Mynd: Wiki Commons/Ed Bierman

Félag makrílveiðimanna stefnir íslenska ríkinu

Þær útgerðir sem veiða mak­ríl á krókum segja að kvóti þeirra hafi verið helm­ing­aður þegar mak­ríll var kvóta­settur í fyrra. Þær telja minni útgerðir vera látnar bera þunga mis­gjörða rík­is­ins eftir að stór­út­gerðir unnu mál gegn rík­inu í des­em­ber 2018.

Félag mak­ríl­veiði­manna hefur stefnt íslenska rík­inu til við­ur­kenn­ingar á því sem þau telja ólög­mætar tak­mark­anir á heim­ildum félags­manna þess til veiða á mak­ríl.

Í stefnu félags­ins kemur fram að félagið vilji fá við­ur­kennt með dómi að úthlutun til ein­stakra skipa afla­hlut­deild á grund­velli tíu bestu afla­reynslu­ára þeirra á árun­unum 2008 til 2018, hafi verið óheimil.

Sú ráð­stöfun tryggði stór­út­gerðum sem veiða mak­ríl auknar heim­ildir en minnk­aði það sem var til skipt­anna fyrir félags­menn í Félagi mak­ríl­veiði­manna, sem eru þeir sem veiða mak­ríl úr Norð­austur- Atl­ant­hafs­makríl­stofn­inum með krókum, um helm­ing.

Samhliða því að mak­ríll­inn var kvóta­settur með þessum hætti var sett inn ákvæði sem leyfir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra að taka kvóta frá smærri bátum og færa til stærri skipa án end­ur­gjalds.

Telja ráðherra hafa verið að bregðast við dómi

Félag mak­ríl­veiði­manna vill meina að grund­völlur þess frum­varps sem lagt var fram þegar mak­ríl var kvóta­settir í fyrra­vor hafi verið mjög hag­stæður fyrir stærstu útgerðir lands­ins. Hann mið­aði við rúm­lega þrefalt lengri afla­reynslu­tíma en gild­andi lög um veiðar á deilistofnum kveða á um. Þar sem stærstu útgerð­irnar höfðu staðið einar að mak­ríl­veiðum fyrstu árin sem lögð eru til grund­vallar í lög­unum þá stór­græða þær á þeirri aðferð­ar­fræði sem ákveðið var að beita.

Í stefn­unni kemur fram að Félag mak­ríl­veiði­manna telji að það hafi bein­línis verið und­ir­liggj­andi mark­mið laga­setn­ing­ar­innar að auka hlut stór­út­gerða í mak­ríl­kvóta með því að hand­velja við­mið­un­arár sem þjón­uðu því mark­miði.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, virð­ist ann­ars vegar hafa verið að „bregð­ast við dómi hæsta­réttar um að fram­kvæmd veiði­stjórn­unar stjórn­valda hafi ekki stað­ist lög frá 2011 og hins­vegar að ríkið ætti yfir höfði sér skaða­bætur vegna þess­ara mis­gjörða. Með nýju lög­unum eru minni útgerðir látnar bera þunga þess­ara mis­gjörða rík­is­ins sem er ósann­gjarnt og mögu­lega ekki lög­mætt mark­mið laga­setn­ingar almennt.“

Tugmilljarðar króna undir

Í fyrra var mak­ríll færður í kvóta á grund­velli veið­i­­­­reynslu þar sem afla­heim­ild­ir, eða kvót­­­ar, voru að mestu færðar til stór­út­­­­­gerða. Mak­ríl­kvót­inn er tal­inn vera 65 til 100 millj­­­arða króna virð­i.

Það var gert í kjöl­far tveggja dóma Hæsta­réttar Íslands frá 6. des­em­ber 2018 þar sem stað­fest var að stór­út­gerðir hefðu verið mis­rétti beittar við úthlutun á mak­ríl­kvóta.

Margir við­mæl­endur Kjarnans innan sjáv­ar­út­vegs­ins telja að kvóta­setn­ingin á mak­ríl hafi verið til­raun til að færa stór­út­gerð­unum frið­ar­fórn. Ríkið myndi taka kvóta af minni útgerðum og færa til þeirra í von um að stór­út­gerð­irnar færu ekki í skaða­bóta­mál við ríkið.

Þrátt fyrir þetta ætla nokkur stór sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tæki í mál við íslenska ríkið vegna fjár­­­tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna úthlutar á mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2014. Sam­­­kvæmt fréttum síð­­­asta sumar munu bóta­­­kröfur þeirra nema allt að 35 millj­­­örðum króna. Verði þær sam­­­þykktar geta útgerð­­­irnar því náð til baka um 55 pró­­­sent af því sem þær hafa greitt í veið­i­­­­gjöld á und­an­­­förnum árum.

Langt ferli

Kjarninn hefur verið að reyna að kom­ast að því hverjar kröfur stór­út­gerð­anna á hendur rík­inu eru. Fyr­ir­spurn var fyrst send til upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar í fyrra­sum­ar. Í henni var óskað eftir því að fá stefnur þeirra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem stefnt hafa íslenskra rík­inu til greiðslu skaða­bóta afhentar auk þess sem beðið var um upp­lýs­ingar um hversu háar kröfur þeirra væru.

Erindið var sent til sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráðu­­neyt­is­ins sem brást ekki við því í á aðra viku. Þegar við­brögð komu fólst í þeim að áfram­­senda erindið á emb­ætti rík­­is­lög­­manns.

Hann taldi rétt að bera það undir lög­­­menn fyr­ir­tækj­anna sem um ræddi hvort þeir myndu sam­­þykkja að upp­­lýs­ingar um málin yrðu veittar og stað­­festi í kjöl­farið við Kjarn­ann að fyr­ir­­spurnir þess efnis hefðu verið sendar á umrædd fyr­ir­tæki.

Síðan fékkst ekk­ert við­­bót­­ar­svar, þrátt fyrir að rúmir fimm mán­uðir liðu frá því að upp­­haf­­leg fyr­ir­­spurn var send, þangað til 20. des­em­ber 2019.

Vilja ekki að að almenn­ingur fái gögnin

Þá sendi rík­­is­lög­­maður svar þess efn­ist að hann teldi ekki heim­ilt að afhenda stefn­­urn­­ar. Hann hefði óskað eftir afstöðu umræddra fyr­ir­tækja gagn­vart því að fjöl­miðlar myndu fá stefn­­urnar með því að beina spurn­ingum til lög­­­manna þeirra. „Liggur ekki fyrir sam­­þykki stefn­enda um að afhenda stefn­­urnar og verður að skilja afstöðu þeirra í ljósi seinni máls­liðar 9. gr. upp­­lýs­inga­laga nr. 140/2012 og telur emb­ættið því gögnin und­an­þegin upp­­lýs­inga­rétt­i.“

Auk þess sagði í svar­inu að rík­­is­lög­­maður mæti það „óraun­hæft að rýmri aðgangur sé fyrir hendi þótt kröfu um afhend­ingu sé beint að stjórn­­­valdi ef um sömu gögn er að ræða. Gögnin eru því eðli sínu sam­­kvæmt und­an­þegin upp­­lýs­inga­rétt­i.“

Kjarn­inn hefur kært synjun rík­­is­lög­­manns á aðgengi að umræddum upp­­lýs­ingum til úrskurð­­ar­­nefndar um upp­­lýs­inga­­mál.

Í frek­ari rök­stuðn­ingi fyrir synj­un­inni, sem rík­is­lög­maður sendi til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál 15. jan­úar 2019, kemur fram að synj­unin byggi á tvenns konar grunni. Ann­ars vegar þeim að gögnin séu und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti vegna þess að umrædd sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa ekki veitt heim­ild fyrir sitt leyti til afhend­ingar gagn­anna. „Í ljósi afstöðu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna og við könnun á nefndum stefnum verður að líta svo á að í þeim séu greindar nákvæmar upp­lýs­ingar um fjár­hags- og við­skipta- hags­muni þeirra[...]Gögnin verður að meta án til­lits til þess hvernig lög­gjaf­inn hefur lýst mark­miðum og til­gangi laga um fisk­veiði­stjórn með því að nytja­stofnar sjávar telj­ist til sam­eignar þjóð­ar­inn­ar,“ segir í bréfi rík­is­lög­manns.

Hins vegar byggði synjun hans á því að gögnin séu hluti af máls­skjölum í dóms­máli sem rekið er fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur. Rík­is­lög­maður telur að sér­stakar skorður séu á því sam­kvæmt lögum að afhenda gagna úr dóms­máli enda eru hugs­an­legir hags­munir af afhend­ingu þeirra allt aðrir en að varða almenn­ing. Engu breytir þótt máls­með­ferð í dóms­málum sé opin­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár