Ríkið veitir 282 aðilum frest til 2026 til að gera upp tæplega sex milljarða króna skattaskuld

Fyr­ir­tæki hafa getað frestað greiðslu á skatti sem þau hafa dregið af starfs­fólki. Nýlega voru sam­þykkt lög sem heim­ila þeim sem það vilja að skipta end­ur­greiðslu skuld­ar­innar þannig að hún verði full­greidd sex árum eftir að stofnað var til hennar.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði fram frumvarpið sem heimilar fyrirtækjum að endurgreiða skattaskuld á mörgum árum.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varpið sem heim­ilar fyr­ir­tækjum að end­ur­greiða skatta­skuld á mörgum árum. Mynd: Bára Huld Beck

Alls sóttu 282 aðilar um greiðslu­dreif­ingu á frestaðri skatt­greiðslu og trygg­ing­ar­gjaldi upp á sam­tals 5,6 millj­arða króna áður en fyrsti frestur til að sækja um þá dreif­ingu rann út um miðjan síð­asta mánuð.

Í boði var að dreifa skuld­inni í 48 jafn­háar mán­að­ar­legar greiðslur sem við­kom­andi þarf að byrja að borga 1. júní 2022, eða eftir tæpt ár. Síðasta greiðslan sem þessir 282 aðilar þurfa að inna af hendi skilar sér svo í rík­is­sjóð í júní 2026.

Þetta kemur fram í svari skrif­stofu rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Ein af fyrstu aðgerð­unum sem íslensk stjórn­völd gripu til vegna efna­hags­legra afleið­inga af kór­ónu­veiru­far­ald­inum var að veita fyr­ir­tækjum í land­inu frest á greiðslu á helm­ingi trygg­ing­ar­gjalds og stað­greiðslu opin­berra gjalda sem voru á gjald­daga í mars í fyrra. Þetta var ákveðið 12. mars, fjórum dögum áður en að eindagi þeirra gjalda átti að vera. Þeim eindaga var frestað um mánuð upp­haf­lega, og síðar þangað til í jan­úar á næsta ári. Gert var ráð fyrir að þetta myndi seinka tekjum til rík­is­sjóðs upp á 22 millj­arða króna.

[adspot]Þegar rík­is­stjórnin kynnti svo fyrsta efna­hag­s­pakka sinn 21. mars var ein dýrasta aðgerðin þar sú að fresta mætti þremur gjald­dögum stað­greiðslu og trygg­ing­ar­gjalds á tíma­bil­inu 1. apríl til 1. des­em­ber til við­bótar ef fyr­ir­tæki gæti mætt ákveðnum skil­yrð­um. Áætluð áhrif þess voru tæpir 70 millj­arðar króna.

Þessar for­sendur gengu ekki eft­ir. Umfang frestaðra greiðslna var þvert á móti verið 19 millj­arðar króna frá mars­mán­uði og út júlí á síð­asta ári.

Borga staðgreiðslu og tryggingargjald sex árum síðar

Þegar kom að því að gera upp skuld­ina snemma árs 2021 var ákveðið að veita rýmri frest til að gera það. Í vor töldu stjórn­völd svo að það þyrfti að veita þeim aðilum sem þurftu á því að halda vegna rekstr­ar­erf­ið­leika enn frek­ari fresti á því að standa skil á umræddum skatt­greiðslum.

Lögin sem heim­ildin til að dreifa þeirri skuld við rík­is­sjóð til árs­ins 2026 byggir á voru sam­þykkt á Alþingi 11. maí síð­ast­lið­inn. Þau byggja á frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram. Samkvæmt þeim gátu þau fyr­ir­tæki sem upp­fylltu ákveðin skil­yrði, sem snúa aðal­lega að því að umsækj­andi sé ekki í van­skilum með önnur opin­ber gjöld, fengið að fresta því í fjögur ár til við­bótar að gera upp upp skuld­ina.

Það þýðir að launa­greið­endur sem áttu að skila skatt­greiðslum af launum starfs­manna til rík­is­sjóðs í mars 2020 munu ekki þurfa að greiða síð­ustu greiðsl­una af því vaxta­lausa láni rík­is­sjóðs fyrr en rúmum sex árum síðar.

Leynd yfir því hverjir skipta greiðslum

Skatt­ur­inn hefur birt yfir­lit yfir þau fyr­ir­tæki sem hafa verið þiggj­endur ýmissa úrræða sem stjórn­völd hafa boðið upp á vegna kór­ónu­veirunnar. Dæmi um það eru þau fyr­ir­tæki sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina, upp­sagn­ar­styrki, við­spyrnu­styrki og tekju­falls­styrki.

Kjarninn kall­aði eftir upp­lýs­ingum um hvaða aðilar hefðu sótt um og fengið að fresta greiðslum á stað­greiðslu og trygg­inga­gjaldi í allt að sex ár, vaxta­laust. Þeirri beiðni var hafnað á grund­velli þess að gögnin falli undir sér­staka þagn­ar­skyldu laga um inn­heimtu opin­berra skatta og gjalda. Starfs­mönnum rík­is­skatt­stjóra beri að halda þessum upp­lýs­ingum leyndum að við­lagðri refsi­á­byrgð. „Gögnin varða m.a. efna­hag gjald­anda en upp­lýs­ingar um skulda­stöðu falla undir fram­an­greint ákvæði. Þar sem gögnin falla undir sér­staka þagn­ar­skyldu­reglu[...]um inn­heimtu opin­berra skatta og gjalda, taka upp­lýs­inga­lög [...] ekki til þeirra. [...] Með vísan til þessa er beiðni þinni hafnað um að fá afhend fram­an­greind gögn.“

Kjarninn fer nú yfir það hvort ákvörð­unin verði kærð til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár