Er bylgja þjóðernissinna handan við hornið í Evrópu?

Bryndís Ísfold rýnir í dínamískar breyt­ingar á lands­lagi alþjóða­stjórn­mála.

Kjör Donald Trump sem for­seta Banda­ríkj­anna og auknar vin­sældir þjóð­ern­is­sinn­aðra stjórn­mála­manna og flokka í fjölda ríkja þar sem kosn­ingar eru fram undan vekja upp spurn­ingar um hvaða breyt­ingar kunni að vera fram undan í stjórn­málum í Evrópu. Með nýjum leið­togum koma ávallt nýjar áherslur, en ef hvert landið á fætur öðru velur sér leið­toga sem vilja draga úr sam­vinnu við önnur ríki er ára­tuga sam­starf líkt og NATÓ, ESB og Sam­ein­uðu Þjóðanna lík­legt til að hafa minna vægi, í náinni fram­tíð - ef fer sem horfir. Áhersla á andúð gagn­vart inn­flytj­endum, alþjóða­stofn­anir ásamt upp­hafn­ingu á þjóð­legum gildum sem og krist­inni trú eru þekkt stef í slíkum fram­boðum. Flest þeirra fram­boða sem nú sækja í sig veðrið í Evrópu leggja ríka áherslu á einmitt þessa þætti.

En hvaða fram­bjóð­endur eru þetta, hvaða líkur eru á því að þeir nái árangri - og hvenær er kosið í þessum löndum? Verður þjóð­ern­is­sinn­inn Norbert Hofer for­seti Aust­ur­ríkis á sunnu­dag?

Forsetakosningar í Austurríki 4. desember 2016

Þessa dag­ana horfa margir til Aust­ur­ríkis þar sem mögu­leiki er á því að fyrsti þjóð­ern­is­sinn­aði hægri- öfga­fram­bjóð­and­inn gæti orðið for­seti og yrði hann þá fyrsti þjóð­ar­leið­tog­inn innan ESB með þessar skoð­anir. Hafi hann sigur úr bítum telja margir stjórn­mála­skýrendur að það gæti hrundið af stað bylgju af svip­uðum sigrum víðar í Evrópu.

Í þessum kosn­ingum tefla tveir for­seta­fram­bjóð­endur fram í þriðja sinn í sömu kosn­ingum. Þetta eru þeir Alex­ander Van der Bellen, sem býður fram án stjórn­mála­flokks en er með­limur í Græn­ingja­flokknum og svo þjóð­ernis og hægri- öfga­mað­ur­inn Norbert Hofer, sem til­heyrir Frels­is­flokki Aust­ur­ríkis. Frels­is­flokk­ur­inn var stofn­aður árið 1955 af þekktum nas­ista og hefur flokk­ur­inn ávallt verið með harða inn­flytj­enda­stefnu. Tug­þús­undir flótta­manna hafa nú sótt um hæli í Aust­ur­ríki, líkt og víða um Evrópu og telur Hofer að inn­flytj­endur muni skemma félags­legt kerfi lands­ins og hefur jafn­vel varað við því að borg­ara­styrj­öld gæti brot­ist út ef inn­flytj­endum haldi áfram að fjölga.

Bæði Hofer og Van der Bellen kepptu við tvo aðra fram­bjóð­endur í upp­hafi, sem til­heyra núver­andi stjórn­ar­flokk­unum tveim en hinir lentu í þriðja og fjórða sæti. Hofer varð efstur og Van der Bellen númer tvö. Þar sem hvor­ugur fékk yfir 50 pró­sent atkvæða er sam­kvæmt lögum kosið að nýju milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Þær kosn­ingar hafa þegar farið fram og sigr­aði Van der Bellen þær í apríl. Hins vegar var sú kosn­ing var dæmd ógild af hæsta­rétti lands­ins í maí síð­ast­lið­inn vegna þess að með­höndlun póst­kosn­inga­at­kvæða þótti ekki sam­ræm­ast lögum lands­ins.

Því er kosið í þriðja sinn, nú þann fjórða des­em­ber eða á sunnu­dag­inn næst­kom­andi. Benda kann­anir til þess að Hofer og Van der Bellen séu hnífjafnir. Embætti for­seta í Aust­ur­ríki er ekki ósvipað og því íslenska, situr þó for­seti í sex ár hefur aðeins mögu­leika á að bjóða sig fram tvisvar. Hingað til hefur sá for­seti sem situr í emb­ætti aldrei tapað kosn­ingum. Forseti lands­ins hefur getur m.a. hafnað því að stað­festa lög en er að mestu eins­konar þjóð­höfð­ingi og oft­ast nær mjög vin­sæll og áhrifa­mik­ill.

Hofer hefur í kosn­inga­bar­áttu sinni hótað að hafna ákveðnum lögum frá ESB og seg­ist sjálfur ætla að mæta sjálfur á ESB fundi fyrir hönd rík­iss­ins, þó það sé almennt ekki hlut­verk for­seta. Sem for­seti getur hann komið því þannig fyrir að kosið verður til þing­kosn­inga áður en kjör­tíma­bili þings­ins lýkur og telja frétta­skýrendur það geta orðið til þess að brjóta á bak aftur þá mið­flokka sam­steypu­stjórn sem er mjög hlynnt ESB, þar sem óánægja með ESB innan lands­ins er ein sú mesta af aðild­ar­ríkj­unum sam­bands­ins. Hofer er yfir­lýstur aðdá­andi Mar­grétar Thatcher en á sjálfur aðdá­endur í hópi þekktra þjóð­ern­is­leið­toga í öðrum löndum svo sem Marine Le Pen, for­manns franska þjóð­ern­is­flokks­ins.

Sex millj­ónir og þrjú hund­ruð þús­und eru á kjör­skrá, benda síð­ustu kann­anir til þess að Hofer hafi yfir­hönd­ina með 50.3% en Van der Bellen 49.7%.

Spenna í Frakklandi

Á nýju ári er svo gert ráð fyrir kosn­ingum í apríl til þings í Frakk­landi, sem einnig eru for­seta­kosn­ingar. Efna­hags­leg staða Frakk­lands hefur verið dræm síð­ustu árin. Atvinnu­leysi er mikið og þá hefur mik­ill fjöldi flótta­manna, aðþrengd milli­stétt sem og ugg­væn­legar hryðju­verka­árásir ýtt undir vel­gengni þjóð­ern­is­sinn­aðri og íhalds­sam­ari afla. Núver­andi for­seti lands­ins, Hollande, sem til­heyrir sós­í­alistum er afar óvin­sæll og óvíst hvort hann fari fram á ný. Beinast því sjónir fólks að íhalds­flokknum og þjóð­ern­is­flokki Marine le Pen, Þjóð­fylk­ing­ar­innar, fyrir kom­andi kosn­ingar. Bæði leggja þau áherslu á aft­ur­hvarf til for­tíðar og leggja áherslu á ,,kristin gildi” gegn fjöl­menn­ingu og fjöl­breyti­legu sam­fé­lagi, sem í raun ein­kennir þó sam­setn­ingu franska þjóð í dag. Aðrir fram­bjóð­endur er ekki taldir lík­legir til að ná í gegn í seinni umferð, nema mögu­lega ef sós­í­alistar velji annan fram­bjóð­anda en Hollande.

Síðasta sunnu­dag sigr­aði Francois Fillon í próf­kjöri íhalds­flokks­ins. Fillon þykir lík­legur til að valda tölu­verðum straum­hvörfum í franskri póli­tík, en hann hefur lagt til að skera niður 500 þús­und störf í opin­bera geir­anum, fella úr gildi lög­gjöf um 35 klukku­stunda vinnu­viku, hækka eft­ir­launa­aldur og draga úr sköttum á þá efna­meiri. Fillon, sem er kaþ­ólskur er einnig á móti fóst­ur­eyð­ingum og gift­ingu sam­kyn­heigðra. Þá vill hann betri sam­skipti við Rússa þegar kemur að utan­rík­is­málum.

Fillon hefur verið í stjórn­málum frá unga aldri en hann var kjör­inn á þing 27 ára gam­all. Siðan þá hefur hann verið í hinum ýmsu stöðum, meðal ann­ars var hann for­sæt­is­ráð­herra 2007 - 2012 fyrir Nicolas Sarkozy þáver­andi for­seta.

Marine Le Pen er fram­bjóð­andi Þjóð­fylk­ing­ar­innar til for­seta, en hún er eng­inn nýgræð­ingur í stjórn­málum, hún hefur verið í stjórn­málum frá árinu 1986 og starfað bæði í sveita­stjórnum, í hér­aðs­stjórn og hefur verið áhrifa­mik­ill þing­maður á Evr­ópu­þing­inu. Hún tók við for­mennsku flokks­ins af föður sínum Jean- Marie Le Pen árið 2011 en faðir hennar var for­maður í nær 40 ár.

Í síð­ustu for­seta­kosn­ingum fékk hún 17.9% atkvæða gegn núver­andi for­seta, Francois Hollande og Nicolas Sarkozy þáver­andi for­seta. Stjórn­mála­skoð­anir Le Pen eru ekki ósvip­aðar skoð­unum föður hennar hennar. Hins vegar hafa breyttar aðstæður í Frakk­landi gert það að verkum að þessar skoð­anir hafa hlotið meiri hljóm­grunn en áður. Óvæntur sigur Trumps í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum hefur orðið til þess að Le Pen er talin eiga enn frekar mögu­leika en áður og sjálf líkir hún ástæð­unni fyrir árangri Trumps við auknar vin­sældir sínar. Nái hún kjöri hefur hún heitið því að Frakkar fái að kjósa um hvort þeir vilji yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið og ótt­ast margir að ef Frakkar ákveða að yfir­gefa sam­bandið, verði það hrein­lega að náð­ar­höggi sam­bands­ins. Le Pen er harður and­stæð­ingur Evr­ópu­sam­bands­ins og myndi berj­ast fyrir útgöngu Frakk­lands. Athygli vakti þegar rúss­neskir bankar veittu Þjóð­fylk­ing­unni lán til að fjár­magna kosn­inga­bar­áttu flokks­ins, en and­stæð­ingar Le Pen hafa sakað hana um að þiggja greiðslu fyrir að hafa stutt inn­rás Rússa á Krím­skaga. Hún hefur þver­neitað fyrir það.

Sjálf hefur Le Pen sagt að verði hún for­seti verði Frakk­land ekki land fjöl­menn­ingar, heldur verði menn­ingin og gildin frönsk. Á dög­unum sagði hún á CNN að sigur Trump væri dæmi um von fyrir þá sem þyldu ekki alþjóða­væð­ing­una og stjórn­mál sem væri stýrt af elítum. En eins og Trump, skil­greinir hún sig utan elít­unnar og málsvara fólks­ins, þrátt fyrir að hafa hálf­part­inn erft emb­ættið sitt og nær ein­göngu starfað í stjórn­málum allt sitt líf.

Le Pen hefur ítrekað látið hafa eftir sér rasísk ummæli og var hún nýverið dregin fyrir dóm í Lyon fyrir hat­ursum­ræðu. Þá hafði hún borið bænir múslima á götum úti saman við her­nám nas­ista. Faðir hennar hefur gengið enn lengra í ummælum sínum og m.a. sagt að gasklefar í útrým­ing­ar­búðum nas­ista hafi verið smá­at­riði í seinni heims­styrj­öld­inni, en þau ummæli vöktu mikla reiði. Hún hefur sjálf afneitað þessu, en haldið sig við sín eigin umdeildu ummæli í garð múslima og ann­arra minni­hluta­hópa. Þrátt að vera ekki langt frá föður sínum í skoð­unum tók hún ,,til” í flokknum þegar hún tók við völdum og fengu allra öfga­fyllstu með­limir flokks­ins að fjúka. Síðan þá hefur hún einnig fært efna­hags­legar áherslur sínar meira til vinstri og leggur nú áherslu á að lág­marks­laun hækki, hún lofar að berj­ast gegn alþjóð­legum stór­fyr­ir­tækjum og rifta alþjóð­legum við­skipta­samn­ingum. Þessi stefna hennar á mjög margt sam­merkt með stefnu Trumps.

Kosið verður í fyrstu umferð kosn­ing­anna þann 23. apríl næst­kom­andi og seinni umferð verður svo 7 maí og voru síð­ast þegar kosið var 46 millj­ónir á kjör­skrá. Nýjustu kann­anir sýna að nýr fram­bjóð­andi Íhalds­flokks­ins, Fillon myndi sigra Þjóð­fylk­ingu Le Pen með 66% gegn 34% nái þau bæði í seinni lotu kosn­ing­anna. Í fyrri lotu myndi Fillon vera með milli 28-31 pró­sent og Le Pen um 23 -25 pró­sent. Enn eru þó sex mán­uðir til kosn­inga og var­huga­vert að treysta könn­unum um of eftir að þær sáu hvorki fyrir Brexit né sigur Trump.

Hvað gerist í Þýskalandi?

Frauke Petry frá Alt­ernative í Þýska­landi er 41 árs gömul við­skipta­kona með dokt­ors­gráðu í efna­fræði. Hún er for­maður Alt­ernative flokks­ins, sem var stofn­aður árið 2013 og mælist nú þriðji stærsti flokk­ur­inn í Þýska­landi með 12,2%. En flokknum gekk betur í kosn­ingum til sveita­stjórna fyrr á árinu og end­aði með ríf­lega þar sem flokkur Angelu Merker fékk lélega útkomu. Alt­ernative er öfga- hægri­s­inn­aður flokkur sem leggur mikla áherslu á aft­ur­hvarf til ,,þýskra gilda”. Þau eru á móti fjöl­menn­ingu í Þýska­landi og vilja láta loka landa­mær­unum enn frekar. Þrátt fyrir að vera tor­tryggin á Evr­ópu­sam­bands aðild Þýska­lands hafa þau ekki lagt til að landið segi sig frá sam­band­inu. Flokk­ur­inn vill líkt og margir syst­ur­flokkar hans láta banna slæður á opin­berum vett­vangi, sem og önnur trú­ar­leg tákn múslima.

Þau leggja einnig áherslu gam­al­dags hlut­verka­skipt­ingu kynj­anna inn á heim­il­unum og trúa ekki á að hlýnun jarðar sé af manna völdum.

Þó enn sé tæpt ár til kosn­inga í Þýska­landi hafa mót­mæli og andúð á þeim fjölda flótta­manna sem komið hafa til lands­ins nú verið hjá ákveðnum hópum orðið til þess að sjón­ar­mið Alt­ernative hafa fengið hljóm­grunn. Hinn breiði faðmur Angelu Merkel, sem hefur vakið aðdáun jafnt innan lands sem utan hjá þeim fjölda flótta­manna sem hefur streymt til Evrópu, hefur þrátt fyrir ekki skilað henni auknum vin­sældum heima fyrir. Flokk­ur­inn hefur tapað um tíu pró­sentu­stigum og er nú með um 34% sam­kvæmt könn­unum. Sósíal- Demókratar eru með um 24%, Græn­ingjar með um 10% og því enn langt í land að þjóð­ern­is­flokk­ur­inn Alt­ernative taki yfir kansl­ara­emb­ættið, en ef vika er langur tími í póli­tík - hlýtur allt að geta gerst á tæpu ári.

Síðast þegar kosið var í Þýska­landi voru tæp­lega sjö­tíu millj­ónir á kjör­skrá.

Hverjir verða í öryggisráðinu?

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna sam­anstendur af fimm ríkjum sem eiga fast sæti: Kína, Frakk­land, Rússland, Bretland og Banda­ríkin auk tíu ann­arra ríkja sem fá sæti tíma­bundið og sitja þau ríki í tvö ár í senn.

Ef þær þjóð­ernis- og/eða hægri- öfga­hreyf­ingar sem nú eiga mögu­leika á sigri í þessum ríkjum ná árangri líkt og gerst hefur í Bret­landi og Banda­ríkj­unum, má ætla að leið­togar þess­ara ríkja verði: Xi Jinping, leið­togi Kína, Marine Le Pen eða Francois Fillon þá for­seti Frakk­lands, Vladimir Pútin for­seti Rúss­lands, Theresa May for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna.

Nýir leiðtogar taka við

Þjóð­ern­is­sinnar eiga það sam­merkt að eiga mögu­leika á fylg­is­aukn­ingu þegar kjós­endur telja á rétt sinn sé gengið, gremju við mik­illi sam­söfnun auðs á fárra hendur síð­ust ára­tugi og þegar milli­stétt­inni finnst að sér þrengt. Hin mikli straumur flótta­manna frá Sýrlandi og öðrum ríkjum veldur einnig tölu­verðum vanda víða þar sem fyrir er atvinnu­leysi og óánægja með núver­andi stjórn­völd. Til við­bótar við þetta bæt­ist svo hin efna­hags­lega kreppa sem reið yfir heim­inn ekki fyrir svo löngu og nýlega hryðju­verka­árásir á óbreytta borg­ara.

Athygli vekur að lof­orð þeirra eru oft ómögu­legt að upp­fylla. Til dæmis lof­orð Trump um að reisa múr við landa­mæri Mexíkó, lof­orð þýska Alt­ernative að herða eft­ir­lit við landa­mæri Þýska­lands en fara ekki úr ESB og svo áhersla á vin­ar­legri sam­skipti við Rússland, á meðan öll þessi lönd sem um ræðir hafa sett við­skipta­bann á eftir inn­rás Rússa inn í Úkraínu.

En aft­ur­hvarf til for­tíðar er hins vegar í senn ógjörn­ingur og í raun væri það ekki aft­ur­hvarf til betri tíma líkt og leið­tog­arnir eiga sam­merkt að vísa til. Því hag­fræði­tölur sýna að fleiri njóta nú bæði betri kjara og tæki­færa nær öllum í þeim ríkjum sem um ræðir en fyrr á tímum. Þó vissu­lega hafi bilið milli þeirra rík­ustu og hinna auk­ist með ólík­indum.

Hvernig þeir leið­togar sem nú stíga fram ætla hins vegar að róa til baka hinu alþjóð­lega við­skipta­hag­kerfi, ein­angra ríki sín og auka þannig efna­hags­legan ábata þjóð­ar­innar er mörgum hag­fræð­ingnum hulin ráð­gáta. Þó svo sann­ar­lega mætti bæta kerfin og gera þau sann­gjarn­ari, svo ágóð­anum sé skipt jafnar verður ekki fram hjá því litið að þessi hag­kerfi byggja nú á hinu alþjóð­lega kerfi sem gengur út á við­skipta­samn­inga milli ríkja.

En þessar áherslur, í bland við ótta­blandið hatur í garð ákveð­inna hópa sem fyrir löngu eru orðnir hluti af þessum sam­fé­lögum, sumir hverjir þriðja eða fjórða kyn­slóð inn­flytj­enda, er ein­göngu til þess fallnar að auka vanda þessa ríkja, ekki bæta úr honum. Ákallið á málsvara alþýð­unnar, sem til­heyrir ekki elít­unni er hávært í Evrópu sem og í Banda­ríkj­unum. Það er þetta ákall sem býr til tóm­ar­rúmið sem popúl­ískir þjóð­ern­is­sinnar fylla nú upp í hverju rík­inu á fætur öðru og stefna ára­tuga­tuga löngu upp­bygg­ing­ar­ferli álf­unar eftir seinna stríð í hættu.

Eina leiðin til að afstýra þessu er að hóf­sam­ari öfl nái tal­sam­bandi við breið­ari hóp kjós­enda. Að þau svari kall­inu með því að sýna í verki að þau séu málsvarar fólks­ins, en ekki leiksoppar hins alþjóð­lega kerfis og elít­unnar -og reyni að vinna traust kjós­enda á ný. Því þó svo kjör­sókn í þessum ríkjum fari ört minnk­andi, þá er alltaf hægt að treysta því að þeir sem vilja breyt­ingar – þeir mæta og kjósa.

Fylgi þjóð­ern­is­flokka víða um Evrópu í síð­ustu þing­kosn­ingum ríkj­anna

  • Sweden Democrats: 13%
  • The Finns: 18%
  • Danske Fol­ke­parti: 21%
  • Freedom Party í Hollandi: 10%
  • Alt­ernative for Germany: 4.7%
  • Freedom Party í Aust­ur­ríki: 35.1%
  • National Front: 14%
  • Swiss People’s Party: 29%
  • Jobbik í Ung­verja­landi: 21%
  • Northern League í Ítalíu: 4%
  • ELAM í Kýpur: 3.7%
  • Golden Dawn í Grikk­landi: 7%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár