Stéttaaðgreining eykst á höfuðborgarsvæðinu – „Himinn og haf“ á milli ákveðinna skólahverfa

Þrátt fyrir að skóla­kerfið sé býsna blandað á Íslandi þá gefa nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar það til kynna að stétta­að­grein­ing á milli grunn­skóla­hverfa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi auk­ist umtals­vert á und­an­förnum 20 árum.

Sum skóla­hverfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem voru nán­ast ein­ungis sam­an­sett af Íslend­ingum árið 1997 halda áfram að vera það núna tutt­ugu árum síðar en í öðrum hefur blöndun Íslend­inga og fólk af erlendum upp­runa verið mun meiri. Enn fremur er sam­band á milli þess að vera með háar tekjur og að vera af íslenskum upp­runa. „Því lægra sem hlut­fallið er af for­eldrum af íslenskum upp­runa í hverfum því lægri eru tekjur í skóla­hverf­unum.“

Þetta segir Berglind Rós Rós Magn­ús­dóttir, dós­ent við mennta­vís­inda­svið í Háskóla Íslands, í sam­tali við Kjarnann en hún og með­höf­undar hennar, Auður Magndís Auð­ar­dóttir, aðjúnkt og dokt­or­snemi við Háskóla Íslands og Kolbeinn Stef­áns­son, lektor við félags­ráð­gjaf­ar­deild í Háskóla Íslands, birtu í síð­ustu viku nið­ur­stöður sínar „Dreifing efna­hags- og mennt­un­ar­auðs meðal for­eldra í skóla­hverfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 1997–2016“ í rit­inu Stjórn­mál & stjórn­sýsla.

Í grein­inni eru hverfin ekki nefnd á nafn, heldur gefa höf­undar þeim ein­ungis númer. Ástæðan er, að sögn Berg­lindar Rósar, til að umræðan færi ekki út í eitt­hvað per­sónu­legt. „Við erum bara að skoða mynstur í búsetu­vali þeirra sem hafa raun­veru­legt val,“ segir hún.

Þrjú ríkustu hverfin haldið nánast óbreyttu hlutfalli foreldra af íslenskum uppruna

Í grein­inni segir að sam­setn­ing for­eldra­hópa með til­liti til efna­hags, upp­runa og mennt­unar hafi afger­andi áhrif á hvert skóla­sam­fé­lag en í rann­sókn­inni var stétta­að­grein­ing milli skóla­hverfa skoðuð með fræði­legum hætti í íslensku borg­ar­sam­fé­lagi.

„Byggt er á auðs­hug­tökum Bourdieu við öflun og grein­ingu á sér­vinnslu­gögnum um for­eldra grunn­skóla­barna frá Hagstofu Íslands 1997 til 2016. Farin var sú leið að skoða sér­stak­lega dreif­ingu for­eldra sem hafa mestan efna­hags- og mennt­un­ar­auð og hafa fjöl­skyldu­tengsl til Íslands, því þau eru lík­leg­ust til að hafa raun­veru­legt val og tákn­rænan auð til að móta hug­myndir um gæði skóla og hverfa,“ segir í inn­gangi grein­ar­innar.

Þá var í rann­sókn­inni dregin fram land­fræði­leg aðgrein­ing milli efna­hagsauðs- og menn­ing­ar­auðs­stéttar í íslensku borg­ar­sam­fé­lagi. Fram kemur að erlendur upp­runi, mennt­unar- og efna­hag­sauður hafi almennt vaxið meðal for­eldra grunn­skóla­barna á þessu 20 ára tíma­bili en dreif­ingin á skóla­hverfin sé skautuð.

Annars vegar hafi auð­ur­inn í auknum mæli safn­ast í til­tekin fimm hverfi af 42 og hins vegar horfið brott frá þremur svæðum þar sem meiri­hluti for­eldra býr við krefj­andi félags- og efna­hags­legar aðstæður og hefur engin fjöl­skyldu­tengsl á Íslandi. Hins vegar hafi þau þrjú hverfi sem eru með hæst hlut­fall eigna- og hátekju­fólks haldið nán­ast óbreyttri stöðu varð­andi hlut­fall for­eldra af íslenskum upp­runa.

Berglind Rós Magnúsdóttir
Berglind Rós Magn­ús­dóttir

Fólk hér á landi á að vissu leyti erfitt með stéttaumræðu

Berglind Rós segir í sam­tali við Kjarnann að ýmsir eigi að vissu leyti erfitt með stéttaum­ræðu hér á landi og tengi það fyrst og fremst við fjár­magn.

„Í grein­inni erum við hins vegar að útvíkka stétta­hug­takið í anda Pierre Bourdieu. Við eigum í tungu­mál­inu hug­tök eins og auð­stétt og auð­jöfrar og allt þetta en það er ein­ungis bundið við efna­hag. Í raun getum við talað um efna­hagsauð­jöfra og efna­hagsauð­stétt – og menn­ing­ar­auð­jöfra og menn­ing­ar­auð­stétt. Af því að við erum með tvo póla, ann­ars vegar efna­hagsauð­stétt­ina sem í raun­inni hefur mjög mikil umsvif og völd en hinn póll­inn hefur nátt­úru­lega svo­kallað tákn­rænt auð­magn. Það hefur rödd og kap­ítal í formi virð­ingar, þekk­ingar og stöðu og að tekið sé mark á því.

Það er í raun þessi hópur sem hefur mjög hátt mennt­un­ar­stig og skapað sér sess þeirra sem móta orð­ræð­una um gæði skóla – og mótar umræðu um búsetu og alls konar þætti sem er vald í sjálfu sér,“ segir hún.

Skilgreina stétt út frá valdahugtakinu

Berglind Rós segir að í grein­inni séu þau að skil­greina stétt út frá valda­hug­tak­inu. „Bæði erum við að skoða dreif­ingu for­eldra út frá efna­hag og svo fram­halds­gráðum út háskóla. Við komust að því að það er til dæmis ekki nóg að skoða bara háskóla­gráðu vegna þess að 60 pró­sent for­eldra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru með háskóla­gráðu. Á 20 ára tíma­bili hefur þetta hlut­fall tvö­fald­ast,“ segir hún en þarna er Berglind Rós að tala um ákveðna gráðu­væð­ingu sem hefur verið til umræðu í mörg ár.

Til þess að átta sig á aðgrein­ingu þá megi ekki of margir vera með það sem talið er eft­ir­sókn­ar­vert til að það telj­ist auð­magn þannig að aðgrein­ingin í rann­sókn­inni er í meist­ara- og dokt­ors­gráðum.

„Við erum með rann­sókn­inni að reyna að átta okkur á hvar 20 rík­ustu pró­sentin af for­eldr­unum – rík­ustu út frá tekjum og eignum – eru stað­sett í skóla­hverf­unum og hvar þau dreifast,“ segir hún.

Breytingar á hæsta og lægsta hlutfalli barna á heimilum með mestan efnahagsauð (tekjur/eignir), og þar sem menntunarauður er mestur (almennur/ táknrænn)
Breyt­ingar á hæsta og lægsta hlut­falli barna á heim­ilum með mestan efna­hagsauð (tekjur/eignir), og þar sem mennt­un­a­r­auður er mestur (almennur/ tákn­rænn)

Hvað er táknrænn menningarauður?

Berglind Rós útskýrir hvað hug­takið mennt­un­a­r­auður sé. „Það er í raun­inni bara fólk með meist­ara- eða dokt­ors­gráðu. Það sem við eigum við með tákn­rænum mennt­un­arauði er að við erum að fanga gild­is­mun­inn. Við erum með ólík gildi í sam­fé­lag­inu, auð­stéttin líka. Það er meðal ann­ars hægt að mæla það með því að sjá hvað fólk lærir í háskóla. Táknrænn mennt­un­a­r­auður er nám sem er „abstract“ – það er mögu­lega ekki bein teng­ing við efna­hags­leg gæði. Heldur er þetta kenn­ing­ar­legt, heim­speki­legt og list­rænt. Á móti fara aðrir í lög­fræði, lækn­is­fræði og þessar praktísku greinar.

Þeir sem eru með tákn­rænan mennt­un­ar­auð hafa þyrpst saman í önnur skóla­hverfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur en þeir sem búa við mik­inn efna­hagsauð, að sögn Berg­lindar Rósar.

„Þannig erum við líka að sjá aðgrein­ingu innan þess­arar stéttar út frá þessum þáttum og hægt er að finna skóla í dag þar sem fjórð­ungur for­eldra er með slíka menntun. Þetta er líka hópur sem hefur safnað sér saman í til­tekin hverfi. Þú getur ímyndað þér aðstöðumun­inn hjá börnum varð­andi árangur og alla þessa mæli­kvarða,“ segir hún.

Berglind Rós bendir á að mikið hafi breyst frá árinu 1997 varð­andi hlut­fall for­eldra og barna sem eru fædd á Íslandi eða eiga að minnsta kosti eitt for­eldri fætt á Íslandi. Staðan í skóla­hverfum árið 1997 var meira og minna þannig að um 95 til 97 pró­sent for­eldra voru fædd á Íslandi. Tæpum tutt­ugu árum seinna er þetta hlut­fall mikið breytt.

„Það sem okkur þótti rosa­lega athygl­is­vert var að hvernig þessi hverfi sem voru hvítust árið 1997 hafi enn verið jafn hvít árið 2016.“ Hún segir að þetta séu jafn­framt rík­ustu hverfin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í einu hverf­inu hefur orðið mesta breyt­ingin. „Það er him­inn og haf á milli þess­ara hverfa og þetta er það sem við köllum umpólun í sumum skóla­hverfum á þessu tíma­bili.“

Hvað mætti telj­ast eðli­leg þróun?

„Þessir skólar sem eru þarna í miðj­unni eru mjög eðli­legir, eða á milli 80 og 90 pró­sent. Það er svosem allt í lagi að það sé ein­hver breyti­leiki, ég er ekki að segja það. En það að halda sér svona þýðir ein­fald­lega að sveit­ar­fé­lagið hlýtur að vera með til­tekna stefnu um það, til dæmis að taka ekki á móti inn­flytj­endum eða flótta­fólki en þetta þyrfti að kanna nánar.“

Berglind Rós bendir jafn­framt á að mikið sam­band sé á milli þess að vera for­eldri með háar tekjur og að vera af íslenskum upp­runa. „Því lægra sem hlut­fallið er af íslenskum for­eldrum í hverfum því lægri eru tekjur í skóla­hverf­unum.“

Kom á óvart hversu afgerandi tölurnar voru

Hvað kom mest á óvart varð­andi nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar?

„Sko, þetta var eitt­hvað sem mig hefur klæjað í putt­ana síðan ég var í kenn­ara­námi – og fór í vett­vangs­nám í skólum þar sem aðstöðu­mun­ur­inn var þá þegar aug­ljós. Ég kom sem gestur inn í þetta, alin upp út á landi, og sá þetta bara. Ég sér­hæfði mig í stétta­rann­sóknum við Cambridge-háskóla til að búa mig undir þróun sem ég sá alls staðar í kringum okkur, þ.e. meiri aðgrein­ingu út frá stétt og upp­runa. Svo þró­að­ist rann­sókn­ar­hug­myndin þegar Auður Magndís, félags­fræð­ingur og dokt­or­snemi kom til sam­starfs, en hún hafði fengið inn­sýn í þessi mál í gegnum starf sitt hjá Reykja­vík­ur­borg.

Þannig að þessar nið­ur­stöður eru stað­fest­ing á ein­hverju sem við höfðum til­finn­ingu fyrir. En að töl­urnar og þró­unin á þessum 20 árum hefði verið svona stöðug og pól­arnir orðnir svona afger­andi kom á óvart. Við erum nú ann­ars vegar með skóla­sam­fé­lag þar sem helm­ingur for­eldr­anna til­heyrir rík­ustu 20 pró­sent og hins vegar þar sem helm­ingur for­eldra er með fram­halds­gráðu úr háskóla,“ svarar Berglind Rós.

Enn fremur segir hún að ekki megi gleyma því að margir skólar eru bland­aðir. „Við erum fyrst og fremst að horfa á pól­ana,“ segir Berglind Rós og bætir því að að vissu­lega sé það gleði­efni að mörg skóla­hverfi séu blönduð hvað þessa þætti varðar.

„Eitt af því sem vert er að halda á lofti er að við erum enn með býsna blandað skóla­kerfi og þetta er ekki það ýkt að ekki sé hægt að vinna í þessu. Víða erlendis virð­ist aðgrein­ing komin á það stig að mjög erfitt er að snúa henni við, eins og til dæmis í Banda­ríkj­unum þar sem enda­laust er verið að kljást á við kyn­þátta­að­grein­ing­una, með slæ­legum árangri. Við ættum ekki á Íslandi að þurfa að lenda í því ef við grípum bolt­ann núna. Þetta er ekki orðið það slæmt – þetta er alveg ger­legt með smá stefnu­breyt­ingu, meiri með­vit­und, og sam­taka­mætti allra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir hún. 

Stjórnvöld og sveitarfélög bera ábyrgð á stöðunni

Í sam­an­tekt grein­ar­innar kemur fram að tvö sveit­ar­fé­lög hafi ekki tekið á móti inn­flytj­endum að sama marki og önnur og segir Berglind Rós að þau beri jafn­framt ábyrgð á stöð­unni.

„Þar sem tvö efna­hags­hverf­anna eru utan Reykja­víkur lítur út fyrir að sum sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa ekki beitt sér fyrir félags­legri blöndun innan vébanda sinna, til dæmis með því að bjóða upp á félags­legt hús­næði í sama mæli og önnur sveit­ar­fé­lög. Þetta á einnig við um þátt­töku við að taka á móti inn­flytj­endum og flótta­fólki, því auð­ug­ustu hverfin voru jafn­framt þau sem höfðu einna hæst hlut­fall for­eldra af íslenskum upp­runa, sem hafði hald­ist svipað frá árinu 1997 þrátt fyrir við­var­andi fjölgun inn­flytj­enda á þessu tíma­bili. Reykja­vík virð­ist hafa borið hit­ann og þung­ann af því ásamt þremur öðrum sveit­ar­fé­lögum svæð­is­ins. Aðgrein­ing skóla­hverfa eftir stétt og upp­runa á þátt í að við­halda og auka á jað­ar­setta stöðu barna sem nú þegar búa við krefj­andi aðstæður,“ segir í grein­inni.

Berglind Rós bendir á að ekki sé hægt að kenna fólki sem flytur hingað til lands um ástandið. „Inn­flytj­endur sem margir hverjir hafa lítið milli hand­anna, fara þangað sem hús­næði er ódýrt og þeir eru eins og aðrir for­eldrar að reyna að finna öfl­ugt skóla­hverfi og góðan aðbúnað, en þeim er oft safnað saman í gegnum stefnur stjórn­valda og sveit­ar­fé­laga. Þannig að kerf­is­lægt ger­ist þetta,“ segir hún.

„Fólk áttar sig ekki á því hverju það er að tapa“ með því að hafa blöndun í lág­marki, segir Berglind Rós að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár