Vilja falla frá „bragðbanninu“ sem Willum lagði til

Meiri­hluti vel­ferð­ar­nefndar telur rétt að heim­ila áfram sölu á nikótín­vörum með bragð­efnum á Íslandi. Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans segir að það bann sem lagt var til í frum­varpi heil­brigð­is­ráð­herra hafi ekki verið nægi­lega vel und­ir­byggt.

Líneik Anna Sævarsdóttir er formaður velferðarnefndar.
Líneik Anna Sæv­ars­dóttir er for­maður vel­ferð­ar­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti vel­ferð­ar­nefndar leggur til að áfram verði leyfi­legt að selja nikótín­vörur með bragð­efnum hér á landi, en þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti með breyt­ing­ar­til­lögu vegna frum­varps Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra um nikótín­vörur.

Í því frum­varpi var lagt til að bragð­efni í nikótín­vörum á borð við ník­ótín­púða eða vökva í rafrettur yrðu bönnuð. Meiri­hluti nefnd­ar­innar rekur að þetta hafi verið gagn­rýnt í nokkrum umsögnum til nefnd­ar­innar og bendir einnig á að rann­sóknir á áhrifum bragð­efna í nikótín­vörum séu af skornum skammti.

[adspot]

„Í umsögnum og umfjöllun um málið í nefnd­inni hafa komið fram mjög skiptar skoð­anir um bann við notkun bragð­efna í nikótín­vörum. Innan nefnd­ar­innar eru jafn­framt uppi ólík sjón­ar­mið varð­andi bragð­bann. Þrátt fyrir að bann við notkun bragð­efna kunni að skila árangri til að draga úr neyslu barna og ung­menna á ník­ótín­vörum er það nið­ur­staða meiri hlut­ans að frek­ari vinnu þurfi við að greina áhrif slíkra aðgerða og mögu­legar leiðir við að fram­fylgja slíku banni,“ segir í umsögn meiri­hlut­ans, sem leggur til að ákvæði um „bragð­bannið“ verði fellt út úr frum­varp­inu.

Meiri­hlut­inn segir ljóst að meiri tíma þurfi til að útfæra slíkt bann og skjóta undir það traust­ari stoðum. Bannið sé ekki nægi­lega vel und­ir­byggt, eins og það hafi verið sett fram í frum­varp­inu.

Þing­menn­irnir átta sem rita undir meiri­hluta­á­litið hvetja því heil­brigð­is­ráðu­neytið og eft­ir­lits­að­ila til að halda áfram að fylgj­ast með „alþjóð­legum rann­sóknum og stefnu­mótun varð­andi áhrif bragð­efna á neyslu nikótíns og leiðum til að draga úr því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár