Djöfullinn með pípuhatt

Það hefði aldrei hvarflað að Franz von Papen að hann ætti eftir að steypa yfir ver­öld­ina ein­hverri mestu illsku og morð­æði sem hrjáð mann­kynið hefur mátt þola. Hann var sann­færður um að hann væri vitur og göf­ugur maður sem ætti skilið að ráða ríkjum. En í hégóma sínum og heimsku sleppti hann Adolf Hitler lausum í Þýska­landi.

Franz von Papen var hæstá­nægður að kvöldi mánu­dags­ins 30. jan­úar 1933. Þetta hafði verið gott dags­verk. Hann átti leið fram­hjá spegli í for­salnum í kansl­ara­höll­inni og staldr­aði við og leit á sjálfan sig. Það var fögur sjón sem við honum blasti. Hann var 53 ára gam­all en enn bæði hnar­reistur og her­mann­legur. Mjótt germ­anskt and­litið lýsti af karl­mann­legri feg­urð og þegar hann setti í brýrnar og gerði sig hugsi á svip­inn fóru gáfur hans ekki á milli mála. Yfir­skeggið óað­finn­an­lega snyrt, pípu­hatt­ur­inn fór ó svo vel á vel mót­uðu höfð­inu.

Papen var sér­stak­lega ánægður með hnakk­ann.

Germ­anskur, sterkur hnakki.

Í dag hafði hann verið skip­aður varakansl­ari Þýska­lands. Uppi­vöðslu­sama lið­þjálfa­kvik­indið fékk vissu­lega heit­ustu ósk sína upp­fyllta þegar hann, Papen sjálfur, besti full­trúi hinnar gömlu dýrðar Þýska­lands, stakk upp á því við Hinden­burg for­seta að kansl­ara­emb­ættið sjálft félli í skaut lið­þjálfans, en sá átti að kom­ast að því full­keyptu …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár