Segir KSÍ hafa varpað frá sér allri ábyrgð

Með yfir­lýs­ingu sinni á þriðju­dag varp­aði KSÍ frá sér allri ábyrgð og sendi þolendum kyn­ferð­is­of­beldis kaldar kveðjur, segir Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir fram­halds­skóla­kenn­ari.

Forysta Knattspyrnusambands Íslands fær harða gagnrýni fyrir yfirlýsingu sína vegna málsins..
Forysta Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands fær harða gagn­rýni fyrir yfir­lýs­ingu sína vegna máls­ins.. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, fram­halds­skóla­kenn­ari og for­kona jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands Íslands, segir að Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hafi varpað frá sér allri ábyrgð með yfir­lýs­ingu sinni á þriðju­dag, þar sem sam­bandið hafn­aði því alfarið að taka þátt í að þagga niður ofbeld­is­mál og hylma yfir með ger­endum og kall­aði ásak­anir um annað dylgjur.

Þetta segir Hanna Björg í aðsendri grein á Vísi í dag, en undir lok síð­ustu viku rit­aði hún aðra grein á sama vett­vangi sem KSÍ virð­ist hafa verið að bregð­ast við með áður­nefndri yfir­lýs­ingu, en helstu for­svars­menn sam­bands­ins höfðu ekki gefið kost á við­tölum við fjöl­miðla vegna skrifa Hönnu Bjargar.

Hanna Björg segir áhuga­vert að KSÍ hafi kallað mál­flutn­ing sinn „dylgjur“, „í ljósi þess að þolendur kyn­ferð­is­of­beldis eru gjarnan sagðir með dylgjur þegar þeir stíga fram og segja frá ofbeld­inu.“

Hún segir að KSÍ hvorki svari frétta­fólki vegna máls­ins og að sam­bandið hafi auk­in­heldur ekki sýnt minnsta áhuga á að vita hvaða upp­lýs­ingum hún sjálf búi yfir um ofbeldi af hálfu lands­liðs­manna sem leiddu til grein­ar­skrifa hennar, sem hafa vakið mikla athygli.

Segir KSÍ hafa sent þolendum kaldar kveðjur

Í fyrri grein sinni vís­aði Hanna Björg til frá­sagnar ungrar konu af kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hún varð fyrir árið 2010. Ger­end­urnir voru sagðir hafa verið lands­liðs­menn Íslands í fót­bolta.

[adspot]

„Hversu kaldar geta kveðj­urnar verið til þolenda? Í yfir­lýs­ingu KSÍ er ekki eitt orð um eða til þeirra. Ekki snef­ill af sam­kennd eða skiln­ingi. Skeyt­ing­ar­leysið er algert. KSÍ sýnir engan vilja til að axla ábyrgð, enga auð­mýkt, sam­kennd, tengsl við raun­veru­leik­ann og sann­leik­ann,“ skrifar Hanna Björg í grein sinni í dag, þar sem hún full­yrðir að Guðni Bergsson for­maður KSÍ og for­ysta sam­bands­ins viti af því kyn­ferð­is­of­beldi sem Hanna Björg gerði að umræðu­efni í fyrri grein sinni.[links]

„Það eru of mörg sem vita að Guðni segir ósatt í yfir­lýs­ing­unni til að unnt sé að halda öðru fram. Frá því að greinin mín um KSÍ og kven­fyr­ir­litn­ingu birt­ist sl. föstu­dag hefur rignt yfir mig skila­boðum og sím­tölum. Öll á einn veg; stuðn­ingur, hvatn­ing og stað­fest­ingar um ofbeldi af því tagi sem er tíundað í grein­inni. Eina und­an­tekn­ingin var aðili sem hafði áhyggjur af því að allt lands­liðið lægi undir grun. Þar er þó hvorki við mig né þolendur að sakast heldur KSÍ sem þegir og ger­endur sem hafa fengið tæki­færi til að stíga fram og axla ábyrgð, en ekki gert,“ skrifar Hanna Björg í grein­inni.

Þar segir hún jafn­framt að í hennar huga séu við­brögð KSÍ vegna þessa máls sorg­leg og að ef sam­fé­lagið láti við­brögð KSÍ óátalin sýni það að við séum „ekki til­búin til að upp­ræta kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn konum og öðrum kynjum.“

Hún segir að börn og ung­menni eigi meira skilið en að alast upp við það að ofbeldi sé ekki talið ámæl­is­vert.

„Að fyr­ir­myndir þeirra og átrún­að­ar­goð séu ofbeld­is­menn og eng­inn geri neitt í því. Það er hörmu­legt og hættu­legt.

KSÍ þarf að taka ger­endur ofbeldis úr lands­lið­inu,“ skrifar Hanna Björg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár