Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, ætlar að sækjast eftir því að verða oddviti Sjálfstæðisflokks í borginni þegar prófkjör fer fram í vor. Þar með skorar hún Eyþór Arnalds, núverandi oddvita, á hólm en hann hefur þegar tilkynnt að hann sækist að óbreyttu eftir endurkjöri. Hildur var í öðru sæti á lista flokksins fyrir síðustu kosningar.
Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur Hildur um nokkurt skeið kannað jarðveginn fyrir framboði gegn Eyþóri innan Sjálfstæðisflokksins.
Næstu sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí næstkomandi.
Hildur setti tilkynningu um framboð sitt á Facebook klukkan 19 í kvöld. Á sama tíma birtist viðtal við hana í Íslandi í dag á Stöð 2 þar sem hún opinberaði áform sín um að reyna að verða næsti borgarstjóri í höfuðborginni og skömmu síðar mætti hún Degi B. Eggertssyni, núverandi borgarstjóra, í Kastljósi RÚV í umræðum um fjárhagsáætlun borgarinnar, sem var samþykkt í borgarstjórn í gær.
[adspot]Í tilkynningu Hildar á Facebook segist hún vilja skapa borg sem virkar fyrir fólk og fyrirtæki. „Höfuðborg sem setur fjölskyldur í forgang - skóla sem mæta fjölbreyttum þörfum og leikskóla sem tryggja inngöngu strax í kjölfar fæðingarorlofs. Ég vil borgarumhverfi sem styður við fjölbreytileika mannlífsins – og laðar að sér hæfileikafólk með úrvali atvinnutækifæra, lifandi menningu, spennandi búsetukostum og greiðum samgöngum fyrir alla.“
Hún segist enn fremur vilja borg sem ryður veginn fyrir þá sem vilja sækja fram og styður við hugmyndaauðgi og verðmætasköpun. „Umhverfisvæna höfuðborg sem byggist á frjálsum valkostum, jöfnum tækifærum, frjálsu framtaki og hagkvæmum rekstri. Ég vil lifandi smáborg með heimsborgarhjarta - frjálsa og blómstrandi — Reykjavík sem virkar.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir