Staðfest tilfelli COVID-19 orðin sex

Ein­stak­ling­arnir sem greindust með veiruna dag komu til lands­ins á laug­ar­dag­inn með flugi Icelandair til Kefla­vík­ur­flug­vallar frá Veróna.

Þrjú til­felli veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómi voru greind á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í dag. Heild­ar­fjöldi stað­festra til­fella er núna sex. Ein­stak­ling­arnir sem greindust með veiruna dag komu til lands­ins á laug­ar­dag­inn með flugi Icelandair til Kefla­vík­ur­flug­vallar frá Veróna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Sam­hæf­ing­ar­stöð­inni í dag.

Þessir þrír ein­stak­lingar, tvær konur og einn karl, eru allir á sex­tugs­aldri og búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þau eru ekki mikið veik en þó með dæmi­gerð ein­kenni COVID-19 sjúk­dóms (hósti, hiti, bein­verkir), sam­kvæmt Sam­hæf­ing­ar­stöð­inni.

„Maðurinn sem greind­ist fyrstur Íslend­inga með veiruna hefur verið útskrif­aður af Land­spít­ala og er nú í heima­ein­angrun. Allir sem hafa verið greindir með smit eru því í heima­ein­angrum við sæmi­lega heilsu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá kemur fram að smit­rann­sóknateymi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sótt­varna­læknis vinni nú að því að rekja smit­leiðir í tengslum við þessi nýju til­felli. Á síð­ustu tveimur dögum hafi teymið haft sam­band við um 115 ein­stak­linga. Mikill meiri­hluti þeirra hafi verið um borð í flug­vél Icelandair sem kom frá Veróna (skil­greindu hættu­svæði) á laug­ar­dag­inn.

„Meiri­hluti þeirra far­þega sem komu frá München með Icelandair á sunnu­dag­inn hafði verið í Aust­ur­ríki. Hvorki Þýska­land né Aust­ur­ríki eru skil­greind hættu­svæði fyrir COVID-19 og því þurfti um 30 manna hópur að fara í sótt­kví eftir flugið frá München. Allir far­þeg­arnir sem komu frá Veróna fóru hins vegar í sótt­kví,“ segir í til­kynn­ing­unni.

260 manns í sóttkví á landinu öllu

Jafn­framt segir að í dag hafi 19 sýni verið rann­sökuð á Land­spít­ala, þar af hafi þrjú fyrr­nefnd til­felli verið jákvæð. Frá upp­hafi hafi um 150 sýni verið rann­sökuð. Í kringum 260 manns séu í sótt­kví á land­inu öllu.

Nánari upp­lýs­ingar um heima­sótt­kví má nálg­ast á vef land­læknis. Svo gæti farið að fleiri muni þurfa að fara í sótt­kví á næstu dögum. Atvinnu­rek­endur og stjórn­endur á vinnu­mark­aði eru hvattir til að sýna stöðu þessa fólks skiln­ing.

„Það er vitað að fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna, ekki síst af Land­spít­ala er á far­alds­fæti en af hálfu Land­spít­ala er verið að kort­leggja um hve marga er að ræða. Því er lík­legt að ein­hver fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna þurfi að fara í sótt­kví sem varir í 14 daga. Þá er ljóst að íslenskt heil­brigð­is­kerfi er við­kvæmt og það gæti orðið afdrifa­ríkt ef upp kæmi smit hjá starfs­manni. Því vilja land­læknir, sótt­varna­læknir og almanna­varnir biðla til heil­brigð­is­starfs­manna að fresta öllum utan­lands­ferðum eftir því sem kostur er meðan það skýrist hvert umfang far­ald­urs­ins verður,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Vinna að því að koma upplýsingum til fólks

Upp­lýs­ingateymi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra vinnur að því að koma upp­lýs­ingum um COVID-19 til þeirra sem telj­ast til við­kvæmra hópa. Þetta eru til að mynda aldr­aðir ein­stak­lingar og þeir sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Þetta verður gert í sam­ráði við sjúk­linga­sam­tök, fag­fé­lög og hags­muna­hópa þess­ara ein­stak­linga.

„Unnið er að opnun far­sótt­ar­húss á Rauð­ar­ár­stíg í Reykja­vík. Til­gangur þess er að hýsa ein­stak­linga sem hafa verið útsettir fyrir smiti en eiga ekki greiðan aðgang að hús­næði hér á landi (t.d. ferða­menn). 70 her­bergi verða í hús­inu. Verk­efnið er á vegum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Rauða kross­ins. Í dag var kennsla og fræðsla fyrir starfs­fólk og sjálf­boða­liða Rauða kross­ins.

Sótt­varna­læknir minnir á að ein­stak­lingar, með búsetu á Íslandi, sem hafa verið á skil­greindum áhættu­svæðum, það er Ítalíu, Kína, Suður Kóreu og Íran og snúa heim eru hvattir til að halda sig heima í 14 daga eftir að þeir hafa yfir­gefið skil­greind áhættu­svæði. Erlendir rík­is­borg­arar þurfa hins vegar ekki að fara í sótt­kví þar sem að talið er að þeir séu ólík­legri að vera í nánu sam­neyti við marga ein­stak­linga og auk þess dvelja þeir yfir­leitt stutt á Íslandi. Smit­hætta frá þeim er því talin veru­lega minni en frá Íslend­ingum sem hér búa,“ segir að lokum í til­kynn­ingu Sam­hæf­ing­ar­stöðv­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár