Stjórnin talaði um betra Ísland en 2007, hanaslag alnetsins og kvenfyrirlitningu gagnrýnenda

Umræður um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra fóru fram í gær­kvöldi í fyrsta sinn eftir að ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur var mynduð. Stjórn­ar­liðar sem tóku til máls mærðu eigin verk, stjórnun og fram­tíð­ar­sýn.

Vinstri græn:

Katrín Jak­obs­dóttir, sem verður að óbreyttu for­sæt­is­ráð­herra áfram út þetta kjör­tíma­bil, flutti fyrstu stefnu­ræðu sína á kjör­tíma­bil­inu í gær. Þar sagð­ist hún hafa setið á þingi í tæp 15 ár og á þeim tíma hafi Ísland gengið í gegnum hrun og end­ur­reisn, ólíkar rík­is­stjórnir, sveiflur í stjórn­málum, fyrir utan ýmis utan­að­kom­andi áföll og er þar heims­far­ald­ur­inn nær­tækt dæmi. „Íslenskt sam­fé­lag hefur breyst og þró­ast á þessum tíma. Þó að manni finn­ist stundum miða hægt er það nú svo að okkur hefur miðað áfram á flestum sviðum eins og nýlegar rann­sóknir stjórn­mála­fræð­inga hafa m.a. dregið fram. Ekki myndi ég vilja skipta á Íslandi dags­ins í dag og Íslandi árs­ins 2007, en þá var ég kjörin á þing, þegar ég horfi á stjórn­kerfið, atvinnu­lífið og sam­fé­lagið.“

Hún sagð­ist ekki líta ein­göngu sem for­sæt­is­ráð­herra þeirra sem kusu hana heldur vill Katrín vanda sig við að vera for­sæt­is­ráð­herra allra lands­manna. Reglan um að þing­mönnum beri að fara eftir eigin sann­fær­ingu sé mik­il­væg. „Hún ber með sér þá for­sendu að þing­menn geti verið ósam­mála þótt þeir stefni að sama marki, sem við gerum öll, sem er að efla þjóð­ar­hag. Rökræða og jafn­vel rifr­ildi er mik­il­væg for­senda þess að við leiðum fram kosti og galla hvers máls. Við þurfum því að sýna skoð­unum ann­arra stundum meiri virð­ingu en gert er í hanaslag alnets­ins og hollt er að muna að eng­inn er hand­hafi alls hins rétta og góða í sam­fé­lag­inu.“

Sagði gagnrýnisraddir oft byggja á kvenfyrirlitningu

Vara­for­maður Vinstri grænna og nýr félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, tal­aði næstur fyrir hönd flokks síns.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son.

Hann sagði mik­il­væg skref hafa verið stigin í stórum mála­flokkum á síð­asta kjör­tíma­bili og nefndi þar aðgerðir í lofts­lags­málum, nýja stefnu í heil­brigð­is­málum og rétt­lát­ara skatt­kerfi. „Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur vill stíga stærri skref í átt að meiri jöfn­uði og rétt­lát­ara sam­fé­lagi þar sem við getum öll lifað með reisn. Í við­leitni okkar til að skapa rétt­lát­ara sam­fé­lag eigum við að líta til þeirra sem lakast standa. Við eigum að efla skiln­ing á fjöl­breytni sam­fé­lags­ins og tryggja rétt­indi allra hópa.“

Svandís Svav­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, flutti síð­ustu ræðu Vinstri grænna í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra.

Hún sagði að enn væru Vinstri græn kölluð til verka og aftur undir for­ystu Katrínar. „Enn heyr­ast raddir um eft­ir­gjöf og lin­kind, raddir sem oft byggja á lít­illi þekk­ingu og van­meta­kennd en líka kven­fyr­ir­litn­ingu og eiga stundum rætur í inn­gró­inni van­trú á því að kona geti verið í for­ystu.“

Svandís sagð­ist vísa þessum röddum á bug. „Þau okkar sem sjá for­sæt­is­ráð­herra í sínu hlut­verki í dags­ins önn greina vel að þar sem for­ystu er þörf og þar sem þarf að leysa flókin verk­efni, þar er eng­inn betri. Þessi skiln­ingur hefur margoft komið fram í afstöðu fólks­ins í land­inu þegar spurt er um leið­toga. Því er það sér­stakt fagn­að­ar­efni að nú í upp­hafi nýs kjör­tíma­bils skuli hafa náðst öfl­ugri meiri hluti en nokkru sinni fyrr um for­ystu Katrínar næstu fjögur ár.“

Sjálfstæðisflokkurinn:

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði full­veldið ekki vera sjálf­sagðan hlut og full­veld­is­dag­ur­inn 1. des­em­ber ætti að vera ærið til­efni til að rifja upp því sem full­veldið hefði skilað okkur sem þjóð.

Á það væri minnst í nýjum stjórn­ar­sátt­mála þar sem lögð væri áhersla á alþjóð­legt sam­starf og opið frjálst mark­aðs­hag­kerfi á Íslandi, allt á grunni full­veld­is­ins. „Og við viljum, já, vera utan Evr­ópu­sam­bands­ins.“

Hann sagði nýja rík­is­stjórn, sem tekin væri til starfa, hafa mjög sterkt umboð. Mjög rífelur meiri­hluti að baki henni í þing­inu væri gott vega­nesti fyrir stjórn­ina, sem Bjarni kall­aði „stjórn nýrra tæki­færa.“

Bjarni sagð­ist geta full­yrt að Ísland hafi valið rétta leið í bar­átt­unni við afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. „Við höfum náð frá­bærum árangri með sam­stöð­unni og á þeirri sam­stöðu eigum við að byggja áfram í fram­tíð­inni, á grund­velli sam­stöðu sem skil­aði sterkri stöðu. Eftir eitt erf­ið­asta efna­hags­lega áfall sem við höfum upp­lifað erum við í kjör­stöðu til að grípa tæki­færi sam­fé­lags­ins, vaxa til vel­sældar og upp­haf þing­starfa er fyrsta skrefið á þeirri leið.“

Fólk óttast afleiðingar kollsteypustjórnmála

Þeir odd­vitar Sjálf­stæð­is­flokks sem fengu ekki ráð­herra­emb­ætti fluttu hinar tvær ræður flokks­ins í gær. Fyrst steig Guðrún Haf­steins­dóttir í pontu og sagði að það færi vel á því að rík­is­stjórnin legði áherslu á að vaxa til vel­ferðar. „Þannig verða til fleiri störf og aukin verð­mæti til að standa undir auknum lífs­gæðum lands­manna og vel­ferð okkar. Eftir mót­læti og djúpa dýfu sem skrif­ast á veiru­far­ald­ur­inn boðar ný rík­is­stjórn mjög ákveðna við­spyrnu og stór­sókn í atvinnu­líf­inu. Það er boð­skapur stjórn­ar­sátt­mál­ans að tryggja einka­rekstri enn betri skil­yrði til að þró­ast og dafna, sam­fé­lag­inu öllu til góðs.

Guðrún Hafsteinsdóttir.
Guðrún Haf­steins­dóttir.

Hún sagð­ist hafa orðið vör við það á ferðum sínum í Suð­ur­kjör­dæmi á árinu að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið hafi notið víð­tæks stuðn­ings og að sama skapi hafi fólk á förnum vegi gefið lítið fyrir mál­flutn­ing stjórn­ar­and­stöð­unnar. „Fólk vill stöð­ug­leika og ótt­ast afleið­ingar koll­steypu­stjórn­mála. Þess vegna komu úrslit kosn­ing­anna mér ekki á óvart og rök­rétt var að láta reyna á áfram­hald­andi sam­starf flokk­anna þriggja sem mynd­uðu rík­is­stjórn fyrir fjórum árum. Í heild­ina litið ber stjórn­ar­sátt­máli með sér póli­tískan vor­blæ nú þegar við erum ann­ars stödd í svartasta skamm­deg­inu.“

Njáll Trausti Frið­berts­son tal­aði um það í ræðu sinni að Ísland þyrfti að taka sig á í þjóðar­ör­ygg­is­málum. Þar sagði hann braka hressi­lega í svell­inu. „Það er bráð­nauð­syn­legt að öryggi sam­fé­lags­legra inn­viða verði metið með til­liti til þjóðar­ör­yggis lands­ins og að unnin verði mark­viss og heil­steypt lög­gjöf varð­andi örygg­is­mál þjóð­ar­innar. Ég tel nauð­syn­legt að slík lög­gjöf verði sam­þykkt hér á Alþingi hið fyrsta. Þjóðar­ör­ygg­is­lög­gjöfin þyrfti m.a. að ná til mik­il­vægra sam­göngu­inn­viða, fæðu­ör­yggis, net­ör­yggis, heil­brigð­is­kerf­is­ins, raf­orku- og fjar­skipta­kerf­is­ins með til­liti til öryggis borg­ar­anna og sam­fé­lags­ins. Það er umhugs­un­ar­efni að nær öll lönd Evrópu búa að slíkri lög­gjöf og þar er Ísland eitt fárra landa sem telj­ast til und­an­tekn­ingar.“

Framsóknarflokkurinn:

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, sagði eitt af stóru verk­efnum rík­is­stjórn­ar­innar vera að stuðla að upp­bygg­ingu atvinnu­tæki­færa hring­inn í kringum landið til að fólk ætti aukna mögu­leika á því að velja sér þann stað þar sem það vill búa. Orða­lagið sem notað væri um þetta í stjórn­ar­sátt­mál­anum marki tíma­mót í við­horfi til þeirra sem starfi hjá rík­inu. „Hér er ekki talað um störf án stað­setn­ingar sem sér­stakt atriði heldur er hugs­un­inni snúið við. Sér­stak­lega þarf að rök­styðja að störf séu stað­bundin. Þetta er stórt mál. Einnig ætlum við að styðja við klasa­sam­starf hins opin­bera og einka­að­ila til að búa til starfs­að­stöðu á lyk­il­stöðum á land­inu, en fyrsta verk­efnið af þessu tagi er að hefj­ast á Selfossi og minni verk­efni eru til um land allt.“

Inn­við­a­ráð­herr­ann sagði að Ísland væri að hefja nýja sókn. Rík­is­stjórnin ætl­aði sér að leggja upp með bjart­sýni á fram­tíð­ina og á kraft­inn sem búi í þjóð­inni. „Það er ein­læg trú mín að sam­starf þess­ara þriggja flokka, Fram­sóknar, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, flokka sem já, spanna lit­róf íslenskra stjórn­mála, skapi jafn­vægi sem er mik­il­vægur grund­völlur fram­fara. Sáttmáli nýrrar rík­is­stjórnar er sátt­máli um að græn rétt­lát fram­tíð sé grund­völlur auk­inna lífs­gæða um land allt.“

Íslenskt listafólk okkar bestu sendiherrar

Vara­for­maður Fram­sóknar og nýr ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir, not­aði ræðu sína til að tala um menn­ingu, listir og ferða­þjón­ustu og þau tæki­færi sem fólgin séu í nýju ráðu­neyti hennar.

Hún sagði einnig að þjóðir heims hefðu mis­mikil áhrif á sög­una og leið þjóða eins og Íslands væri í gegnum hið mjúka vald, eða að hafa áhrif í gegnum menn­ingu og listir. „Ljóst er að íslenskt lista­fólk hefur verið okkar bestu sendi­herrar. Hildur Guðna­dóttir, Ragnar Kjart­ans­son, Erna Ómars­dóttir, Laufey Lín, Björk, Friðrik Þór og Arnaldur. Ind­riða­son eru dæmi um slíka sendi­herra. Því var það löngu tíma­bært að þjóðin eign­að­ist ráðu­neyti sem beinir meira sjónum að menn­ingu, listum og skap­andi greinum en hingað til ásamt því að hlúa vel að ferða­þjón­ustu. Stór þáttur í aðdrátt­ar­afli Íslands er fólg­inn í sterku lista- og menn­ing­ar­lífi og brýnt er að hlúa að íslenskri frum­sköpun.“

Willum Þór Þórsson, nýr heil­brigð­is­ráð­herra, sagð­ist standa auð­mjúkur í pontu þegar hann flutti sína fyrstu ræðu í þessum þinglið sem ráð­herra. „Heil­brigð­is­málin eru og ættu að vera okkur öllum ofar­lega í huga, enda heilsan ein okkar dýr­mætasta eign. Heims­far­ald­ur­inn hefur í raun minnt okkur ræki­lega á þá stað­reynd. Við slíkar aðstæður kjarn­ast oft hlut­irnir. Við höfum reynt styrk­inn í heil­brigð­is­kerf­inu og bar­áttu­vilj­ann sem hefur komið ber­sýni­lega í ljós og verða afrek heil­brigð­is­starfs­fólks seint full­þökkuð.“

Á hinn bóg­inn hefði hið mikla auka­á­lag sem fylgir slíkum aðstæðum líka afhjúpað veik­leika í kerf­inu. „En það gefur um leið tæki­færi til að bregð­ast mark­vissar við. Það er for­gangs­mál þess­arar rík­is­stjórnar að snúa vörn í sókn, að styrkja og efla gott heil­brigð­is­kerfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár