Samfélag óhugnaðar og illsku

Jakob S. Jónsson fjallar um bók Ólínu Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur, Spegill fyrir skugga­baldur. Hann segir að það kosti ómælt hug­rekki og þor að segja sög­urnar af því hvernig venju­legt fólk hafi að ósekju orðið fyrir barð­inu á valda­sjúkum skugga­böldr­um.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir Mynd: RÚV

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir: Spegill fyrir skuggabaldur. Atvinnubann og misbeiting valds. Skrudda 2020.

Samkvæmt nýj­ustu fréttum (mbl.is 28. jan. 2021) hefur Ísland fallið á svo­nefndum spill­ing­ar­lista um nokkur sæti, úr því 11. í hið 17. og er þarmeð neðst Norð­ur­landa á þessum lista. Það er eng­inn heiður að því. Þessi listi sýnir nið­ur­stöður sam­taka sem heita Transparency International, en þau eru alþjóð­leg sam­tök gegn spill­ingu sem mælir árlega svo­nefnda spill­ing­ar­vísi­tölu í flestum löndum heims. Mælingin byggir á áliti sér­fræð­inga og aðila í við­skipta­líf­inu og kall­ast á ensku Corruption Perception Index (CPI) en sam­tökin njóta virð­ingar á alþjóða­vett­vangi.

Í sömu frétt mbl.is má lesa að rann­sóknir sýni með óyggj­andi hætti að spill­ing sé „ill­víg mein­semd sem ógnar lýð­ræð­inu, grund­vall­ar­rétt­indum, tæki­færum og lífs­gæðum fólks hvar­vetna í heim­inum og grefur undan trausti í sam­fé­lag­inu og gagn­vart stjórn­völdum og stofn­unum á sviði fram­kvæmd­ar­valds (sic), lög­gjaf­ar­valds og dóms­valds. Ísland er engin und­an­tekn­ing frá því“. Svo mörg eru þau orð og ekki lýgur mogg­inn, svo gripið sé til vel­þekkts orð­taks kalda­stríðs­ár­anna. Meira má lesa á vef sam­tak­anna, www.transparency.org.

Ofan­ritað er skrifað af því til­efni að ég var að leggja frá mér eina mik­il­væg­ustu bók, sem ég hef lesið. Mik­il­væg­ustu í merk­ing­unni þýð­ing­ar­mikil fyrir mig sem ein­stak­ling, en ekki síður mik­il­væg fyrir Ísland sem rétt­ar­ríki. Bókin heitir Spegill fyrir skugga­baldur og höf­undur hennar, Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, lyftir fram spurn­ingu, sem brýnt er að svara. Lesandi bók­ar­innar þarf við lok lest­urs að gera upp við sig hvers konar þjóð vill hann til­heyra og í hvers konar landi hann vill búa. Bókin er eins konar speg­ill – speg­ill fyrir ein­stak­ling­inn, fyrir þjóð­ina. Í for­grunni er auð­vitað spurn­ingin hvernig þjóðin tekur sínar sam­eig­in­legu, stóru ákvarð­anir, eins og til dæmis í kosn­ingum – enda nokkuð algengt við­horf að spill­ing á Íslandi eigi sér einkum rætur í helm­inga­skipta­regl­unni sem Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur komu á um þær mundir sem stríðs­gróði í kjöl­far seinni heims­styrj­aldar fór að hafa áhrif á íslenskt hag­kerfi. En umfram allt er bók Ólínu speg­ill fyrir það fyr­ir­bæri í þjóð­líf­inu sem kall­ast skugga­baldur. Skugga­baldur er í þessu sam­hengi skepnan sem við­heldur spill­ing­unni, nær­ist á henni og beitir hvaða brögðum sem er í þeim til­gangi og getur eðli­lega ekki horfst í augu við sjálfa sig, enda sam­tímis hluti af mann­legu sam­fé­lagi.

[adspot]

Und­ir­tit­ill­inn ber þess vitni að ekki er um neinn skemmti­lestur að ræða: Atvinnu­bann og mis­beit­ing valds.

Atvinnu­bann er aðgerð sem beitt er gegn ein­stak­lingi þegar honum er af vald­hafa meinað að vinna við það starf sem hann er ráð­inn til að gegna, hefur menntað sig til eða vill af öðrum orsökum vinna. Þessir vald­hafar geta beitt sér í krafti pólítísks valds, pen­inga­valds eða hvaða valds sem er – en það sem er þessum vald­höfum sam­eig­in­legt er að þeir eitra umhverfi sitt, eyði­leggja líf og lífs­gæði ann­arra og beita hik­laust og sam­visku­laust kúgun og ofbeldi.

Atvinnu­bann er þekkt m.a. úr þýskri sögu (þótt finna megi dæmi um það í flestum sam­fé­lögum í nútíma) og hið þýska hug­tak öðl­að­ist sess í öðrum tungu­málum: Berufsver­bot.

Á íslensku var berufsver­bot þýtt sem atvinnu­bann. Sá sem fyrir atvinnu­banni verður er van­virtur, nið­ur­lægður, yfir­leitt á bak, sviftur lífs­við­ur­væri sínu og á end­anum jafn­vel gert ókleift að sætta sig við að vera á lífi. Þetta er vita­skuld grafal­var­legt mál sem varðar fleiri en ein­göngu þá sem verða fyrir því – vinnu­fé­lagar, kunn­ingjar, vinir, fjöl­skylda verða líka fyrir barð­inu á atvinnu­banni, jafn­vel þótt óbeint sé. Atvinnu­bann ætti að vera glæpa­vætt fyr­ir­bæri, en þeir sem beita því njóta þess hve erfitt er að færa sönnur á að um atvinnu­bann sé að ræða.

Það er vel til fundið hjá Ólínu að kalla þessa vald­hafa skugga­baldra. Skugga­baldur er fyr­ir­bæri úr þjóð­trúnni. Skugga­baldur er afkvæmi tófu og kattar en kemur sam­kvæmt Vís­inda­vefnum úr móð­ur­kviði refs­ins. Hugtakið skugga­baldur er einnig notað yfir „illan anda“, „myrkra­mann“ og „læðu­poka“. Skugga­baldur er víð­sjár­vert dýr, ekki síst í mann­heimum.

Það má leita víðar í dýra­rík­inu að skýr­ingum á eðli skugga­bald­urs og hvað veldur skað­legri hegðun hans. Ólína ber kvik­indið saman við hum­ar­inn og segir frá því hvernig hum­ar­inn verður fyrir heila­breyt­ingum þegar verða til dæmis átök vegna stöðu hans í félags­heild­inni. Sá sem tapar þróar und­ir­gefn­ari heila sem þjónar betur nýrri stöðu hans sem yfir­bug­aður ein­stak­lingur í hópnum; sá sem sigrar verður hins vegar fyrir því að serótónínið í heil­anum eykst og hann getur þess vegna gert sig stærri og hættu­legri ásyndar en áður. „Hann verður sperrtur og stát­inn skel­fiskur sem ber sig vel og er ógn í augum ann­arra humra“, eins og segir í bók Ólínu.

Ólínu ber saman þann sem mis­beitir valdi sínu við þann hum­ar­inn sem fer sigr­andi út úr átökum. Það er auð­vitað, eins og hún tekur líka fram, margt ólíkt með humri og manni, en heila­breyt­ing getur vissu­lega orðið í manni af því að kom­ast í miklar álnir og öðl­ast þar með mikil völd. Það er t.d. athygl­is­vert að velta þess­ari heila­breyt­ingu fyrir sér þegar rifjuð er upp sjón­varps­fréttin þar sem sonur Þor­steins Más, for­stjóra Samherja, ræðst að seðla­banka­stjóra á göngum Alþingis með skömmum. Þarna er kannski að sjá birt­ing­ar­mynd breyt­ingar á heila­starf­semi, sam­bæri­legri við þá sem hum­ar­inn upp­lifir þegar magn serótóníns í heil­anum hefur hækkað meira en hollt er.

Það er óhætt að kalla Ólínu Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur sér­fræð­ing í efn­inu. Hún hefur mætt ótal skugga­böldrum í mann­heimum, og í bók­inni segir hún okkur frá þem fundum sem hún hefur átt við þessi ill­yrmis­legu kvik­indi. En Ólína er ekki að skrifa fórn­ar­lamba­sögu sjálfrar sín. Markmið hennar er stærra en svo. Vissu­lega væri það þó freist­andi, enda eru for­dæmin til staðar. Þær eru t.d. margar, Hollywoodkvikmyndirnar, sem segja frá bar­áttu lít­il­magn­ans við hin sterku fjár­mála­öfl – það nægir að nefna mynd­ina um hina bar­átt­uglöðu Erin Brockowich; í þeirri mynd, sem byggð er á sönnum atburðum, barð­ist Erin Brockowich gegn orku­fyr­ir­tæk­inu Pacific Gas and Electric Company, sem er (var?) álíka umsvifa­mikið í sínu hér­aði og sum íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru í sínum heima­högum. Saga Erin Brockovich hefur þó eitt fram­yfir sögur (ath. fleir­töl­una!) þær sem Ólína greinir frá – Erin bar sigur úr býtum og hlaut frægð fyrir meðan Pacific Gas and Electric Company stóð uppi með skömm­ina, sekt­ina og skaða­bæt­urnar og varð auk þess að Hollywoodkvikmynd þar sem Julia Roberts lék hlut­verk sögu­hetj­unnar. Sam­skipti við skugga­baldra enda ekki alltaf svo vel.

Ólína hefur þurft að leita réttar síns í mörgum málum þar sem á henni hefur verið brotið – og hún er sann­ar­lega ekki ein á báti um að lenda í þeirri reynslu, miðað við fjölda þeirra til­vika sem hún greinir frá í bók sinni. Frá­sögnum þessum til stuðn­ings vitnar hún í fjölda sam­tíma­heim­ilda, frá­sagnir fjöl­miðla og opin­ber skjöl svo eitt­hvað sé nefnt.

Það geta örugg­lega margir borið vitni um að skugga­baldra er að finna víðar en flesta grunar í sam­fé­lagi okkar. Nýlegar tölur frá sam­tök­unum Transparency International benda til þess, enda þríf­ast skugga­baldrar á spill­ingu rétt eins og púkar á fjós­bita þríf­ast á bölvi og ragni. Hvort tveggja skapar sam­fé­lag óhugn­aðar og illsku og er ekk­ert gott vega­nesti kom­andi kyn­slóðum.

Eins og fyrr segir byggja aðferðir skugga­baldr­anna, valds­mann­anna, á ógn og ótta. Þær hafa ekki ein­ungis vond áhrif á líf manna, þær eru eyði­leggj­andi. Ástæðu­lausar upp­sagnir, róg­burður, atvinnu­bann – þetta eru ein­hver mest mann­skemm­andi glæpa­verk sem hægt er að vinna gegn nokkrum manni. Það er ekki ein­ungis vegna eðlis glæps­ins, heldur líka og ekki síður vegna þess að það er álíka ómögu­legt að rekja slóð­ina til þeirra sem glæpnum valda. Það er ómögu­legt að rekja orsak­irnar, að kom­ast að rótum vand­ans. Róg­burð­ur­inn – svo dæmi sé tekið af einni aðferð skugga­baldra – vinnur líkt og smit sem eng­inn veit hvaðan kemur. Það blússar upp þar sem þess er minnst von og þegar minnst varir. Það er ekk­ert bólu­efni til, það verður hvergi komið við „damage control“ og við­kom­andi býr við afleið­ingar róg­burð­ar­ins það sem eftir er æfinnar.

Það má aftur spyrja þeirrar spurn­ingar, sem bók Ólínar Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur vekur: Viljum við búa í slíku sam­fé­lagi? Viljum við búa í sam­fé­lagi sem fellur niður á skal­anum yfir spill­ing­ar­vísi­töl­una? Ef ekki liggur bein­ast við að hvetja alla þá sem vilja bæta sam­fé­lagið að bregða upp spegl­unum framan í skugga­bald­rana.

Það kostar hins vegar ómælt hug­rekki og þor að vekja athygli á þessu ástandi mála, segja sög­urnar af því hvernig venju­legt fólk hefur að ósekju orðið fyrir barð­inu á valda­sjúkum skugga­böldrum. Ólína Kjerúlf Þor­valds­dóttir hefur svo sann­ar­lega sýnt að hún býr yfir slíku hug­rekki og fyrir það ber að þakka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár