Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair

Samtök Atvinnulífsins
Samtök Atvinnu­lífs­ins kjósa nú um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR vegna boð­aðra verk­falla hjá flug­vall­ar­starfs­mönnum Icelandair Mynd: Golli

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) til­kynnti fyrir skemmstu um ákvörðun sína um að efna til alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um verk­bann á félags­menn VR.

Í til­kynn­ingu SA segir að ákvörð­unin sé tekin í ljósi atkvæða­greiðslu VR um boðun verk­falls­að­gerða fyrir starfs­fólk Icelandair sem sinnir far­þega- og hleðslu­þjón­ustu á Kefla­vík­ur­flug­velli. 

Verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks sem á aðild að VR og fellur undir almennan kjara­samn­ing SA og VR. Ekki liggur fyrir hversu stór sá hópur er. Í frétt Vísis er haft Ragnari Þór Ing­ólfs­syni að verk­bannið gæti náð til allt að tug þús­unda félags­manna. Þá er gert ráð fyrir því að verk­bannið taki gildi á sama degi og verk­fall VR er ætlað að hefj­ast, 22. mars. 

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Sigríði Margréti Odds­dóttur, fram­kvæmda­stjóra SA, þar sem hún segir að kjara­samn­ingar sem und­ir­rit­aðir voru fyrir skömmu og mark­miðum þeirra „standi ógn af boð­uðum skæru­verk­föllum í tengslum við sér­kjara­samn­ing sem leiðir af aðal­kjara­samn­ingi VR.“

Atkvæða­greiðsla um verk­bann hófst í dag um hádegi og lýkur 14. mars klukkan tvö. Í til­kynn­ingu SA segir einnig að upp­lýs­inga­fundur muni fara fram klukkan tvö í dag. 

Í síð­ustu viku til­kynnti samn­inga­nefnd VR um að hún hafi fengið heim­ild til þess að halda atkvæða­greiðslu um verk­föll meðal flug­vall­ar­starfs­manna Icelandair. En um er að ræða um 150 starfs­menn sem sinna inn­ritun, tösku­mót­töku og brott­förum. 

Í til­kynn­ing­unni sem samn­inga­nefnd VR sendi frá sér í síð­ustu viku sagði að rík óánægja sé meðal margra starfs­manna Icelandair með vakta­fyr­ir­komu­lagið og skert rétt­indi þeirra til sam­fellds vinnu­tíma.

Fréttin hefur verið upp­færð

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár