unni Berna­dotte og Bjørn Industridesign A/S. Jacob þessi var nýút­skrif­aður úr Danska hönn­un­ar­skól­an­um, af iðn­hönn­un­ar­braut sem hinn þekkti arki­tekt Jörn Utzon hafði sett á lagg­irn­ar. Jacob (fæddur 1926) hafði dottið út úr skóla og vann eftir það um skeið á bólst­ur­verk­stæði föður síns. Hann varð síðar enn þekkt­asti iðn­hönn­uður Dana, einkum vegna starfa sinna hjá Bang & Oluf­sen.

Fyrsta verk Jac­obs Jen­sen á teikni­stofu Berna­dotte og Bjørns, var að teikna skál, ætl­aða til alhliða nota í eld­húsi. Þetta var akkúrat um sama leyti og verið var að breyta að dönsku rík­is­ar­falög­unum og Sig­vard Berna­dotti, sem var bróðir Ingiríðar dana­drottn­ingar fékk leyfi dönsku krún­unnar til að kenna skál­ina við Mar­gréti rík­is­arfa. Skálin fékk því nafnið Margretheskå­len, Mar­grét­ar­skál­in.

Fyr­ir­tækið Rosti, sem þá var tíu ára gam­alt, tók að sér að fram­leiða Mar­grét­ar­skál­ina. Skál­in, sem var steypt í móti, var gerð úr sér­stöku plast­efni, melamíni, og hafði marga eig­in­leika umfram Bakelite efnið sem þá var mikið not­að. Var miklu létt­ara og ekki jafn við­kvæmt. Skál­arnar eru enn fram­leiddar úr þessu sama efni, það er ekki rétt að setja sjóð­andi vökva í þær og þær eiga ekki erindi í örbylgju­ofn­inn.

Sló strax í gegn

Engan, hvorki hönn­uð­inn, vinnu­veit­endur hans né Rosti fyr­ir­tæk­ið, hefur lík­lega grunað hví­líkt snilldar eld­hús­á­hald Jacob Jen­sen hafði skap­að. Enn síður hefur þá grunað að 61 ári síðar hefðu selst næstum 50 millj­ónir skála. Hönn­uð­ur­inn sagði ein­hvern­tíma í við­tali að hann hefði kannski átt að tryggja sér eins og eina krónu af hverri seldri skál, en það væri nú auð­velt að vera vitur eftir á bætti hann svo við. Ann­ars hefur hann ekki þurft að örvænta um afkom­una, er heims­þekktur hönn­uður og ekki á hor­leggj­unum eins og sagt er. Mar­grét­ar­skálin er á nútíma­lista­safn­inu MOMA í New York, meiri upp­hefð getur ekki einni eld­hús­skál hlotn­ast.

Gúmmí­hringur á botni og lok eina breyt­ingin

Mar­grét­ar­skálin var í fyrstu fram­leidd í fjórum lit­um, hvítum græn­um, gulum og bláum og í fjórum stærð­um. Núna eru stærð­irnar 10 og lit­irnir að minnsta kosti 15. Formið á skál­inni er algjör­lega óbreytt en uppúr 1960 var farið að setja gúmmí­kant, eða hring, neðan á botn­inn til að gera skál­ina stöðugri á borði.

Hvað er svona merki­legt við eina skál?

Þessa spurn­ingu lagði eitt dönsku blað­anna fyrir fólk á förnum veg­i. Allir þekktu skál­ina og svörin voru á þá leið að hún væri ein­fald­lega svo þægi­leg og hægt að nota hana til margra hluta í eld­hús­inu. „Alltaf eins og ný" sagði einn. Margir sögðu að hún fal­leg og maður fengi aldrei leiða á að hafa hana fyrir aug­un­um. „Ein­fald­lega flott" sagði fólk. „Kjöt­boll­urnar bestar ef þær eru hrærðar í Mar­gréti" sagði einn sem spurður var. Einn úr hópi við­mæl­enda sagði að eini mínus­inn við Mar­grét­ar­skál­ina væri sá að hún væri ekki lengur fram­leidd í Dan­mörku. Fram­leiðslan var fyrir nokkrum árum flutt til Hollands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár