Vilja að fólk fari út, njóti lífsins og nýti veðrið

Yfir­lög­reglu­þjónn hvetur fólk enn og aftur til að fara var­lega, virða tveggja metra regl­una og hóp­ast ekki saman – en fagnar því að fólk hafi notið veð­ur­blíð­unnar um helg­ina.

Fólk naut þess um helgina í miðbæ Reykjavíkur að sleikja sólina eftir langan vetur.
Fólk naut þess um helg­ina í miðbæ Reykja­víkur að sleikja sól­ina eftir langan vetur. Mynd: Bára Huld Beck

Gríð­ar­lega gott veður var um helg­ina víðs­vegar um landið og bar eitt­hvað á því að fólk hóp­aði sig saman. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að þau hefðu ákveðnar áhyggjur af þessu en að erfitt væri að grípa til ein­hverra sér­stakra aðgerða.

„Við auð­vitað höldum áfram að tala um að við erum ennþá að benda fólki á að virða tveggja metra regl­una og að vera ekki að safn­ast saman í stóra hópa,“ segir hann.

[adspot]

Höfða til skynseminnar

Nú eru bráðum tvær vikur síðan „4. maí-til­lög­urnar“ voru kynntar og segir Víðir að þau hafi fundið fyrir því að þær til­lögur hafi losað ýmis­legt í hegðun fólks. „Þegar við sjáum hvort við fáum ein­hverjar hækk­andi tölur þá þurfum við auð­vitað að grípa til aðgerða en núna erum við bara að höfða til skyn­semi fólks.“

Víðir segir enn fremur að auð­vitað vilji þau að fólk fari út, njóti lífs­ins og nýti veðrið. „Það er nú ekki á hverjum degi sem við fáum svona daga eins og við vorum með um helg­ina. Það er bara æðis­legt að sjá hvað margir not­uðu tæki­færið.“

Á sama tíma hvetur hann fólk til þess að fara var­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár