Verðum að ganga í takt og „hætta þessu rugli“

Formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands segir að nú sé komið að því að við Íslend­ingar spyrjum okkur hvernig við viljum haga okkar málum. Viljum við vera aðgrein­andi í eðli okkar eða gyrða okkur í brók og takast á við erfið mál­efni?

Þetta er miklu stærra mál en að þetta snerti bara skól­ann. Hvernig hefur kerfið til dæmis tekið á móti þeim börnum sem liðið hafa mest í íslensku sam­fé­lagi síð­ustu tíu árin – eða frá hruni – eftir að þau urðu 18 ára? Þessu hef ég miklar áhyggjur af.“

Þetta segir Ragnar Þór Pét­urs­son, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, þegar hann er spurður út í hug­takið skóli án aðgrein­ingar en Kjarninn ræddi við hann um hvernig það kom til að Íslend­ingar tóku upp þessa stefnu, hvaða áhrif hún hefur haft og hvað vanti upp á til að fram­fylgja henni.

Hann segir að aðgrein­ing­ar­hug­takið eigi við um fleiri þætti í íslensku sam­fé­lagi en ein­ungis í skól­unum. Íslend­ingar aðgreini sig eftir póli­tískum og félags­legum brota­línum og sé sú aðgrein­ing að aukast ár hvert. „Við erum að aðgrein­ast í auknum mæli og ef við förum ekki að vinna á móti því þá stefnum við vænt­an­lega bara í nákvæm­lega sama far og nágranna­þjóðir okkar.“

Ragnar Þór hefur verið kenn­ari í 25 ár og seg­ist hann sjaldan heyra frasa í sínu starfi oftar en: „Skóli án aðgrein­ingar er frá­bært hug­mynd en ...“ Svo bæt­ist við ýmiss konar útskýr­ingar af hverju hug­myndin gangi ekki upp í raun­veru­leik­anum.

„Það er ein­hvern veg­inn línan. Það er hættu­legt að þessi orð­ræða fái að þríf­ast því skóli án aðgrein­ingar á að vera, og er, það mikið grund­vall­ar­at­riði að þetta er hluti af stóru spurn­ing­unni hvort sam­fé­lagið sé aðgreint eða ekki – hvort sam­fé­lagið eigi að vera í kvíum eða ekki. Vissu­lega sner­ist umræðan framan af um fötluð börn en þetta er miklu stærri spurn­ing en það. Þetta er einnig spurn­ing sem varðar börn af erlendum upp­runa og börn í mis­mun­andi félags­legum aðstæðum.“

Höfum aldrei þurft að vera meira vakandi

Hann rekur sög­una og segir að fyrir árið 1974, þegar skóli án aðgrein­ingar var bund­inn í lög, hafi Íslend­ingar með­vitað og vilj­andi haft aðgreint skóla­kerfi. Kerfi sem ann­ars vegar var ætlað þeim sem vildu í lang­skóla­nám og hins vegar gagn­fræða­nám.

„Gegn þessu var gerð upp­reisn á eft­ir­stríðs­ár­unum en þetta byrj­aði í Frakk­landi og kom svo hingað – og frá 1974 höfum við verið að brasa við hug­mynd­ina. Þetta hefur verið í lagi hjá okkur að því leyti að það hefur verið mjög áber­andi og greini­legt í lög­gjöf­inni en við höfum verið mjög brokk­geng í því að fram­kvæma þetta með réttum hætti. Fyrir því eru ýmsar ástæður.“

Aðgrein­ing á einum stað – sér­stak­lega í skóla­kerf­inu sem er svo mikið grund­vall­ar­kerfi í sam­fé­lag­inu – hefur til­hneig­ingu til að leiða í för með sér aðgrein­ingu á öðrum stað.
Ragnar Þór bendir á að Íslendingar hafi aðgreiningu í búsetu, atvinnulífinu, tómstundum og íþróttum.
Ragnar Þór bendir á að Íslend­ingar hafi aðgrein­ingu í búsetu, atvinnu­líf­inu, tóm­stundum og íþróttum.

Ragnar Þór segir að fyrir honum og vænt­an­lega fyrir mjög mörgum sé ekki í boði að segja: „Góð hug­mynd en ...“ Sam­fé­lagið eigi ekki að vera aðgreint. „Uppruni þinn, lík­am­legt og and­legt atgervi á ekki að vera ráð­andi þáttur um það á hvaða hillu þú lendir í sam­fé­lag­inu. Það til­heyrir okkur öllum.“

Hann segir að aðgrein­ing eigi sér stað á nokkrum sviðum. „Við höfum aðgrein­ingu í búsetu, í atvinnu­líf­inu, í tóm­stundum og íþróttum en aðgrein­ing á einum stað – sér­stak­lega í skóla­kerf­inu sem er svo mikið grund­vall­ar­kerfi í sam­fé­lag­inu – hefur til­hneig­ingu til að leiða í för með sér aðgrein­ingu á öðrum stað. Við höfum aldrei þurft að vera meira vak­andi en núna.“

Þarf ekki að fjölyrða um skaðann ef samfélagið yrði kvíað niður

Ragnar Þór bendir á að íslenskt sam­fé­lag hafi verið gríð­ar­lega eins­leitt hér á árum áður.

„Við vorum miklu eins­leit­ari en önnur sam­fé­lög sem er kannski ástæðan fyrir því að á Íslandi snýst þessi umræða mikið um fatl­aða og ófatl­aða. En fatl­aðir og ófatl­aðir eru kannski ekki á end­anum þeir hópar sem eru í hvað mestri hættu á að aðgrein­ast í íslensku sam­fé­lagi. Þannig höfum við aldrei þurft að vera meira vak­andi en núna – þegar fjöl­breytnin er sann­ar­lega að aukast. Þetta er mann­rétt­inda­mál og spurn­ing um það hvort sam­fé­lagið sé fyrir okkur öll eða hvort aðgangur verði bann­aður fyrir suma.“

Hann segir að ekk­ert þurfi að fjöl­yrða um skað­ann sem það veldur sam­fé­lagi að vera kvíað niður.

Þurfum að gyrða okkur í brók

Ragnar Þór heldur upp­rifj­un­inni áfram og bendir á að Ísland hafi farið frá því að vera með flest ein­kenni þró­un­ar­ríkis, upp úr árinu 1960, í það á um þrjá­tíu árum eða svo að vera eitt af rík­ustu sam­fé­lögum heims. Segir hann þetta vera eins­dæmi.

Það hvernig Íslend­ingar náðu að virkja mannauð­inn hafði hvað mest áhrif á þessa þróun sam­kvæmt honum. „Og það er nákvæm­lega sami mannauður í fötl­uðu fólki, í öldruðum, í fólki af erlendum upp­runa og í fátækum börnum. Og ef sam­fé­lagið ætlar ein­hvern veg­inn að segja að nú höfum við það svo frá­bært og við skulum ekki vera að rugga bátnum með því að taka neina sénsa og hafa hlut­ina eins og þeir eru og ekki vera að blanda hópum of mikið saman þá endar það í ein­hvers konar elít­isma. Það endar með ýmsum vanda­málum sem við værum þá sjálf að búa til. Það er eitt­hvað sem er ein­fald­lega ekki boð­legt og þá þurfum við núna að gyrða okkur í brók og standa vörð um skóla án aðgrein­ingar.“

Ragnar Þór segir að þetta kalli vissu­lega á margar erf­iðar spurn­ingar um það hvernig við höfum hagað þessum málum fram að þessu. „Þar þurfum við að vera heið­ar­legri en við höfum leyft okkur að vera og fara að gera hluti í íslensku sam­fé­lagi með öðrum hætti en við erum vön. Því að það er mikið fúskað í íslensku sam­fé­lagi.“

Hvað þurfum við að horfast í augu við og hvaða spurn­ingar þurfum við að spyrja okkur?

„Það eru nokkrir hlutir. Eitt af því sem ger­ist er það – og á eig­in­lega að vera okkur varn­að­ar­merki – að um það leyti sem við erum að festa í lög og taka afstöðu um það að hér skulum við fylgja Salamanca-yfir­lýs­ing­unni, sem er hin aðþjóð­lega yfir­lýs­ing um að vera ekki með aðgreind sam­fé­lög, fluttum við grunn­skól­ann á einu bretti yfir til sveit­ar­fé­lag­anna. Þau í raun og veru voru alls ekki nógu sterkar stjórn­sýslu­ein­ingar til að taka við hlut­verki skól­anna eins og það var, hvað þá því hlut­verki sem síðar varð, því að skól­inn á þessum tíma var allt annað fyr­ir­bæri að mörgu leyti.“

Hann segir að þannig hafi víð­tækar kerf­is­breyt­ingar orðið á mjög við­kvæmum tíma án þess að tryggt væri að sveit­ar­fé­lögin væru í stakk búin til að standa undir hlut­verki sínu. Ennþá séu mörg þeirra að glíma við sömu vanda­mál.

„Á sama tíma verður þessi slagur um fjár­magn og pen­inga. Sveit­ar­fé­lögin fóru strax að tala um að ríkið hefði svelt skóla­kerfið í ein­hvern tíma áður en það skil­aði því yfir til að við­miðið yrði lægra,“ segir hann.

Stoðgrindinni kippt í burtu

Ragnar Þór segir að Íslend­ingar virð­ist ekki finna póli­tíska lausn á þessu vanda­máli og að eina lausnin sem fólk hafi sé að sam­eina sveit­ar­fé­lög. „En við það er mjög póli­tísk and­staða og átök.“

Áður en ríkið skil­aði skóla­kerf­inu yfir á sveit­ar­fé­lögin var til staðar fag­legt stuðn­ings­net inni í mennta­mála­ráðu­neyt­inu sem hélt utan um skól­ana. „Við höfðum fag­svið sem voru í nánu og sterku sam­bandi, en því var öllu klippt í burtu. Þannig að ekki aðeins fóru skól­arnir til veik­ari stjórn­sýslu­ein­inga heldur var stoð­grind­inni kippt í burtu. Og þetta skýrir mögu­lega að ein­hverju leyti þá erf­ið­leika sem skóla­kerfið okkar hefur staðið frammi fyrir nán­ast frá því að sveit­ar­fé­lögin tóku við grunn­skól­unum. Þetta er búið að vera mjög við­kvæmt mál.“

Öll hald­reipi eru dýr­mæt. Á meðan þú hefur ekk­ert annað betra þá er þó styrkur af því sem þú hefur og það er mjög erfitt að taka skrefið til skóla­kerfis án aðgrein­ingar ef það þýðir að maður þarf að fórna hækj­unum sínum.

Ragnar Þór nefnir annað sem hefur verið ábóta­vant og það eru þær lausnir sem stungið hafi verið upp á í þessu sam­bandi. „Það hefur verið of mikið um kerf­is­lausnir, patent­lausnir, sem eru nán­ast eins og þær séu samdar á skrif­stofu af ein­hverjum hópi sem ætlar að leysa þetta með ein­hverju kerfi sem dugi til. Og mjög lengi og jafn­vel enn í dag ætl­uðum við að leysa skóla án aðgrein­ingar með því sem sem við köllum stundum stuðn­ings­full­trúa­kerfi.“

Stuðningsfulltrúakerfið ákveðið haldreipi – en það virkar ekki

Stuðn­ings­full­trúa­kerfið sner­ist um það að ef barn átti erfitt upp­dráttar þá fékk það full­orð­inn ein­stak­ling með sér inn í bekk til aðstoðar. „Þetta er í raun aðgrein­andi aðgerð í sjálfu sér. Að setja barn inn í bekk en barnið er ein­kennt af því að það er með varð­mann á sér alla daga sem situr jafn­vel við hlið­ina á því og er í mestum sam­skiptum við við­kom­andi.“

Hann segir að þetta kerfi hafi ekki gengið upp. „Það eru svona tíu ár síðan við horfð­umst í augu við það að kerfið virk­aði ekki – hvorki til að ná þeim árangri sem þurfti né sem grund­vall­ar­hryggjar­stykki í skóla­kerfi án aðgrein­ingar.“

Ef stuðn­ings­full­trú­unum hefði verið kippt í burtu þá hefði hins vegar verið farið mjög illa með þessi börn. „Öll hald­reipi eru dýr­mæt. Á meðan þú hefur ekk­ert annað betra þá er þó styrkur af því sem þú hefur og það er mjög erfitt að taka skrefið til skóla­kerfis án aðgrein­ingar ef það þýðir að maður þarf að fórna hækj­unum sínum.“

Greiningarkerfið hefur valdið óskunda

Samhliða stuðn­ings­full­trúa­kerf­inu var not­ast við svo­kallað grein­ing­ar­kerfi. Ragnar Þór segir að ákveðin til­hneig­ing sé til þess að móta slík kerfi, þau séu gagnsæ og vitað sé hvaða mæli­kvarðar liggja til grund­vallar.

„En þetta kerfi hefur nátt­úru­lega valdið óskunda í skóla­sam­fé­lag­inu okkar þar sem þjón­usta hefur verið skil­yrt við ein­stak­linga sem upp­fylla ein­hver grein­ing­ar­við­mið – jafn­vel fjár­magn – þó verið sé að vinda ofan af því núna. Það hefur skap­ast hvati til þess að vera vanda­mál. Ef þú ert nógu stórt vanda­mál þá færðu lausn­ina. Á sama tíma er þetta ekki vald­efl­andi kerfi til að taka á vanda við­kom­andi utan þessa form­lega kerfis og þetta kerfi hefur mis­tek­ist. Við verðum bara að horfast í augu við það.“

Ragnar Þór segir að stuðn­ings­kerfið við börn sé á haus miðað við það hvernig það ætti að vera. „Fræðin segja að mesta pústið eigi að vera lagt í dag­legan veru­leika barns­ins, það er að segja mesti stuðn­ing­ur­inn á að vera á þessu fyrsta þrepi; í hinu dag­lega skóla­starfi. Það starf þarf að vera með þeim hætti að þar sé þörfum sem flestra mætt með mark­vissum hætti. Við höfum að ein­hverju leyti, til dæmis vegna grein­ing­ar­ferl­is­ins, verið með þetta þannig að um leið og upp kemur vandi, hvort sem það er lestr­ar­vandi eða þroska­hömlun, þá fer pústið í það að koma barni í gegnum kerfið og í Grein­ing­ar­stöð. Þar er eins, tveggja eða þriggja ára bið eftir að kom­ast inn.“

Hvernig ætti dag­legt skóla­starf að vera til að sem flestir þrí­fist?

„Númer eitt tvö og þrjú á að vera hægt að manna kerfin okkar. Það má ekki vera und­ir­mönnun eða mann­ekla. Það má ekki vera mikil starfs­manna­velta þannig að í hvert skipti sem efna­hags­lífið tekur við sér þá streymir fólk út úr skóla­kerf­inu og svo kemur það til baka þegar það missir vinn­una í kreppu. Það verður að vera meiri stöð­ug­leiki í starfs­manna­veltu. Kennarar þurfa að vera hæfir og vel mennt­aðir.“

Fólk flæðir inn í samfélagið sem auðgar það og bætir

Ragnar Þór byrj­aði að kenna árið 1996 og segir hann að á þeim tíma hafi allt annar félags­legur veru­leiki verið í skól­unum.

„Sam­fé­lagið var allt öðru­vísi. Ég er búinn að horfa upp á það að þessi venju­legu íslensku börn – prests­dóttirin og for­stjóra­son­ur­inn – sem voru dæmi­gerð þá eru að miklu leyti flutt úr íslenskum mál­heimi mjög snemma og á sama tíma er skól­inn að remb­ast við að vera þessi mál­heimur. En það gengur ekki upp, þú til­einkar þér ekki tungu­mál inn í stofnun, heldur í þínu dag­lega lífi. Þetta veldur ýmiss konar áskor­unum sem eldri kyn­slóðir hafa til­hneig­ingu til að sjá bara sem aft­ur­för. Þá sjá þær ekki það sem þessi börn hafa tekið inn í stað­inn, sem er heil heims­mynd og heill heimur – annað tungu­mál. Börn eru ekki and­lega fátæk­ari en þau voru, en þau eru ekki alveg í takt við sam­fé­lagið eins og við höldum að það eigi að vera. Það er auð­vitað slæmt að tapa þeim úr mál­heim­inum en sem betur fer erum við að ein­hverju leyti að ná þeim til baka.“

Ragnar Þór bendir á að sam­fé­lagið sé nú orðið mikið fjöl­breytt­ara en það var. „Hér fór að flæða inn fólk í íslenskt sam­fé­lag sem hefur ekk­ert annað gert en að auðga það og bæta.“

Þarna er um að ræða fjöl­skyldu­fólk sem er komið til að vera, að hans sögn. „Mælingar og rann­sóknir sýna að þetta fólk hefur nákvæm­lega sama metnað fyrir hönd sinna barna eins og íslenskir for­eldrar. Það hefur nákvæm­lega sömu löngun og aðrir for­eldrar til að þessi börn aðlag­ist sam­fé­lag­inu og taki sér eitt­hvað hlut­verk í því.“

Börn geta ekki beðið á meðan kerfið tekur við sér

Varðandi breyt­ing­arnar innan kerf­is­ins þá segir Ragnar Þór þær ger­ast allt of hægt. „Börnin geta ekki beðið á meðan kerfið tekur við sér. Það verður að mæta þeim og það sem veldur mér mestum áhyggjum er að á sama tíma og skól­inn er að reyna að átta sig á hlut­verki sínu um að vera aðgrein­ing­ar­laus þá er sam­fé­lagið sífellt að aðgreina sig meira.“

Þarna á hann ekki við áhrif sam­fé­lags­miðla, þar sem allir eru í sínum berg­máls­helli, heldur það að Reykja­vík er að breyt­ast úr mjög bland­aðri borg í aðgreinda. „Borgin er orðin þrí­skipt. Við erum komin með þrjú hverfi þar sem mjög ríkt fólk býr, þrjú hverfi þar sem býr fólk með mikið menn­ing­ar­legt auð­magn – hámenntað fólk og lista­menn – og svo erum við með þrjú hverfi með mæl­an­legum mun á báðum þessum mæli­kvörðum þar sem fátæk­asta fólkið í borg­inni býr.

Hús­næð­is­mark­að­ur­inn er grimmi­legur og hörmu­legur – og flestar lausnir sem hingað til hefur verið farið í hafa ekki verið hugs­aðar í nægi­lega stóru sam­hengi til að koma í veg fyrir að safnað sé á sömu svæðin fólki með sama félags­lega bak­grunn.“

Telur hann að einn af styrk­leikum Íslands hér áður fyrr hafi verið að sam­fé­lagið var það blandað – þrátt fyrir að alltaf hafi verið stétta­skipt­ing hér á landi – að allir hafi átt sam­eig­in­legra hags­muna að gæta.

Það sem veldur mér mestum áhyggjum er að á sama tíma og skól­inn er að reyna að átta sig á hlut­verki sínu um að vera aðgrein­ing­ar­laus þá er sam­fé­lagið sífellt að aðgreina sig meira.

„Um leið og við hættum að hafa sam­eig­in­lega hags­muni, sama hver okkar félags­legi bak­grunnur er og hvaða póli­tíska styrk við höfum og teng­ingar, hvaða sam­fé­lags­lega vægi við höfum, ef allt sam­fé­lagið hefur ekki hag af því að skól­arnir séu góðir þá lendum við í vanda­málum sem margar aðrar þjóðir hafa lent í sem mun auka mjög hratt á vand­ann. Þess vegna er það mjög við­kvæmt mál upp að hvaða marki við leysum núver­andi vanda­mál skól­anna til dæmis með því að auka hreyf­an­leika for­eldra og nem­enda milli skóla.“

Ragnar Þór seg­ist skilja áhyggjur for­eldra sem finnst að þörfum barn­anna þeirra sé ekki mætt í skól­unum og hugsi þá með sér að flytja barnið í „betri skóla“. „Þetta er mjög við­kvæmt póli­tísk við­fangs­efni sem við sem sam­fé­lag þurfum að ræða miklu meira. Vegna þess að versta leiðin til að taka þessar rök­ræður er í gegnum reynslu­sögur barna eða ein­staka for­eldra sem eru að reyna að gera sitt allra besta. Það er þessi heild­stæða mynd sem skiptir máli.“

Pólitískar skylmingar skila engu

Ragnar Þór segir að Íslend­ingar séu einnig oft á móti of miklu skóla­vali og bendir á að tregðan sé til staðar. „Þetta hefur að ein­hverju leyti orðið bit­bein mennta­mála­ráð­herra með mis­mun­andi áherslur. Þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var með ráðu­neytið þar­síð­ast þá var skóla­val aukið og þegar Katrín Jak­obs­dóttir varð ráð­herra þá gekk þetta að ein­hverju leyti til baka. Þetta var áber­andi í fram­halds­skól­unum þegar hún var að reyna að neyða þá til að verða aftur hverf­is­skólar í ein­hverjum mæli.

Þessar póli­tísku skylm­ingar skila engu ef menn ætla bara að sæta lagi þegar þeir kom­ast til valda að hnika eitt­hvað í átt­ina. Menn mega ekki vera svo sann­færðir um eigin póli­tísku sýn á þessi mál að þeir nenni ekki að fara í þessa grund­vall­ar­um­ræðu.“

Hann segir að skuld­bind­ingin gagn­vart því að reka hér sam­fé­lag án aðgrein­ingar verði að vera sterk, og ótt­ast hann um afdrif skól­ans ef hún er það ekki.

„Þá verður maður hik­andi að taka stökkið vegna þess að þá ótt­ast maður að ekk­ert örygg­is­net verði til staðar sem grípur ef á þarf að halda. Þannig að þetta er risa póli­tískt mál sem við verðum sem sam­fé­lag að fara að horfast í augu við.“

Hvernig er upp­lifun kenn­ara að vinna við þessar aðstæður eftir skóla­stigum?

„Kennarar eru þannig upp til hópa að þeir eru nán­ast óbilandi hug­sjóna­fólk að vinna í aðstæðum sem eru rosa­lega krefj­andi. Sem veldur því að þeim fall­ast hendur og geta upp­lifað von­leysi. Þeir hafa hins vegar alltaf reynt að leggja sig fram um að spila eftir regl­unum eins og þær eru á hverjum tíma. Og þeir hafa til dæmis alveg fylgt eftir stuðn­ings­full­trúa­kerf­inu og grein­ing­ar­kerf­inu eins og þeir hafa getað. En þeir eins og aðrir sjá alveg að þessi kerfi hafa ekki dugað til.“

Vandamálin afhjúpast þegar börn fara í grunnskóla

Ragnar Þór segir að það sé skelfi­legt fyrir kenn­ara að upp­lifa sig í aðstæðum þar sem hann leggur sig fram og áttar sig á að það dugar ekki til.

„Að mörgu leyti er gott að starfa á leik­skóla­stigi hvað þetta varðar vegna þess að þar er fyrst og fremst verið að styðja við eðli­legan og fjöl­breyttan þroska barna í sam­fé­lagi. Þannig fær leik­skól­inn að vera sá staður þar sem ákveðið umburð­ar­lyndi er gagn­vart fjöl­breyti­leika.

Til dæmis er stutt við frjálsan leik og lær­dóm – og það er ekk­ert sjálf­sagt við það. Við erum með eitt öfl­ug­asta leik­skóla­stig í heimi, óvíða er jafn metn­að­ar­fullt starf eins og hér og að mörgu leyti er það til fyr­ir­myndar. Um leið og barnið fer í grunn­skóla er til­hneig­ingin aftur á móti sú að kröf­urnar fara að verða aðrar, erf­ið­ara verður að standa undir þeim og vanda­málin afhjúp­ast.“

Hann segir að það sé mjög stað- og ein­stak­lings­bundið hversu vel kenn­arar upp­lifa að þeir geti komið til móts við ein­stak­linga og þarfir þeirra.

„Ég þekki mörg dæmi þess að fötluð börn séu í sama skóla og ófötluð börn og það gengur bara frá­bær­lega. Stundum eru þetta lítil sam­fé­lög þar sem ekki einu sinni er spurt um til­vistar­rétt­inn – þau eru þarna eins og þau eru og allir eru eins og þeir eru. Það er hvort sem er eng­inn eins og þetta er frá­bært dæmi um það.“

Sumir kulna og gefast upp

Að hans mati er þetta það sárasta sem kenn­ari upp­lifir; bjarg­ar­leysi gagn­vart börn­unum. „Sumir kulna og gef­ast upp – og hrein­lega geta ekki verið í þessum aðstæðum. Aðrir setja undir sig höf­uðið og ætla að bjarga ástand­inu. Aðrir verða pirraðir á stoð­leys­inu og því að bíða með barn í alvar­legum vanda sem kemst ekki í þjón­ustu fyrr en eftir nokkur ár. Þetta er gríð­ar­lega krefj­andi.“

Ragnar Þór segir að það sem virki vel, jafn­vel í krefj­andi aðstæðum sem þessum, sé þegar skól­inn og heim­ilin ná að vera sam­herjar í bar­átt­unni. Þegar traust sé á milli þess­ara aðila og allir viti og finni að þau séu að vinna að sam­eig­in­legu mark­miði og sam­eig­in­legur vilji sé til að standa við bak barns­ins.

„Um leið og þetta sam­band rofnar eða trosnar af ein­hverjum sökum þá getur ástandið orðið mjög erfitt. Bæði fyrir for­eldra, kenn­ara og börnin. Við getum mátað sjálf okkur í inn í þessar aðstæður og ímyndað okkur hvernig það er.“

Um leið og barnið fer í grunn­skóla er til­hneig­ingin aftur á móti sú að kröf­urnar fara að verða aðrar, erf­ið­ara verður að standa undir þeim og vanda­málin afhjúp­ast.

Hvernig verður þessi vandi leystur?

Hann segir að lausn­irnar verði aldrei samdar í „ein­hverju kerfi sem á að leysa vand­ann“. Valdefla þurfi kenn­ara í eigin starfs­þróun en með því væri hægt að fjölga þeim upp­byggi­legu úrræðum sem kenn­arar hafa til að takast á við þessar aðstæður.

„Við erum bara á frumskrefum í þessu til­tölu­lega valda­lausa sam­fé­lagi þar sem pirr­ingur er yfir því að kerfin taki ekki við og að ekki komi stuðn­ingur. Þá er fjöldi fólks í mjög von­lausum aðstæðum og von­lausar aðstæður kalla aldrei fram það besta í okkur til lengri tíma. Þannig að kenn­ar­arnir eru að mörgu leyti á sama stað og for­eldr­arnir. Þar sem ástandið er vont getur þetta verði virki­lega vont og öllu líður illa, kenn­ar­anum, for­eldrum og barn­inu.“

Prísa sig sæla að ná að manna skólana á hverju vori

Hann segir að á síð­ustu tveimur árum sé í fyrsta skipti á þess­ari öld sem Íslend­ingar séu að snúa við sam­felldum kenn­ara­skorti. „Það er krónískur kenn­ara­skortur í land­inu.“ Þessi skortur eigi sér stað þrátt fyrir að háskóla­menntun sé að aukast hér á landi. Alltaf vanti kenn­ara á öllum skóla­stigum, alls staðar.

„Spár sögðu að ef ekk­ert yrði að gert þá myndi vanta um helm­ing grunn­skóla­kenn­ara árið 2030. Fram­halds­skóla­kenn­arar eru líka orðnir ofboðs­lega gamlir. Þannig að við erum búin að stefna hægt og rólega í full­kom­inn atgervis­brest í skóla­kerf­inu. Og þess vegna prísa menn sig sæla að ná að manna skól­ana á hverju vori. Það er fjöldi fólks sem er að kenna sem hefur ekki endi­lega menntað sig til kennslu og ætlar ekki að vera kenn­arar áfram. Sumt af þessu fólki eru frá­bærir kenn­arar og efni­legir kenn­arar en eftir því sem við­fangs­efnin verða flókn­ari og erf­ið­ari og áskor­an­irnar meiri þá er alltaf ósann­gjarn­ara og ósann­gjarn­ara að ætl­ast til þess að þú getir með brjóst­vit­inu leyst öll þessi vanda­mál. Við þurfum vel mennt­aða kenn­ara.“

Bendir hann á að ef aðsókn að kenn­ara­menntun skili sér í kennslu þá muni Íslend­ingar að ein­hverju leyti ná að loka þessu gati – en þó sé langt í það ennþá.

„Þarna skipta kjörin mestu máli og kerf­is­bundin lægri laun kvenna­stétta, við þurfum ekki að vera í neinum felu­leik með það. Það auð­vitað breytir mögu­leikum kerf­is­ins á að standa sig.“

Sumir skólar vinsælli en aðrir hjá kennurum

Ragnar Þór segir að eft­ir­spurn sé eftir því að kenna í ákveðnum skólum og einnig að kenna ekki í ákveðnum skólum. „Svo eru sum sveit­ar­fé­lög alltaf vin­sælli en önnur. Þó er ekki skýrt hvar lín­urnar liggja og er það mjög per­sónu­bundið eftir kenn­urum.“

Enn fremur sé fyr­ir­komu­lagið að fær­ast úr því að vera einn kenn­ari með bekk, lok­aður af, yfir í það að þeir vinni miklu meira saman í teymum. Góð og öflug teymi hafi gríð­ar­legt aðdrátt­ar­afl á aðra kenn­ara.

„Stóra spurn­ingin er sú hvort okkur tak­ist að fá þetta fólk sem hefur skráð sig í kenn­ara­nám til að skila sér í starfið þegar við erum í lægð og kreppu. Það er vitað að atvinnu­lífið mun taka mjög hratt við sér og hag­vöxtur aukast hratt á næst­unni. Ef sam­fé­lagið gleypir þetta útsæði í önnur betur launuð störf þá erum við á ofboðs­lega hættu­legum stað.“

Bendir hann á að sjálf­bærni kerf­is­ins sé í hættu en ef okkur tekst að halda þessum hópum inn í kerf­inu og rækta þá upp þá séu okkur allar leiðir færar. „Þetta er mjög tví­sýnt mál því yfir­leitt hefur sóp­ast út úr mennta­kerf­inu inn í atvinnu­lífið á Íslandi en það hefur haft mik­inn sog­kraft út úr opin­berum kerfum.“

Eldri kynslóðin ekki tilbúin að deila völdum með þeim yngri

Ragnar Þór segir að það sama megi segja um aðdrátt­ar­afl atvinnu­lífs­ins á nem­endur, jafn­vel á grunn­skóla­aldri. „Það er nán­ast ætl­ast til þess að nem­endur séu einnig í vinnu. Þetta hefur auð­vitað skapað víta­hring sam­fé­lags þar sem að þegar aðstæður verða þannig að við til­heyrum allt í einu miklu hreyf­an­legri vinnu­mark­aði þar sem fólk kemur frá öðrum löndum þá geta þessir hópar lok­ast af.

Það er annað veru­legt áhyggju­efni fyrir okkur: að rétta keflið milli kyn­slóða í íslensku sam­fé­lagi. Það er í mik­illi tví­sýnu akkúrat núna. Öll völdin hafa legið hjá fólki sem er síð­mið­aldra og það er búið að koma sér fjandi vel fyrir – og ekki til­búið að deila því með kyn­slóð­inni þar fyrir neðan.“

Ungt fólk með enga bak­hjarla, eða fjár­hags­lega vel stæða for­eldra, lendi í mjög krefj­andi aðstæðum í fram­hald­inu. „Það aðgreinir síðan sam­fé­lagið með þeim hætti sem er algjör­lega óverj­andi. Við sem sam­fé­lag þurfum að horfa í spegil og ræða þetta betur,“ segir hann.

Við sem sam­fé­lag þurfum að horfa í spegil og ræða þetta betur.
Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, ávarpar börn og ungmenni sem báru sigur úr býtum í Smásagnasamkeppni KÍ árið 2019.
Ragnar Þór Pét­urs­son, for­maður KÍ, ávarpar börn og ung­menni sem báru sigur úr býtum í Smá­sagna­sam­keppni KÍ árið 2019.

Hvernig er hægt að gera vinnu­um­hverfi kenn­ara bæri­legra?

„Við erum það heppin að glöggt er gests augað. Það er til­tölu­lega stutt síðan Evr­ópu­mið­stöð kom hingað til lands og tók út skóla án aðgrein­ingar á Íslandi. Tekin voru við­töl við hag­að­ila og greint hvernig við stöndum okkur. Einnig var OECD nú nýlega að skoða mennta­stefnu til árs­ins 2030 sem mennta­mála­ráð­herra var að fá sam­þykkta inni á Alþingi. Báðir þessir aðilar hafa bent á að þrátt fyrir að það sé vissu­lega mik­il­vægt að búa við menn­ingu vonar þá þarf líka að vera menn­ing inn­leið­ingar.

Við verðum að læra að „þetta redd­ast“ ekki alltaf. Það þarf að fylgja mörgum hlutum eftir miklu betur en gert er og halda mikið betur utan um ákveðin mál­efna­svið,“ segir Ragnar Þór.

Það feli meðal ann­ars í sér að hætta að reyna að fram­kvæma hluti á allt of skömmum tíma og eyða allt of litlu fjár­magni í það. Aðrar þjóðir séu með mun raun­hæf­ari hug­myndir um hvað þurfi til að fylgja hlutum eftir.

Má ekki lenda á skákborði hægri og vinstri

Í fyrsta lagi nefnir Ragnar Þór til­lögu að lausn sem gengur út á að „snúa stuðn­ings­píramíd­anum á haus“. Hann þurfi að vera þannig að mesta áherslan sé lögð á það að allir þrí­fist sem best í sínu nær­sam­fé­lagi. „Þar eigum við fyr­ir­myndir til dæmis í Kanada þar sem miklu stærri félags­leg vanda­mál eru til staðar en nokkurn tím­ann hér. Þeir eru búnir að finna ýmiss konar lausnir á þessu. Við getum horft til þess og lagað þetta.“

Í öðru lagi segir hann að ef skól­inn á að vera hjá sveit­ar­fé­lögum þá verði þau að vera nógu sterkar stjórn­sýslu­ein­ingar til þess að reka skóla. „Sveit­ar­fé­lögin verða að hafa það stoð­net sem þau þurfa. Það væri alveg hægt að taka mennta­mála­mála­stofnun og gera hana að þessu fyr­ir­bæri, það er alveg hægt. En þá má þetta ekki verða annað mál sem lendir á skák­borði hægri og vinstri í stjórn­málum þar sem hægri sinn­aðir stjórn­mála­menn ætla alltaf að láta einka­rekst­ur­inn að ein­hverju leyti fylla í tóma­rúmið og svo ætla vinstri sinn­aðir stjórn­mála­menn sem kom­ast að kjöt­kötl­unum að stíga í hina átt­ina. Þarna verðum við bara að ganga í takt. Og hætta þessu rugli.“

Í þriðja lagi verði að tryggja að til staðar sé starfs­fólk í skól­unum. Það verði að vilja vera þar og ekki þurfa af efna­hags­legum ástæðum að flýja eitt­hvað annað. Í fjórða lagi þurfi að tryggja að starfs­fólkið sé aflgjafi breyt­inga í sam­starfi við háskóla­stigið og stjórn­völd.

Stjórnmálamenn nýta sér ástandið til að slá pólitískar keilur

Ragnar Þór bendir á að allir þessir boltar séu farnir að rúlla en þeir rúlli allt of hægt. „Við erum stödd á þeim stað að við erum aðeins farin að vakna en það er ekk­ert sem segir að þó að við vöknum að við berum gæfa til að laga þetta.“

Hann segir að eftir að Íslend­ingar ákváðu á átt­unda ára­tugnum að mennta­kerfið væri fyrir alla þá hafi stjórn­málin ekki ráðið við að fylgja stefn­unni eftir. „Það var hug­mynda­fræði­legur ágrein­ingur sem síðan breiddi úr sér þannig að það voru komin átök milli stjórn­mála­stétt­ar­innar og nán­ast allra opin­berra stétt­ar­fé­laga í land­inu.

Núna erum við dálítið á sama stað. Það er ekki til sá popúlista­flokkur á Íslandi sem ekki hamrar á þessu. Þú getur nán­ast raðað stjórn­mála­mönnum í röð eftir því hvar þeir standa í þessum málum og margir nýta sér ástandið til að slá póli­tískar keilur. Stjórn­málin á Íslandi verða gjöra svo vel að gyrða sig í brók og standa undir því verk­efni að ekki bara setja leik­regl­urnar á Íslandi heldur gera fólki kleift að fylgja þeim og ná þeim árangri sem á að ná. Það verða bara allir að róa í sömu átt.“

Hann telur að ef allt þetta smellur þá getum við náð fram­fara­skrefum en „þá þurfum við að haga okkur öðru­vísi en við höfum verið að gera hingað til“.

Ertu bjart­sýnn á að það ger­ist?

„Já, en þá verðum við að gera kenn­ara að drif­kraft­inum í þeirra starfs­þróun því þeir vita nákvæm­lega hvar skó­inn kreppir – þeir vita hvað þarf. Það er ekki ein­hver sem situr hér á skrif­stof­unni hjá Kenn­ara­sam­band­inu, mennta­mála­ráðu­neyt­inu eða mennta­mála­stofnun sem er með putt­ann best á púls­inum, það eru kenn­ar­arnir sjálfir og þeir þurfa að fá að leiða þetta.“

Ragnar Þór seg­ist vera bjart­sýnn því hann hafi séð mörg dæmi þess að þetta hafi gengið vel.

„Þetta getur gengið vel en við þurfum alltaf að skoða þetta heild­rænt. Því jafn­vel þótt við getum stór­aukið far­sæld allra í íslensku skóla­kerfi – eins og mörgum líður fyrstu árin í leik­skól­anum – þá þarf sam­fé­lagið auð­vitað að vera til­búið að halda áfram að taka á móti þeim og ekki vera aðgrein­andi í eðli sínu,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár