Segir ekki hægt að treysta hagnaðardrifnum sjávarútvegsfyrirtækjum fyrir velferð þjóðar

Þing­maður Mið­flokks­ins og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra tók­ust á á Alþingi í dag og ræddu sölu á óunnum afla til útlanda. Þing­mað­ur­inn sagði það póli­tíska ákvörðun að sem mestur afli væri unn­inn hér heima sem Sjálf­stæð­is­menn væru hræddir við að taka.

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins.
Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að það væru hags­munir þjóð­ar­innar í heild að verð­mæta­sköpun úr sam­eig­in­legri auð­lind hennar yrði sem mest innan lands. Hann spurði Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hvort hann væri reiðu­bú­inn að beita ein­hvers konar hvötum til þess að auka fisk­vinnslu hér á landi og draga úr útflutn­ingi á óunnum fiski. Ráð­herr­ann sagð­ist vera opinn fyrir hug­myndum.

„Í efna­hags­legum nið­ur­sveiflum er mik­il­vægt að huga að grunnatvinnu­vegum þjóð­ar­innar og sjáv­ar­út­veg­ur­inn er einn af grunnatvinnu­veg­unum og skiptir okkur veru­legu máli. Ekki síst núna þegar stærsta atvinnu­greinin, ferða­þjón­ustan, hrundi nán­ast á einni nóttu. Atvinnu­leysi er í hæstu hæðum eins og við þekkjum og á enn eftir að hækka.

Í Reykja­nesbæ er það komið í 22 pró­sent. Staðan í atvinnu­málum er alvar­leg. En hvað getum við gert til­tölu­lega hratt til að bæta ástandið? Ég tel að sjáv­ar­út­veg­ur­inn skipti þar miklu máli. Margar fisk­vinnslur hafa þar ekki úr nægu hrá­efni að spila og á íslenskum fisk­mörk­uðum er ekki nægi­legt fram­boð af hrá­efni og eiga fisk­vinnslur sem ekki eru í útgerð í basli með að halda uppi vinnu við vinnslu,“ sagði Birgir.

Á sama tíma væri flutt úr landi umtals­vert magn af óunnum fiski sem vel væri hægt að vinna hér á landi. Aukn­ingin frá því í fyrra hefði verið 22 pró­sent og stefndi í að það yrði flutt út um 60.000 tonn af óunnum fiski á þessu ári.

„Ef við myndum vinna þennan afla hér heima nema verð­mætin allt að 10 millj­örðum króna og ný störf gætu verið allt að 1.000. Árið 2014 voru flutt út 23.000 tonn. Þá voru hömlur á útflutn­ingi sem síðar voru afnumdar og eftir það hefur orðið stöðug aukn­ing á útflutn­ingi á óunnum afla.“

Hann sagði að Íslend­ingar yrðu að nýta öll úrræði sem til eru til að halda uppi atvinnu í land­inu. „Atvinnu­leysi er sam­fé­lags­leg mein­semd sem kostar rík­is­sjóð háar fjár­hæðir.“ Hann spurði hvort ráð­herra væri reiðu­bú­inn að beita ein­hvers konar hvötum til þess að auka fisk­vinnslu hér á landi og draga úr útflutn­ingi á óunnum fiski.

Sjálfsagt mál að ræða hugmyndir

Kristján Þór svar­aði og sagði að sjón­ar­mið sem heyr­ast í þess­ari umræðu ættu allan rétt á sér. „Við höfum hins vegar langa hefð fyrir því hér á landi að afla okkur tekna með því að fá sem hæst verð fyrir sjáv­ar­af­urðir hverju sinni. Og við þekkjum það bara í gegnum tíð­ina að sigl­ingar með fisk hafa verið mjög miklar á erlenda mark­aði. Ég þekki það sjálfur af eigin reynslu frá því ég var til sjós og ég held að þetta sé bara í öðru formi núna.

Það kann vel að vera að mönnum bregði við þegar þetta tekur kippi eins og þetta virð­ist vera að gera núna um þessar mundir og þá er sjálf­sagt mál að ræða mögu­legar leiðir til þess að auka við þá vinnslu sem hér á sér stað innan okkar vébanda rík­is­ins. Við sjáum það hins vegar vel að hvernig sjáv­ar­út­veg­ur­inn og fisk­vinnslan hefur svarað þessu. Hún hefur svarað þessu með auk­inni tækni­væð­ingu. Aukinni þekk­ingu, betri tækni­getu og sótt fram á erlendum mörk­uðum á þeim grunni,“ sagði ráð­herr­ann.

Hann sagði það vera flókið að reisa skorður við þessu og kall­aði eftir því ef Birgir hefði hug­myndir í þá veru hvernig það yrði gert þá væri sjálf­sagt mál að taka það til skoð­unar. „En ég legg áherslu á það að und­ir­liggur sömu­leiðis að sjó­menn gera kröfur um að fá sem hæst verð fyrir afl­ann og ef við ætlum að hygla einum hópi umfram annan þá verðum við að vera til­búin í þá umræðu sömu­leiðis. En ég lýsi mig reiðu­bú­inn til þess að ræða hvaða hug­myndir sem er til þess að auka og styðja við frek­ari full­vinnslu afla hér á Íslandi, tví­mæla­laust.“

Pólitískur ótti hjá Sjálfstæðisflokknum

Birgir kom aftur í pontu og sagði að ekki væri nóg að ræða hlut­ina, það yrði einnig að fram­kvæma. „Þessi útflutn­ingur er orð­inn allt of mik­ill, ég held að það séu allir sam­mála um það.“

Hann spurði enn fremur hvort ráð­herr­ann gæti hugsað sér að breyta afla­reglu tíma­bundið í helstu teg­undum nytja­stofna meðan slæmt atvinnu­á­stand varði og auka þannig vinnslu og veiðar sem myndi skila sér í auk­inni atvinnu og auknum tekjum þjóð­ar­bús­ins.

„Að lokum vil ég segja það, herra for­seti, að það eru hags­munir þjóð­ar­innar í heild að verð­mæta­sköpun úr sam­eig­in­legri auð­lind hennar verði sem mest innan lands. Það er póli­tísk ákvörðun að sem mestur afli sé unn­inn hér heima – en það er póli­tískur ótti hjá Sjálf­stæð­is­flokknum að taka þá ákvörðun og virð­ist það ganga framar hags­munum þjóð­ar­innar. Við getum ekki treyst því að hagn­að­ar­drifin fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi muni gera það sem er best fyrir þjóð­ina. Það er hlut­verk stjórn­mála­manna að verja störfin innan lands á erf­iðum tímum og þeir verða að hafa kjark til þess.“

„Þessi umræða skilar okkur ekki neinu“

Kristján svar­aði í annað sinn og sagði að hann hefði í fyrri ræðu kallað eftir hug­myndum frá þing­mann­inum hvernig ætti að auka við afla hér innan lands. „En það kom ekki ein ein­asta hug­mynd. Það sem kom fram hjá hátt­virtum þing­manni var það að saka póli­tískan and­stæð­ing um kjark­leysi. Það eru frasarnir sem við þekkjum þegar menn eru komnir í algjört mál­efna­legt þrot. Þá er hjólað mann­inn með þeim hætti sem hátt­virtur þing­maður gerir hér. Þessi umræða skilar okkur ekki neinu. Kallið eftir til­lögum að lausnum og við skulum ræða það hvar og hvenær sem er.

Þegar hér er full­yrt að hér sé allt of mikið flutt út af íslenskum fiski, hvert á þá markið að vera? Mér þætti vænt um að heyra það vegna þess að ég veit það að til dæmis í strand­veiðum í sumar þá þökk­uðu menn fyrir þennan mögu­leika að geta selt afl­ann á sem hæstu verði,“ sagði Kristján Þór.

„Varðandi afla­regl­una þá bið ég hátt­virtan þing­mann að hafa það í huga að það er for­sendan fyrir því hvernig við getum verð­lagt íslenskar sjáv­ar­af­urðir á erlendum mörk­uðum að við höfum vott­anir á þeim afla sem við drögum úr sjó og eitt að því er að við vinnum á grund­velli sjálf­bærrar nýt­ingar og ráð­gjafar vís­inda­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár