Í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar segir að samfélagið eigi að styðja ólíkar fjölskyldugerðir og hvetja til þess að foreldrar sem ekki búi saman ali upp börn sín í sátt. Þar segir að tryggja eigi rétt barna til að vera skráð í skiptri búsetu á tveimur lögheimilum og aðstaða umgengnisforeldra og lögheimilisforeldra verði jöfnuð. Þetta vakti athygli Oddgeirs Einarssonar lögmanns en hann hefur sérhæft sig í fjölskyldurétti. „Þetta er mjög afdráttarlaust orðalag, með því afdráttarlausara í stjórnarsáttmálanum. Þetta hefur verið baráttumál margra í mörg ár og ég held að þetta verði mjög jákvæðar breytingar.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir