Áttfaldur munur of mikill en það eru jákvæð skref í þró­un­inni

Munur á greiðslum til karla- og kvenna­liða í efstu deild í knatt­spyrnu mætti vera minni en for­maður KSÍ segir þró­un­ina vera á réttri leið. „Ég ætla að vera von­góð og trúa því að þetta sé það sem koma skal og að þessar tölur muni bara hækk­a.“

„Það er hægt að bölsótast en það er líka hægt að sjá allt þetta jákvæða,“ segir Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
„Það er hægt að bölsót­ast en það er líka hægt að sjá allt þetta jákvæða,“ segir Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ. Mynd: Golli

KSÍ hefur lítið að segja um skipt­ingu rétt­inda­greiðslna til liða í efstu deildum karla og kvenna í knatt­spyrnu en Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ, segir að hægt sé að greina jákvæð skref. Kvenna­lið fengu til að mynda í fyrsta sinn greiðslur fyrir sjón­varps­rétt­indi á síð­ustu leik­tíð.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í máli Vöndu í nýlegu við­tali í Kjarn­anum þar sem hún fer yfir fyrsta rúma árið í starfi for­manns KSÍ, gagn­rýn­ina sem virð­ist fylgja starf­inu og bar­áttu hennar fyrir jafn­rétt­is­málum innan og utan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­inn­ar.

Karlalið frá 20 milljónir – Kvennalið fá 2,5 milljónir

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber að karla­lið í Bestu deild­inni, efstu deild í knatt­spyrnu, fengu 20 millj­ónir króna í rétt­inda­greiðslur frá Íslenskum Topp­fót­bolta á síð­ustu leik­tíð en kvenna­lið í Bestu deild­inni fengu 2,5 millj­ónir króna.

Íslenskur Topp­fót­bolti eru hags­muna­sam­tök íþrótta­fé­laga sem reka lið í efstu deildum karla og kvenna í knatt­spyrnu. Alls eiga 29 félög, með mörg hund­ruð leik­menn, aðild að Íslenskum Topp­fót­bolta. Um er að ræða rétt­inda­greiðslur sem snúa að sjón­­varps­rétti, gagna­rétti og streym­is­rétti sem til­­heyra liðum í Bestu deildum karla og kvenna. Skipt­ingin virð­ist ekki ráð­ast af jafn­rétt­is­sjón­ar­miðum þar sem karlar fengu átta sinnum hærri greiðslur en kvenna­lið frá Íslenskum Topp­fót­bolta fyrir síð­asta keppn­is­tíma­bil.

Birgir Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri Íslensks Topp­fót­bolta, segir mark­aðs­legar ástæður fyrir mun­inum en að það sé alfarið undir félög­unum sjálfum komið hvernig greiðsl­unni er skipt.

Klara Bjart­marz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, sagði í skrif­legu svari til Kjarn­ans í nóv­em­ber að KSÍ hafi ekki haft vit­neskju um skipt­ingu þeirra fjár­­muna sem tryggðir eru með samn­ings­­gerð Íslensks Topp­­fót­­bolta til aðild­­ar­­fé­lag­anna. Klara sagði KSÍ með­vitað um samn­ings­um­boðið sem Íslenskur Topp­fót­bolti hefur fyrir hönd þeirra félaga sem eru innan hags­muna­sam­tak­anna en ekki komið að ákvarð­ana­tök­unni. Ábyrgðin á skipt­ingu greiðsln­anna sé alfarið hjá Íslenskum Topp­fót­bolta.

„Frá­bært að fara frá núlli í tvær og hálfa millj­ón“

Vanda hefur verið for­maður KSÍ í rúmt ár. Jafn­rétt­is­mál eru henni ofar­lega í huga og í raun hennar hjart­ans mál og ein af ástæðum þess að hún ákvað að taka slag­inn sem for­maður KSÍ. En hún segir KSÍ í raun lítið hafa um skipt­ingu greiðsln­anna að segja. „Þetta er ekki okk­ar. Íslenskur Topp­fót­bolti ræður þessu, þar sem þeir fara með hag­nýt­ingu rétt­ind­anna. Ég veit að þeir byggja skipt­ing­una á því sem þeir fengu frá samn­ings­að­ilum sín­um, varð­andi virð­i,” segir Vanda.

[links]Aðspurð hvort til­efni sé til að end­ur­skoða samn­ings­um­boðið sem Íslenskur Topp­fót­bolti hefur segir Vanda að ákveðið hafi verið á árs­þingi KSÍ fyrir nokkrum árum að Íslenskur Topp­fót­bolti fengi hag­nýt­ingu mark­aðs­rétt­inda. „Þetta var sett inn í lög KSÍ og þannig er það bara.“

Þó mun­ur­inn sé mik­ill segir Vanda að hægt sé að greina jákvæð skref í þró­un­inni, þetta sé til að mynda í fyrsta sinn sem kvenna­lið frá greiðslu fyrir sjón­varps­rétt­indi.

„Ég bara vona og trúi að þetta verði meira næst. Í stað­inn fyrir að mála skratt­ann á vegg­inn og vera alltaf ein­hvern veg­inn nei­kvæð þá er líka hægt að hugsa það þannig að það er frá­bært að fara frá núlli í tvær og hálfa millj­ón. Jú, þetta gæti verið meira en þetta er byrj­un­in.“

Þró­unin sé einnig á réttri leið í Evr­ópu þar sem UEFA greiðir kvenna­liðum fyrir þátt­töku í Evr­ópu­keppni sem hefur ekki verið gert áður. Félögin í Bestu deild kvenna eru því að fá mun meiri fjár­muni en áður hefur þekkst. „Ég reyni alltaf að sjá tæki­færin og björtu hlið­arn­ar, og þetta er á leið­inni. Ég ætla að vera von­góð og trúa því að þetta sé það sem koma skal og að þessar tölur muni bara hækk­a.“

Vanda bendir einnig á að KSÍ sjái um skipt­ingu greiðslna í aðal­keppni Mjólk­ur­bik­ars­ins og þar fá karla- og kvenna­liðin jafn háar greiðslur út frá árangri í keppn­inni, bæði hvað varðar verða­launafé og sjón­varps­greiðsl­ur, sam­tals um 27 millj­ónir króna. Reyndar er heild­ar­upp­hæðin sem rennur til allra karla­lið­anna hærri en það stafar af því að mun fleiri karla­lið taka þátt.

„Ég vil að það sé kvart­að“

Anna Þor­steins­dótt­ir, for­maður Hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­kvenna, gefur lítið fyrir mark­aðs­legar ástæður fyrir ójafn­rétti innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar og sagði í sam­tali við Kjarn­ann í kjöl­far umfjöll­unar um skipt­ingu greiðslna í efstu deildum að knatt­spyrnu­konur séu orðnar þreyttar á þeirri skýr­ingu. Vanda sýnir við­horfi Önnu fullan skiln­ing en segir málið snú­ast um ákvarð­an­ir, ákvarð­anir sem munu von­andi breyt­ast í náinni fram­tíð.

„Ég vona það og ætla að trúa því. Það er hægt að bölsót­ast en það er líka hægt að sjá allt þetta jákvæða. Það er allt í lagi, ég er ekki að segja að það megi ekki kvarta og ég er sjálf búin að gera það í gegnum árin, oft. En við megum samt ekki gleyma skref­unum sem hafa verið tek­in,“ segir Vanda.

Rými til bæt­inga er samt sem áður til stað­ar. „Það er bara partur af því sem ég vil sann­ar­lega gera, að laga allt sem þarf að laga. Og það er stefn­an. Það er svo mik­ill með­byr,“ segir Vanda og nefnir EM á Englandi síð­asta sumar þar sem hvert áhorf­enda­metið var slegið á fætur öðru, rétt eins og í meist­ara­deild­inni í vor þar sem mættu yfir 90 þús­und manns á völl­inn, bæði á und­an­úr­slita­leik og úrslita­leik­inn.

„Allt tal um að kvenna­fót­bolti sé ekki áhuga­verður og að eng­inn hafi áhuga á honum, ég vísa því til föð­ur­hús­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár