Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn eykst nær stöðugt

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur sótt í sig veðrið eftir upp­ljóstr­anir úr Panama­skjöl­unum og mælist nú með 29,1 pró­sent fylgi. Vinstri græn eru eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem hefur vaxið síð­ast­lið­inn mánuð.

Bjarni Benediktsson hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins síðan árið 2009.
Bjarni Bene­dikts­son hefur verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan árið 2009. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem fyrr stærsti stjórn­mála­flokkur á Íslandi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni sem gerð var í morgun. Píratar halda áfram að tapa fylgi eftir að hafa mælst stærsti flokkur lands­ins frá ára­mótum þar til um miðjan síð­asta mánuð. Stuðn­ingur við Sjálf­stæðs­flokk­inn mælist nú 29,1 pró­sent og stuðn­ingur við Pírata 27,5 pró­sent. Mest hefur stuðn­ingur við Pírata mælst 36,7 pró­sent í kosn­inga­spánni frá ára­mótum.

Stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn nú er á pari við síð­ustu kosn­inga­spár en síðan 7. apríl, þegar fylgið var í mestri lægð í 22 pró­sentum, hefur fylgi flokks­ins auk­ist nær stöðugt. Til sam­an­burðar hefur stuðn­ingur við Fram­sókn­ar­flokk­inn, sam­starfs­flokk Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rík­is­stjórn, minnkað og hefur ekki mælst yfir 10,1 pró­sent í kosn­inga­spánni síðan 1. apríl. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er fjórða stærsta fram­boðið í nýj­ustu kosn­inga­spánni með 9 pró­sent fylgi. Sam­an­lagt mæl­ast stjórn­ar­flokk­arnir með 38,1 pró­sent kjós­enda.

[adspot]

Vinstri græn eru sem fyrr þriðja stærsta fram­boðið í kosn­igna­spánni og hlyti 17,6 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Flokk­ur­inn er sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem kjós­endur hafa helst leitað til eftir upp­ljóstr­anir úr Panama­skjöl­unum og eflaust sótt aukið fylgi til þeirra sem áður sögð­ust ætla að kjósa Pírata eða Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Sam­fylk­ingin minnkar enn og nýtur nú stuðn­ings 7,6 pró­sent kjós­enda. Fylgi við Sam­fylk­ing­una hefur ekki verið meira en 10 pró­sent síðan í jan­úar. Um kom­andi helgi mun flokk­ur­inn kjósa sér nýja for­ystu. Árni Páll Árnason, sitj­andi for­maður, ætlar ekki að gefa kost á sér til for­ystu­starfa í flokknum áfram en hann tók við af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur árið 2013 um það leiti sem Jóhanna var að láta af emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

Viðreisn mælist nú í fyrsta sinn stærri en Björt fram­tíð. Í síð­ustu kosn­inga­spám hefur dregið mikið saman með þessum fram­boðum og þau mælst svipað stór. Stuðn­ingur við Viðreisn mælist nú 4,1 pró­sent en Björt fram­tíð fengi 3,8 pró­sent atkvæða ef kosið yrði nú. Þessi tvö fram­boð eru eins og stendur á mörkum þess að hafa nægj­an­legt fylgi til að ná manni á þing. Ætla má að flokkur þurfi að fá um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til að ná kjöri. Erfitt er hins vegar að fjöl­yrða um slíkt því eitt fram­boð gæti verið að sækja meiri stuðn­ing í eitt kjör­dæmi umfram önnur. Enn er ekki farið að kanna stuðn­ing innan hvers kjör­dæmis fyrir sig.

Vikmörk

Í nýj­ustu kosn­inga­spánni voru vik­mörk reiknuð við fylgi hvers fram­boðs. Þeim mun meira fylgi sem hvert fram­boð mælist með þeim mun hærri eru vik­mörkin. Skekkju­mörk við fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Pírata eru +/- 1,9 pró­sentu­stig. Vikmörk við fylgi Vinstri grænna eru +/- 1,6 pró­sentu­stig.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nýtur 9 pró­senta fylgis í kosn­inga­spánni með vik­mörk­unum +/- 1,2 pró­sentu­stig. Sam­fylk­ingin mælist með 7,6 pró­sent fylgi með vik­mörk­unum +/- 1,1 pró­sentu­stig. Vik­mörkin við fylgi Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar eru +/- 0,8 pró­sentu­stig.

Dögun og Alþýðu­fylk­ingin myndu hljóta minna en eitt pró­sent atkvæða í kosn­ingum ef kosið yrði nú, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Dögun mælist með 0,8 pró­sent fylgi og Alþýðu­fylk­ingin með 0,3 pró­sent. Önnur fram­boð mæl­ast með 0,2 pró­sent stuðn­ing. Vikmörk kosn­inga­spár­innar fyrir þessi fram­boð eru hins vegar jafn stór og þau mæl­ast með. Þannig eru vik­mörk Dögunnar +/- 0,8 pró­sent og Alþýðu­fylk­ing­ar­innar +/- 0,3 pró­sent.

Um nýjustu kosningaspána

Nýjasta kosn­inga­spáin er byggð á fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi stjórn­mála­flokka og fram­boða til Alþingis. Þar eru nið­ur­stöður þriggja nýj­ustu kann­anna vegnar. Nýjasti þjóð­ar­púls Gallup vegur þar óvenju þungt og hlýtur meira en helm­ings vægi í spánni. Ástæða þess er hversu fjöl­menn sú könnun var. Alls tóku rúm­lega 4.000 manns afstöðu til spurn­ing­anna sem lagar voru fyrir í könn­un­inni. Þá var könn­unin gerð yfir tveggja vikna tíma­bil. Hægt er að lesa nánar um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar hér. Vægi kann­ana í nýj­ustu kosn­inga­spánni 1. júní er sem hér segir:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 14. til 28. apríl (vægi 54,1%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 23. til 24. maí (vægi 23,5%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 12. til 13. maí (vægi 22,4%)

Hvað er Kosn­inga­spá­in?

Kosn­inga­spálíkan Bald­urs Héð­ins­sonar miðar að því að setja upp­lýs­ing­arnar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­inga. Kjarn­inn birti Kosn­inga­spá Bald­urs fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar og reynd­ist sú til­raun vel. Á vefnum kosn­inga­spá.is má lesa nið­ur­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­vik kann­ana miðað við kosn­inga­úr­slitin.

Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila er reikn­aður út frá sögu­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­inga­úr­slit­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár