Skattauppljóstranir valda titringi í breskum stjórnmálum

Upp­ljóstr­anir fjöl­miðla um að HSBC bank­inn hafi aðstoðað þús­undir manna um allan heim við að skjóta pen­ingum undan skatti hafa vakið mikla athygli víða í dag. Ekki síst hefur málið vakið upp umræðu í breskum stjórn­málum, en innan við 100 dagar eru í kosn­ingar í Bret­landi. Flokk­arnir saka hver annan um ábyrgð á mál­inu.

Búið er að boða til sér­stakrar umræðu um málið í neðri deild breska þings­ins klukkan 15:30 í dag. Þá verður málið rætt á fundi end­ur­skoð­un­ar­nefndar þings­ins síðar í vik­unni og munu skatta­yf­ir­völd svara fyrir málið á þeim fundi.

„Þetta er mjög alvar­legt mál og rík­is­stjórnin þarf að svara alvar­legum spurn­ingum,“ sagði Ed Miliband, leið­togi Verka­manna­flokks­ins í morgun. Það er einkum tvennt sem stjórn­ar­and­staðan vill ræða. Annars vegar er það Stephen Green, sem var banka­stjóri og síðar stjórn­ar­for­maður bank­ans á tíma­bil­inu sem gögnin taka til. Hins vegar hvers vegna ekki hafi verið gengið harðar fram í mál­inu, þar sem skatta­yf­ir­völd hafa haft list­ann yfir mögu­lega skattsvik­ara undir höndum frá árinu 2010.

[caption id="attachment_19609" align="align­right" width="262"] Stephen Green var banka­stjóri og stjórn­ar­for­maður HSBC áður en hann varð ráð­herra undir David Cameron. Hann neitar að tjá sig.[/caption]

Green starf­aði fyrir HSBC í 28 ár. Hann var banka­stjóri árin 2003 til 3006, og stjórn­ar­for­maður frá 2006 til 2010. Gögnin sem var lekið til fjöl­miðla nú eru frá árunum 2005 til 2007. Green sagði sig frá störfum fyrir bank­ann til þess að ger­ast versl­un­ar­ráð­herra í rík­is­stjórn David Cameron. Hann starf­aði sem ráð­herra til árs­ins 2013 en er nú þing­maður í lávarða­deild­inni.

Skipun hans sem ráð­herra tók gildi átta mán­uðum eftir að skatta­yf­ir­völd í Bret­landi fengu afrit af list­anum sem nú hefur ratað í fjöl­miðla.

Green neitar enn sem komið er að tjá sig um málið.

Margaret Hodge, sem er þing­maður Verka­manna­flokks­ins og for­maður end­ur­skoð­un­ar­nefndar þings­ins, sagði við BBC í morgun að annað hvort hafi Green verið „sof­andi við stýrið, eða hann vissi þetta og tók því þátt í vafasömum skatta­gjörn­ingum. Hvorn veg­inn sem er þá var hann mað­ur­inn við stjórn­völ­inn og ég held að hann þurfi að svara mik­il­vægum spurn­ingum nú.“ Hodge við­ur­kenndi þó að margt af því sem átti sér stað hjá HSBC hafi gerst á meðan Verka­manna­flokk­ur­inn var við völd, en sagði að tím­arnir hefðu breyst síðan þá. Hún varp­aði einnig fram spurn­ingum um ábyrgð skatta­yf­ir­valda.

David Cameron hefur varið ákvörðun sína um að ráða Green sem ráð­herra. „Stephen Green var frá­bær versl­un­ar­ráð­herra, hann stóð sig vel. En ég vil líka bæta því við að engin rík­is­stjórn hefur gert meira en þessi til að ráð­ast gegn skattsvikum og skattaund­anskoti.“

Nick Clegg, leið­togi frjáls­lyndra demókrata hefur dæm­inu upp á Verka­manna­flokk­inn og sagt að lek­inn sýni einna helst að Verka­manna­flokk­ur­inn hafi leyft bönk­unum að starfa án almenni­legs ramma og reglna. „Við höfum gert tals­vert meira við að taka til í bönk­unum en Verka­manna­flokk­ur­inn gerði nokkurn tím­ann.“

Skatta­yf­ir­völd í Bret­landi segj­ast hafa end­ur­heimt 135 millj­ónir punda í gegnum upp­lýs­ingar af list­anum. Farið hafi verið skipu­lega í gegnum öll gögnin og skattar, vextir og sektir hafi verið greiddar af þeim sem földu eignir í Sviss til að kom­ast hjá því að borga skatt. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár