Þorgerður spyr Katrínu um hverjar skaðabótakröfur stórútgerðarinnar séu

Búið er að leggja fram skrif­lega fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráð­herra um hversu háa upp­hæð stór­út­gerðir eru að krefja íslenska ríkið vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta. Kjarninn óskaði fyrst eftir þeim upp­lýs­ingum í fyrra­sumar en ríkið vill ekki afhenda þær.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, hefur beint fyr­ir­spurn til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna úthlut­unar á heim­ildum til veiða á mak­ríl. Í fyr­ir­spurn­inni fer Þor­gerður Katrín fram á upp­lýs­ingar um hversu margar útgerðir hafi krafið íslenska ríkið um skaða­bætur vegna úthlut­unar á heim­ildum til veiða á mak­ríl í kjöl­far tveggja dóma Hæsta­réttar frá 6. des­em­ber 2018 og hvaða útgerðir það séu. Hún vill einnig fá að vita til hvaða ára skaða­bóta­kröf­urnar ná, um hversu miklar afla­heim­ildir sé að ræða hjá hverri útgerð fyrir sig, hversu háar skaða­bóta­kröfur ein­stakra útgerða séu og hvaða for­sendur liggi fyrir við útreikn­ing bóta­fjár­hæða hjá hverri útgerð fyrir sig.

Í fyrra var mak­ríll færður í kvóta á grund­velli veið­i­­­reynslu þar sem afla­heim­ild­ir, eða kvót­­ar, voru að mestu færðar til stór­út­­­gerða. Mak­ríl­kvót­inn er tal­inn vera 65 til 100 millj­­arða króna virð­i.

[adspot]Þrátt fyrir þetta ætla nokkur stór sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki í mál við íslenska ríkið vegna fjár­­tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna úthlutar á mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2014. Sam­­kvæmt fréttum síð­­asta sumar munu bóta­­kröfur þeirra nema allt að 35 millj­­örðum króna. Verði þær sam­­þykktar geta útgerð­­irnar því náð til baka um 55 pró­­sent af því sem þær hafa greitt í veið­i­­­gjöld á und­an­­förnum árum.

Fyrirspurn send sumarið 2019

Kjarninn sendi sam­bæri­lega fyr­ir­spurn og þá sem Þor­gerður Katrín hefur nú lagt fyrir for­sæt­is­ráð­herra, til upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar í fyrra­sumar. Í henni var óskað eftir því að fá stefnur þeirra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem stefnt hafa íslenskra rík­inu til greiðslu skaða­bóta afhentar auk þess sem beðið var um upp­lýs­ingar um hversu háar kröfur þeirra væru.

Erindið var sent til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins sem brást ekki við því í á aðra viku. Þegar við­brögð komu fólst í þeim að áfram­senda erindið á emb­ætti rík­is­lög­manns.

Hann taldi rétt að bera það undir lög­menn fyr­ir­tækj­anna sem um ræddi hvort þeir myndu sam­þykkja að upp­lýs­ingar um málin yrðu veittar og stað­festi í kjöl­farið við Kjarn­ann að fyr­ir­spurnir þess efnis hefðu verið sendar á umrædd fyr­ir­tæki.

Síðan fékkst ekk­ert við­bót­ar­svar, þrátt fyrir að rúmir fimm mán­uðir liðu frá því að upp­haf­leg fyr­ir­spurn var send, þangað til 20. des­em­ber 2019.

Vilja ekki að að almenn­ingur fái gögnin

Þá sendi rík­is­lög­maður svar þess efn­ist að hann teldi ekki heim­ilt að afhenda stefn­urn­ar. Hann hefði óskað eftir afstöðu umræddra fyr­ir­tækja gagn­vart því að fjöl­miðlar myndu fá stefn­urnar með því að beina spurn­ingum til lög­manna þeirra. „Liggur ekki fyrir sam­þykki stefn­enda um að afhenda stefn­urnar og verður að skilja afstöðu þeirra í ljósi seinni máls­liðar 9. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 og telur emb­ættið því gögnin und­an­þegin upp­lýs­inga­rétt­i.“

Auk þess sagði í svar­inu að rík­is­lög­maður mæti það „óraun­hæft að rýmri aðgangur sé fyrir hendi þótt kröfu um afhend­ingu sé beint að stjórn­valdi ef um sömu gögn er að ræða. Gögnin eru því eðli sínu sam­kvæmt und­an­þegin upp­lýs­inga­rétt­i.“

Kjarn­inn hefur kært synjun rík­is­lög­manns á aðgengi að umræddum upp­lýs­ingum til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

[adspot]Í frek­ari rök­stuðn­ingi fyrir synj­un­inni, sem rík­is­lög­maður sendi til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál 15. jan­úar 2019, kemur fram að synj­unin byggi á tvenns konar grunni. Annars vegar þeim að gögnin séu und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti vegna þess að umrædd sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa ekki veitt heim­ild fyrir sitt leyti til afhend­ingar gagn­anna. „Í ljósi afstöðu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna og við könnun á nefndum stefnum verður að líta svo á að í þeim séu greindar nákvæmar upp­lýs­ingar um fjár­hags- og við­skipta- hags­muni þeirra[...]Gögnin verður að meta án til­lits til þess hvernig lög­gjaf­inn hefur lýst mark­miðum og til­gangi laga um fisk­veiði­stjórn með því að nytja­stofnar sjávar telj­ist til sam­eignar þjóð­ar­innar,“ segir í bréfi rík­is­lög­manns.

Hins vegar byggði synjun hans á því að gögnin séu hluti af máls­skjölum í dóms­máli sem rekið er fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Rík­is­lög­maður telur að sér­stakar skorður séu á því sam­kvæmt lögum að afhenda gagna úr dóms­máli enda eru hugs­an­legir hags­munir af afhend­ingu þeirra allt aðrir en að varða almenn­ing. Engu breytir þótt máls­með­ferð í dóms­málum sé opin­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár