Opnað fyrir umsóknir um stuðningslán

Stuðn­ings­lán til smærri og með­al­stórra fyr­ir­tækja geta að hámarki numið 40 millj­ónum króna. Þó geta þau ekki orðið hærri en sem nemur tíu pró­sentum af tekjum fyr­ir­tækis á síð­asta rekstr­ar­ári.

Fyr­ir­tæki geta nú sótt um stuðn­ings­lán á vefnum ísland.is en þau eru hluti af við­spyrnu­að­gerðum stjórn­valda. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Lánunum er ætlað að styðja við smærri og með­al­stór fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir miklu tekju­falli vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Lánin geta að hámarki numið 40 millj­ónum króna. Þó geta þau ekki orðið hærri en sem nemur tíu pró­sentum af tekjum fyr­ir­tækis á síð­asta rekstr­ar­ári. Full rík­is­á­byrgð er veitt upp að 10 millj­ónum króna en 85 pró­sent umfram það.

Ýmis skil­yrði eru sett fyrir veit­ingu stuðn­ings­láns. Til að mynda þurfa tekjur lán­taka að hafa dreg­ist saman um að minnsta kosti 40 pró­sent á sam­felldu 60 daga tíma­bili frá 1. mars til 30. sept­em­ber miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá þurfa lán­takar að hafa haft tekjur á bil­inu níu til 1.200 millj­ónir á síð­asta rekstr­ar­ári. Þá þarf launa­kostn­aður á síð­asta ári að hafa numið tíu pró­sentum af rekstr­ar­kostn­aði.

Lán­tak­andi stuðn­ings­láns má ekki hafa greitt út arð eða óum­samda kaupauka, keypt eigin hluta­bréf, greitt af víkj­andi láni eða veitt nákomnum aðilum lán frá 1. mars 2020. Þá mega lán­tak­endur ekki vera í van­skilum við lána­stofnun sem hafa staðið lengur í 90 daga né í van­skilum með opin­ber gjöld.

Stjórn­völd hafa samið við Arion banka, Íslands­banka, Kviku, Lands­bank­ann og Spari­sjóð­ina um fram­kvæmd lán­anna. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að umsóknir skulu ber­ast inn á ísland.is en fyr­ir­tækin fá lánin afgreidd hjá sínum við­skipta­banka. Lána­stofn­unum er heim­ilt að veita stuðn­ings­lán til árs­loka 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár