Knattspyrnukonur orðnar þreyttar á „markaðslegum ástæðum“ fyrir ójafnrétti

Formaður Hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­kvenna segir þær þreyttar á að heyra að mark­aðs­legar ástæður séu fyrir ójöfnum rétt­inda­greiðslum. Óánægja er innan kvennaknatt­spyrn­unnar með Íslenskan Topp­fót­bolta.

Knattspyrnukonur fá stöðugt þau skilaboð að þeirra virði sé minna en knattspyrnukarla.
Knatt­spyrnu­konur fá stöðugt þau skila­boð að þeirra virði sé minna en knatt­spyrnu­karla. Mynd: EPA

Anna Þor­steins­dóttir for­maður Hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­kvenna segir að fyr­ir­komu­lag rétt­inda­greiðslna frá Íslenskum Topp­fót­bolta, sem Kjarninn greindi frá í vik­unni, sé afar óhag­stætt kvennaknatt­spyrnu, sér­stak­lega smærri kvenna­liðum.

Kvenna­lið í Bestu deild­inni fengu 2,5 millj­ónir króna í sinn hlut í rétt­inda­greiðslur frá Íslenskum Topp­fót­bolta, en karla­lið í Bestu deild­inni 20 millj­ónir króna.

[adspot]„Þetta er hörð bar­átta við stóru liðin sem fá stærri upp­hæð en ég veit að hjá flestum liðum fer stærstur hluti í karla­bolt­ann. En það eru lið sem mögu­lega eru deila greiðsl­unum öðru­vísi milli karla og kvenna,“ segir Anna.

Líkt og fram kom í grein Kjarnans um rétt­inda­greiðsl­urnar þá hafa þau íþrótta­fé­lög sem bæði eru með lið í Bestu deild kvenna og karla val um að deila greiðsl­unum, sem nema sam­an­lagt 22,5 millj­ónum á félag, jafnt á milli kvenna­liðs og karla­liðs.

[links]Kjarninn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum frá knatt­spyrnu­fé­lögum með karla- og kvenna­lið í efstu deild um hvernig þau hygg­ist haga skipt­ingu rétt­inda­greiðslna frá Íslenskum Topp­fót­bolta. Aðeins hafa borist svör frá Keflavík þar sem segir að „allar þær greiðslur sem ber­ast vegna kvenna­liðs Kefla­víkur er ráð­stafað áfram til kvenna­liðs okkar.“

Erfitt að fá upplýsingar um fjármál félaga

Anna segir að það virð­ist ekki reyn­ast auð­velt að fá gögn um það almennt hvernig pen­ingar í knatt­spyrnu deil­ast milli karla og kvenna. „Þetta sést ekki í árs­skýrslum, við erum búnar að fá það stað­fest, þar sést aðeins mun­ur­inn á milli meist­ara­flokk­anna og yngri flokk­anna. Það er margt sem hringir við­vör­un­ar­bjöllum í fjár­málum félag­anna.“

Anna spil­aði fót­bolta með Breiða­blik, ÍA, Þrótti og Selfoss ásamt því að spila í háskóla í Banda­ríkj­unum. Hún segir að þegar sam­tökin voru end­ur­vakin hafi aðstand­endur sam­tak­anna ítrekað verið spurðar hvað þær ætl­uðu að gera varð­andi Íslenskan Topp­fót­bolta og ójafnar greiðslur eftir kynjum. „Það er ákveðin óánægja sem ríkir með Íslenskan Topp­fót­bolta meðal íslenskra knatt­spyrnu­kvenna og þeirra sem standa að kvennaknatt­spyrnu,“ segir Anna.

Skila­boðin sem hún og stjórn hags­muna­sam­taka knatt­spyrnu­kvenna hafa fengið varð­andi þessi mál hafi verið að stíga var­lega til jarðar. „Við erum smá hræddar að fá alla upp á móti okkur þegar við virki­lega förum að skoða þetta. En við erum að skoða leiðir til að hvetja félögin til að opin­bera skipt­ing­una, jafn­vel þótt hún komi ekk­ert sér­stak­lega vel út, jafn­vel hjá félögum sem eru kannski að standa sig ágæt­lega. Ég held að þetta verði smá sjokker­andi.“

Sveitarfélög sýni samfélagslega ábyrgð

„Það sem mér finnst líka vera skekkja er að íþrótta­fé­lögin eru með marga styrki en það virð­ist engin krafa vera um almenni­legt jafn­ræði þarna. Við spyrjum bara: Hver er sam­fé­lags­leg ábyrgð ÍTF, sem er í eign þess­ara íþrótta­fé­laga, og eru nátengd sveit­ar­fé­lög­unum sem setja stífar kröfur um jafn­rétti?

Það þorir eng­inn að fara í þetta og það þorir eng­inn að nefna neitt. Bestu við­brögðin sem við höfum verið að fá er hrein­lega frá styrkt­ar­að­ilum. Við finnum að það eru að vakna upp athuga­semdir um að styrkt­ar­að­ilar eru að setja ein­hverjar smá kröfur að fjár­magn fari annað hvort jafnt eða jafn­vel meira eyrna­merkt kvenna­bolta. En ég skal vera heið­ar­leg, mér finnst sveit­ar­fé­lögin ekki sýna nægi­lega sam­fé­lags­lega ábyrgð.“

Alltaf sama röksemdin fyrir ójafnréttinu

Í svörum frá félag­inu Íslenskur Topp­fót­bolti, sem rekur Bestu deildir karla og kvenna, við spurn­ingum Kjarnans vegna rétt­inda­greiðslna kom fram að mark­aðs­legar ástæður væru fyrir mis­mun í greiðslum, en karla­lið fá átt­falt meira en kvenna­lið. Anna gefur lítið fyrir þessi rök.

„Við í stjórn­inni erum allar núver­andi eða fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­konur og sumar af okkur byrj­uðu að spila fyrir 30 árum. Þetta er búið að vera rök­semdin fyrir ójafn­rétt­inu allan tím­ann. Við erum orðnar óskap­lega þreyttar á þeim rökum að þetta borgi sig ekki fjár­hags­lega. Þessi mark­aðslög­mál eru sett á sein­ustu öld í karllægu umhverfi þar sem konum var hrein­lega bannað að spila íþrótt­ina. Hvers á fram­tíðar knatt­spyrnu­konan að gjalda ef við ætlum að halda áfram að stíla út frá þessum mark­aðslög­málum og ekki reyna að rugga við þeim?“

Ekki er hægt að beita þeim rökum að mati Önnu að það horfi eng­inn á kvenna­fót­bolta.

„EM sann­aði að það er svo sann­ar­lega horft á kvenna­fót­bolta. Þetta eru ekki rök sem stand­ast lengur að okkar mati. Þetta er bara spurn­ing um ákvörðun. Það er ekki jafn­rétt­is­stefna hjá ÍTF,“ bendir hún á og segir svörin sem Íslenskur Topp­fót­bolti gefur um skipt­ingu greiðsln­anna end­ur­spegli við­horfið sem knatt­spyrnu­konur upp­lifa.

„Jú, jú, þeir geta skýlt sér á bak­við ein­hver mark­aðslög­mál en þeir geta líka ákveðið að breyta mark­aðslög­mál­unum með því að setja pen­ing í kvennaknatt­spyrnu. Við erum alla­vega hætt að nenna að hlusta á þetta.“

Tala fyrir heildarendurskoðun á jafnrétti innan knattspyrnunnar

Hags­muna­sam­tök knatt­spyrnu­kvenna hafa verið til frá árinu 1990 en höfðu ekki verið starf­rækt um nokkra hríð þegar þau voru end­ur­vakin í lok febr­úar á þessu ári. Bar­áttu­mál sam­tak­anna eru að bæta hag knatt­spyrnu­kvenna á Íslandi og auka jafn­rétti. Samtökin hafa það að mark­miði að auka sam­stöðu, sýni­leika, jafn­rétti og virð­ingu kvenna innan íþrótt­ar­innar. Samtökin eru hugsuð sem sam­ein­ing­ar­afl í jafn­rétt­is­bar­átt­unni, jafnt innan knatt­spyrnu­fé­lag­anna sem hreyf­ing­ar­innar í heild.

„Við höfum verið að tala fyrir heild­ar­end­ur­skoðun á jafn­rétti innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar og munum halda áfram að reyna að vinna í átt að því. Fjár­magnið eitt og sér er ofboðs­lega stór partur af þessu en ef að við breytum ekki við­horf­inu til kvenna­fót­bolt­ans þá ger­ist ekk­ert.“

Spurð um hlut­verk KSÍ segir Anna að sam­tökin skynji mik­inn vilja þar til að vinna í átt að jafn­rétti. „Í öllum sam­skiptum okkar við KSÍ þá er vilji til að reyna að breyta. Ég efast ekki um vilja KSÍ til að reyna að auka jafn­réttið. Þau hafa þó tak­mörkuð völd yfir félags­lið­unum.“

Knattspyrnukonur upplifi sig ekki eins mikilvægar og karlana

Anna segir það við­gang­ast í dag, rétt eins og þegar hún var að hefja sinn knatt­spyrnu­feril, að knatt­spyrnu­konur upp­lifi sig ekki jafn mik­il­vægar og knatt­spyrnu­karla. „Þetta er rót­gróið við­horf og er kannski ekki við neinn að sakast en við þurfum að horfast í augu við.“

Hags­muna­sam­tök knatt­spyrnu­kvenna hefur óskað eftir við­brögðum frá for­sæt­is­ráð­herra, sem fer með jafn­rétt­is­mál. „Hún er öll af vilja gerð við að reyna að finna hvernig við getum breytt þessu. En það eru reglur sem gera það að verkum að hún má ekki skipta sér af þessu. Og það sama á við um KSÍ. Það þarf stórt sam­starf, sam­starf allra, við að skoða vanda­málið. En þegar kemur að fjár­magn­inu, þá er við­horf Íslensks Topp­fót­bolta ekki að hjálpa okkur.“

Hvað greiðsl­urnar varðar þá kallar Anna eftir því að félögin sjálf sýni lit. „Í þessu til­felli þá þurfa félögin að bregð­ast við, það þarf félag að stíga fram og varpa fram áhyggjum sínum ef eitt­hvað á að breyt­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár