Sagan af Sjóði 9 og hinum peningamarkaðssjóðunum

Sjóður 9 hringir bjöllum hjá mörgum en þeir átta sig kannski ekki á af hverju það er. Hann sneri aftur í umræð­una þegar fréttir voru sagðar af við­skiptum for­sæt­is­ráð­herra með eignir í sjóðnum. En hvað var Sjóður 9? Og af hverju er hann svona alræmdur?

Sjóður 9 skaut aftur upp koll­inum í fjöl­miðlaum­fjöllun í síð­ustu viku þegar Stundin, í sam­starfi við Reykja­vik Media og breska dag­blaðið The Guardian, birti umfjöllun um sölu Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra á eign sinni í sjóðnum dag­anna fyrir banka­hrunið. Bjarni hefur síðar sagt að hann hafi ekki búið yfir neinum trún­að­ar­upp­lýs­ingum þegar hann seldi eign­ina og að um sé að ræða alvar­legar ásak­anir sem í felist dylgjur um að hann hafi mis­notað stöðu sína og stundað inn­herja­svik. Hvergi í umfjöllun umræddra fjöl­miðla er því þó haldið fram að Bjarni hafi framið lög­brot með atferli sínu.

En hvað var Sjóður 9? Og er það rétt sem Bjarni og stuðn­ings­menn hans halda fram að það hafi verið á allra vit­orði á þeim tíma sem hann seldi að Glitnir, sem rak sjóð­inn, hafi staðið á brauð­fótum?

Herjað á sparnað almennings

Á árunum fyrir hrun ráku allir stóru bank­arnir, og mörg minni fjár­mála­fyr­ir­tæki, pen­inga­mark­aðs­sjóði. Þeir fjár­festu í verð­bréfum, að mestum hluta íslenskum skulda­bréfum, og hart var lagt að almenn­ingi í land­inu að geyma sparnað sinn í þessum sjóðum, oft með ræðum um að þeir væri jafn öruggir og inn­lán. Eini mun­ur­inn væri sá að ávöxtun pen­inga­mark­aðs­sjóða væri mun meiri en á inn­láns­reikn­ingum.

Sá pen­inga­mark­aðs­sjóður sem Glitnir rak hét Sjóður 9. Upp­haf­lega var eigna­sam­setn­ing hans nokkuð íhalds­söm. Árið 2005 sam­an­stóð eigna­safn hans aðal­lega af rík­is­tryggðum verð­bréfum eða bréfum útgefnum af bönkum og spari­sjóðum. Engin verð­bréf eign­ar­halds­fé­laga voru í sjóðnum. Það átti hins vegar eftir að breyt­ast mikið á næstu árum.

Í lok árs 2007 var verð­mæti verð­bréfa­safns sjóðs­ins orðið um 82 millj­arðar króna. Það hafði verið um 18,4 millj­arðar króna í lok árs 2005. Það hafði því marg­fald­ast að stærð á örfáum árum. Eigna­sam­setn­ingin hafði líka breyst mikið. Í byrjun árs 2008 voru verð­bréf eign­ar­halds­fé­laga 65 pró­sent af eignum Sjóðs 9. Þegar leið á það ár varð það hlut­fall enn hærra. Í lok ágúst, nokkrum vikum fyrir hrunið, voru þau 86 pró­sent af heild­ar­verð­bréfa­eign sjóðs­ins.

Keyptu heilu skuldabréfaflokkanna af eigendum bankans

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna, sem kom út í apríl 2010, kom fram að tveir sjóðir í eigu rek­star­fé­lags Glitnis, Sjóður 1 og Sjóður 9, voru að jafn­aði með yfir 50 pró­sent af heild­ar­eign sjóð­anna í bréfum frá tveimur útgef­endum, Stoðum/FL Group og Baugi. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að þessir tveir sjóðir hafi verið látnir kaupa upp heilu skulda­bréfa­flokk­anna frá þessum tveimur aðilum. Þegar Glitnir féll nam virði bréfa frá Baugi í Sjóði 9 til dæmis 12,9 pró­sent af heild­ar­sam­setn­ingu hans, eða 12,5 millj­arða króna. Um 22 millj­arðar voru þar í bréfum frá Stoðum/FL Group.

Þá voru dæmi um að sjóðir innan Glitnis sjóða hafi átt við­skipti sín á milli með „óskráð og illselj­an­leg bréf“. Eitt slíkt dæmi voru við­skipti með Baugs­bréf þann 28. des­em­ber 2007, þegar Sjóður 9 var lát­inn selja bréf frá Baugi á nokkra millj­arða króna til fag­fjár­festa­sjóðs í eigu Glitnis. Strax eftir ára­mótin keypti Sjóður 9 síðan bréfin til baka. Ástæðan var sú að sjóð­irnir birtu eign­ar­safn sitt opin­ber­lega líkt og það var í árs­lok. Til að risa­eign Sjóðs 9 í Baugs­bréfum myndi ekki sjást á yfir­lit­inu voru þau geymd í nokkra daga í öðrum sjóði en síðan færð til baka.

Bæði félögin sem minnst er á hér að ofan, Baugur Group og Stoðir/FL Group, lutu stjórn Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og við­skipta­fé­laga hans. Þessi hópur var einnig kjöl­festu­eig­andi í Glitni á þessum tíma. Stór hluti ann­arra útgef­enda skulda­bréfa sem Sjóður 9 keypti var auk þess með mikil tengsl við Glitni annað hvort í gegnum eigna­tengsl eða stórar áhættu­skuld­bind­ingar.

Sam­an­dregið þá var Sjóður 9 stút­fullur af skulda­bréfum útgefnum af félögum sem annað hvort tengd­ust helstu eig­endum Glitnis eða stærstu skuld­urum bank­ans. Hann var nokk­urs konar rusla­kista sem var síðan seld almenn­ingi sem sparn­að­ar­leið með mik­illi ávöxtun.

Sjóðnum lokað þegar þjóðnýta átti Glitni

Eftir að ríkið til­kynnti þann 29. sept­em­ber 2008 að það ætl­aði sér að taka 75 pró­sent eign­ar­hlut í Glitni var ljóst að Stoðir/FL Group, stærsti eig­andi félags­ins, myndi fara í þrot. Þess utan hafði verið ljóst um nokkurn tíma að stærsti eig­andi Stoða/FL Group, Baugur Group, stæði afar illa.

Þetta skap­aði gríð­ar­leg vanda­mál fyrir Sjóð 9, enda var, líkt og áður sagði, að jafn­aða yfir 50 pró­sent af heild­ar­eign hans bréf frá þessum tveimur útgef­endum. Sjóðnum var því lokað tíma­bundið þennan sama dag, 29. sept­em­ber.

Á meðan að sjóð­irnir voru lok­aðir, og hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafar gátu ekki tekið eign sína út úr þeim, var ákveðið á stjórn­ar­fundi í Glitni að bank­inn myndi kaupa öll skulda­bréf útgefin af Stoðum/FL Group úr tveimur sjóðum bank­ans, Sjóði 1 og Sjóði 9, áður en þeir myndu opna aftur.

Lárus Welding, þáver­andi for­stjóri bank­ans, sagði frá því í skýrsl­unni að hann hafi fundað með Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Árna Mathiesen, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, um þessi upp­kaup, enda var ríkið við það að verða eig­andi að bank­anum á þessum tíma. Hann sagði að í sím­tali við Geir „hefði komið fram að Geir teldi þetta erfitt mál en hann hefði gefið í skyn: „jú, ætli það verði ekki að gera þetta.“ Þá hefði Árni ekki sett sig upp á móti mál­inu. Bréfin voru keypt út á 10,7 millj­arða króna.

Lögð áhersla á að„þetta yrði leyst“

Lárus sagði enn­fremur að „Tryggvi Þór [Her­berts­son, þá efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra] var búinn að sitja líka fund með okkur um dag­inn og Illuga [Gunn­ars­syni, þá þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks sem sat í stjórn Sjóðs 9] stjórn­ar­manni í þessu í sjóð­unum. Illugi lagði mikla áherslu á að þetta yrði leyst og þetta er sam­þykkt af stjórn­inni og svo gert.“

Geir sagði fyrir nefnd­inni að hann hafi talið Lárus vera að kynna málið fyrir sér og Árna, ekki leita eftir sam­þykki eða neitun, og til að kanna hvort þeir hefðu athuga­semdir við þá leið sem var farin. Geir við­ur­kenndi þó að „Ef við hefðum sagt: Nei, við viljum þetta alls ekki, þá býst ég við að þeir hefðu hugsað sig tvisvar um áður.“

Sjóður 9 var loks opn­aður aftur 1. októ­ber 2008. Þá var búið að kaupa öll skulda­bréf Stoða/FL Group út úr þeim. Virði eigna hans lækk­aði um sjö pró­sent vegna þessa.

Nokkrum dögum síðar létu stjórn­endur Glitnis kaupa hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðnum fyrir 33 millj­arða króna til að mæta útflæði. Það var því ljóst að ansi margir voru að taka pen­ing­anna sína út úr þessum sjóðum, Sjóði 1 og Sjóði 9, á þessum dögum sem þeir voru opn­aðir aftur. Þeirra á meðal var Bjarni Bene­dikts­son sem færði eignir upp á um 50 millj­ónir króna úr honum í aðra sjóði. Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna og við­skipta­fé­lagi, seldi hlut­deild­ar­skír­teini sín og félags í sinni eigu á þessum síð­ustu dögum áður en neyð­ar­lög voru sett í land­inu. Hann seldi fyrir 1.120 millj­ónir króna. Bjarni sagði í leið­toga­kapp­ræðum á RÚV í gær að hann hafi aldrei tekið pen­inga út úr bank­anum, heldur fært eign sína yfir í aðra pen­inga­mark­aðs­sjóði. Það er ekki nákvæmt þar sem Bjarni færði eign sína yfir í Sjóði 5 og 7 hjá sjóðum Glitnis. Þeir sjóðir voru örugg­ustu sjóðir í rekstri Glitnis, og fjár­festu ein­göngu í rík­is­skulda­bréfum, ekki í skulda­bréfum einka­hluta­fé­laga.

Á þessum tíma lá fyrir að ríkið ætl­aði að leggja Glitni til 84 millj­arða króna í nýtt eigið fé og eign­ast 75 pró­sent hlut í bank­anum. Ekkert lá fyrir opin­ber­lega um til­urð neyð­ar­lag­anna eða að bank­arnir þrír væru allir svo illa staddir að þeir myndu falla í vik­unni á eftir. Það er þó það sem gerð­ist. Þann 6. októ­ber 2008 voru sett neyð­ar­lög í land­inu. Og dag­inn eftir tók Fjár­mála­eft­ir­litið yfir Glitni.

Fjármálaeftirlitið harðlega gagnrýnt

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis fær Fjár­mála­eft­ir­litið harðar ákúrur vegna eft­ir­lits­leysis með pen­inga­mark­aðs­sjóðum. Þar var meðal ann­ars bent á að eitt til tvö stöðu­gildi hafi átt að fylgj­ast með alls 94 sjóðum bank­anna, eft­ir­litið hafi ekki beitt þeim vald­heim­ildum sem það gat og hefði ekki brugð­ist við brotum á lögum og reglum um starf­semi sjóð­anna. Einn starfs­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sagði fyrir nefnd­inni það ekki „hafa tíðkast“ að beita við­ur­lögum og að „for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins [Jónas Fr. Jónsson] hafi verið mjög áhuga­laus um allt sem við kom eft­ir­liti með sjóðum.“

Þá segir í skýrsl­unni að eini starfs­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins „í eft­ir­liti með sjóðum fór í langt leyfi í nóv­em­ber 2006 [...]og fram í maí 2007. Enginn var ráð­inn í hans stað í heilt ár og voru sjóð­irnir því í raun sem næst án eft­ir­lits á því tíma­bili. Slíkt verður að telj­ast alvar­leg van­ræksla af hálfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.“ Í ljós þess hversu atkvæða­lítið Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var „gagn­vart sjóð­unum má spyrja hvort að starfs­menn stofn­un­ar­innar hafi gert sér grein fyrir þeirri áhættu sem fólst í starf­semi þeirra.“

Eina málið sem skoðað var og átti sér stað eftir hrun

Það var þó ekki bara Sjóður 9 og Glitnir sem voru á gráu svæði með starf­semi sína. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að pen­inga­mark­aðs­sjóðum rekstr­ar­fé­laga gömlu bank­anna hafi öllum verið stýrt af stjórn­endum bank­anna sjálfra, þeir keypt heilu útgáfur verð­bréfa af félögum tengdum bönk­unum, beitt blekk­ingum í mark­aðs­setn­ingu og end­ur­fjár­magnað nán­ast alltaf skulda­bréfa­flokka þannig að „starf­semi pen­inga­mark­aðs­sjóða virð­ist fremur hafa svipað til hefð­bund­innar útlána­starf­semi banka.“

Björgvin G. Sig­urðs­son, þáver­andi við­skipta­ráð­herra, og Jónas Fr. Jónsson, þáver­andi for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, stóðu frammi fyrir þrýst­ingi um að taka ákvörðun um að nýju bank­arnir þrír, sem reistir voru á grunni þeirra gömlu, keyptu út verð­laus skulda­bréf úr pen­inga­mark­aðs­sjóð­unum þrátt fyrir að engin heim­ild væri í neyð­ar­lög­unum fyrir aðkomu rík­is­ins að upp­gjöri pen­inga­mark­aðs­sjóða. Starfs­mönnum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins þótti afskipti við­skipta­ráðu­neyt­is­ins að upp­kaupum bréfa úr sjóð­unum „mjög óeðli­leg“, sam­kvæmt því sem fram kemur í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, en upp­kaup á bréfum úr pen­inga­mark­aðs­sjóðum eftir hrun bank­anna er eina málið sem nefndin skoð­aði sem átti sér stað eftir banka­hrun. Á end­anum voru það stjórnir nýju bank­anna sem tóku ákvarð­anir um upp­kaupin.

Rann­sókn­ar­nefndin ákvað auk þess að vísa málum tengdum pen­inga­mark­aðs­sjóðum stóru bank­anna til athug­unar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Í kjöl­farið ákvað Illugi Gunn­ars­son að víkja af þingi á meðan að málin yrðu skoðuð í ljósi þess að hann hafði setið í stjórn Sjóðs 9. Um einu og hálfu ári síðar tók hann aftur sæti á þingi eftir að lög­fræði­á­lit sem unnið hafði verið fyrir Íslands­sjóði, nýtt rekstr­ar­fé­lag utan um þá gömlu sjóði Glitnis sem lifðu hrunið af, sagði að hvorki lög né reglur hefðu verið brotnar í starf­semi Sjóðs 9.

Að end­ingu keyptu nýju bank­arnir þrír, þá í eigu rík­is­ins, skulda­bréf úr sjóðum föllnu bank­anna þriggja fyrir um 130 millj­arða króna. Um 95 pró­sent af þeirri upp­hæð fór í að kaupa út ónýt skulda­bréf úr sjóðum Glitnis og Lands­banka. Í stað­inn fengu sjóðs­fé­lagar mun hærri end­ur­heimtur en þeir hefðu átt að fá á kostnað nýju bank­anna og að ein­hverju leyti skatt­greið­enda, sem í dag eiga Lands­bank­ann og Íslands­banka að fullu.

Vildu láta gömlu bankanna sitja uppi með bréfin

Um þann gjörn­ing var sann­ar­lega ekki ein­ing. Neyð­ar­lögin tryggðu enda ekki eignir í pen­inga­mark­aðs­sjóðum heldur gerðu ein­ungis inn­stæður að for­gangs­kröfum. Þeir sem höfðu fjár­fest í pen­inga­mark­aðs­sjóðum höfðu keypt hlut­deild í skulda­bréfum áhættu­sæk­inna fyr­ir­tækja sem höfðu skilað mun meiri ávöxtun en inn­stæðu­reikn­ingar, áður en þau brunnu upp í hrun­inu.

Allir pen­inga­mark­aðs­sjóð­irnir voru í gríð­ar­legum vanda þegar banka­hrunið varð. Og þeir sem áttu hlut­deild­ar­skír­teini í þeim, þar á meðal margt venju­legt fólk sem taldi sig hafa verið platað til að setja sparnað sinn inn í þá með röngum upp­lýs­ingum um áhættu­sækni sjóð­anna, voru brjál­aðir. Það leiddi til þess að Björgvin G. Sig­urðs­son lýsti því yfir á blaða­manna­fundi 8. októ­ber 2008 að leitað yrði leiða til að tryggja pen­inga­mark­aðs­sjóði.

Hug­myndin á þeim tíma var að ríkið keypti skulda­bréf banka út úr sjóð­unum til að tak­marka tjón þeirra. Að auki átti ríkið að kaupa „illselj­an­leg bréf“ sem flest voru útgefin af félögum tengdum bönk­unum sjálfum. Þau eru nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust gjald­þrota eða hafa gengið í gegnum nauða­samn­inga í dag með með­fylgj­andi tapi fyrir kröfu­hafa þeirra. Jón Þór Sturlu­son, þáver­andi aðstoð­ar­maður Björg­vins og núver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, kall­aði til Jón Steins­son, sem starf­aði sem ráð­gjafi við­skipta­ráð­herra, og hófu þeir sam­skipti við starfs­menn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og ýmis ráðu­neyti um hvernig ætti að slíta sjóð­unum.

Jón Þór lagði mikla áherslu á að við slit sjóð­anna yrði sama hlut­fall greitt úr þeim öllum og vildi upp­haf­lega að föllnu bank­arnir keyptu bréf úr þeim. Skila­nefndir þeirra tóku það ekki í mál enda myndi það skerða end­ur­heimt kröfu­hafa þeirra. Í skýrsl­unni segir síðan af tölvu­bréfi Jóns Þórs til starfs­manns Fjár­mála­eft­ir­lits­ins þann 15. októ­ber, en af því megi „ráða að ríkið kæmi ekki frekar að mál­inu með fjár­stuðn­ingi heldur hefði Björgvin G. Sig­urðs­son og Jónas Fr. Jónsson afráðið að nýju bank­arnir keyptu skulda­bréf við­skipta­bank­anna þriggja úr sjóð­unum.“ Jón Þór vildi ekki kann­ast við þessi sam­skipti í skýrslu­tökum hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni.

Kostar alvöru peninga

Í skýrsl­unni sagði einnig að ljóst hafi verið að við­skipta­ráðu­neytið hafi þrýst á skila­nefndir föllnu bank­anna til að kaupa hluta bréf­anna úr sjóð­unum en hafi ekki orðið ágengt. Eftir að það var full­reynt, þann 16. októ­ber, þá sendi Jón Þór tölvu­póst til Jóns Steins­sonar og Bolla Bolla­sonar, þá ráðu­neyt­is­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, þar sem sagði að „allt sem við gerum gagn­vart pen­inga­mark­aðs­sjóð­unum mun því kosta alvöru pen­inga.“

Nokkru síðar óskaði Jón Þór eftir því við Fjár­mála­eft­ir­litið að það boð­aði til fundar með nýju bönk­unum þremur til að sam­ræma útgreiðslur úr pen­inga­mark­aðs­sjóðum. Þeirri mála­leitan hafn­aði Fjár­mála­eft­ir­litið og við skýrslu­töku sögðu starfs­menn stofn­un­ar­innar að „þeim hafi þótt þetta mjög óeðli­leg afskipti ráðu­neyt­is­ins af mál­inu.“

Á end­anum voru skulda­bréfin keypt út úr sjóð­unum á miklu yfir­verði. Alls greiddi Glitnir um 56,7 millj­arða króna fyrir bréf úr sínum sjóðum, Lands­bank­inn greiddi 66,2 millj­arða króna fyrir bréf úr sínum sjóðum og Kaupþing á sjö­unda millj­arð króna fyrir bréf úr sínum sjóðum. Alls greiddu nýju bank­arnir um 130 millj­arða króna fyrir verð­lítil eða verð­laus skulda­bréf út úr pen­inga­mark­aðs­sjóð­unum. Sjóðs­fé­lagar fengu eignir sínar greiddar, sem voru ekki með neinum hætti tryggðar með lögum eða yfir­lýs­ingum, að mestu, en end­ur­greiðslur voru á bil­inu 60,2-85,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár